09.11.1982
Sameinað þing: 14. fundur, 105. löggjafarþing.
Sjá dálk 469 í B-deild Alþingistíðinda. (258)

Um þingsköp

Eyjólfur Konráð Jónsson:

Herra forseti. Ég vil taka undir orð síðasta ræðumanns. Það hefur ekki einungis á þessu þingi heldur líka hinu síðasta borið við að ráðherrar hafa verið fjarverandi fund eftir fund þegar þeir áttu að svara fsp. Svo vill til, að þrjár fyrstu fsp. á dagskrá nú eru fluttar af mér og hæstv. viðskrh., sem á að svara tveim þeirra, er hér ekki mættur, mun vera erlendis nú, tjáði mér það raunar og lofaði að hann mundi svara þessum fsp. á þriðjudaginn kemur, og vona ég að hann standi við það. Hins vegar fór svo í fyrra, þegar svipaðar fsp. voru hér á dagskrá fund eftir fund, að hann svaraði ekki fyrr en eftir 25. nóv., en það var einmitt þá sem féð úr bankakerfinu var borgað með óheimilum hætti til afurðasölufélaganna í staðinn fyrir að hlíta vilja Alþingis, fjögurra ára samþykkt Alþingis, um að bændur fengju þetta fé beint. Ég vil aðeins benda hæstv. forseta á það, að svari hæstv. viðskrh. þessum spurningum ekki fyrir 25 nóv. nú í ár, eins og hann sveikst um að gera á s.l. ári, þá mun það hafa alvarlegar afleiðingar.

Ég vil taka sérstaklega fram að um 2. fsp., sem beint er til hæstv, landbrh., er samkomulag á milli mín og hans, að hann svari ekki fyrr en hinum fsp. hefur verið svarað, af því að það er eðlileg röð mála. Það er ekkert við hann að sakast í þessu efni, en fsp. nr. 1 og 3 mun ég krefja svara við á næsta þriðjudag.