09.03.1983
Neðri deild: 56. fundur, 105. löggjafarþing.
Sjá dálk 2767 í B-deild Alþingistíðinda. (2677)

30. mál, heilbrigðisþjónusta

Ólafur G. Einarsson:

Herra forseti. Það er nú svo, þegar líður að þinglausnum, að ýmis viðamikil mál vilja fara í gegnum þingið án nægilegrar athugunar. Því miður held ég að svo sé með það mál sem hér er nú til afgreiðslu. Ég játa það hreinskilnislega að ég hef ekki haft nægilegan tíma til að kanna þetta mál eins og þm. ætti að vera skylt, en ég hlýt að treysta á störf hv. heilbr.- og trn. sem hefur haft þetta mál til meðferðar.

En það er eitt atriði í þessu frv. sem ég vil gera hér sérstaklega að umræðuefni. Það er 8. gr. frv. eins og það er komið frá hv. Ed. og frá heilbr.- og trn. þessarar deildar. Þessi grein er svohljóðandi með leyfi hæstv. forseta:

„Heimilt er að greiða sjúkraliða laun úr ríkissjóði gegni hann störfum á heilsugæslustöð þar sem hjúkrunarfræðingur eða ljósmóðir fæst ekki til starfa.“

Mér er ljóst að þessi grein fjallar um undantekningu frá meginreglunni og er betur orðuð og meiri undantekningarblær á henni heldur en var í upphaflega frv., en þar var þetta liður í 9. gr. Mér sýnist að þetta ákvæði sé sett fram til þess að sjúkraliðar geti gengið í störf hjúkrunarfræðinga á heilsugæslustöðvum. Mér sýnist jafnframt óeðlilegt að tryggja með lögum launagreiðslur úr ríkissjóði til aðila sem ekki er gert ráð fyrir að sinni viðkomandi starfi. Það er ekki gert ráð fyrir því í þessu tilviki, vegna þess að starfið byggist á hjúkrunarlögum, enda er verksvið sjúkraliða og hjúkrunarfræðinga ólíkt. Þótt komið hafi fyrir, að því er mér er sagt, á aðeins einni heilsugæslustöð að hjúkrunarfræðingar hafi ekki fengist til starfa um takmarkaðan tíma og sjúkraliði hafi því hlaupið í skarðið, þá er í hæsta máta óeðlilegt að hlaupa til með lagabreytingu til að komast hjá krókaleiðum, sem þurft hefur að fara til þess að greiða sjúkraliða launin. Meginmálið er það, að sjúkraliðar geta ekki gengið í störf hjúkrunarfræðinga og eiga ekki að gera það fremur en hjúkrunarfræðingar ganga í störf lækna.

Ég ber vissulega mikla virðingu fyrir starfi sjúkraliða og veit að þeir vinna hin mikilvægustu störf. Það breytir hins vegar ekki því, að ég get ekki samþykkt lagabreytingu sem opnar þeim frekar leiðina til að ganga í störf hjúkrunarfræðinga, störf sem meira að segja eru lögvernduð samkv. hjúkrunarlögum og krafist er sérmenntunar til. Ef þetta gengur fram eins og það er komið frá hv. Ed. og hv. heilbr.- og trn. þessarar deildar tel ég að gengið sé inn á mjög varhugaverða braut. Ég vara við því. Mér sýnist sú spurning vakna, hvort Alþingi stígi þá það skref næst að opna leiðina fyrir hjúkrunarfræðinga að ganga inn í störf lækna. Það hefur komið fyrir að erfitt hefur reynst að fá lækna til að gegna störfum í sumum héruðum. Mér sýnist að það væri hliðstætt við það sem hér er verið að leggja til. Auðvitað nýtur læknisstarfið lögverndar samkv. læknalögum, en það má e. t. v. sniðganga þau lög með sama hætti og mér sýnist að hér sé ætlað varðandi hjúkrunarlögin. Ég vara við þessu og mun greiða atkv. gegn þessari 8. gr.

Ég held að ég hafi tekið rétt eftir að hv. formaður heilbr.- og trn. hafi léð máls á því að taka þessa grein út úr. Ég fagna þeirri yfirlýsingu, ef ég hef tekið rétt eftir, en vonast þá eftir svolítið skarpari yfirlýsingu svo að tryggara verði að greinin verði felld.