09.03.1983
Neðri deild: 56. fundur, 105. löggjafarþing.
Sjá dálk 2755 í B-deild Alþingistíðinda. (2631)
206. mál, stjórnarskipunarlög
Sjútvrh. (Steingrímur Hermannsson):
Herra forseti. Jafnræði þegnanna á að vera sjálfsagður hlutur og er eðlilegt að sú stefna sé mörkuð í stjórnarskrá. Ég tel að það beri að gera við endurskoðun stjórnarskrárinnar. Hins vegar sýnist mér orka tvímælis að taka einn lið út úr nú eins og gert er ráð fyrir með þessari till. Greiði ég því ekki atkv.