09.03.1983
Efri deild: 64. fundur, 105. löggjafarþing.
Sjá dálk 2791 í B-deild Alþingistíðinda. (2709)
198. mál, fjáröflun til vegagerðar
Ólafur Ragnar Grímsson:
Herra forseti. Þegar það frv., sem hér er til umr., var í undirbúningi fékk þingflokkur Alþb. þær upplýsingar frá hæstv. samgrh. að fulltrúar allra flokka hér á Alþingi hefðu lýst yfir stuðningi sínum við þetta frv. Í þingflokki Alþb. komu fram ýmsar efasemdir um að rétt væri að leggja á nýjan skatt af þessu tagi. En þegar hæstv. samgrh. tjáði okkur að fulltrúar annarra flokka, stjórnarandstöðuflokkanna beggja, hefðu lýst yfir samþykki sínu við þennan nýja skatt vegna þess að tekjur af honum ættu að renna til vegamála samþykkti þingflokkur Alþb. fyrir sitt leyti að standa að þessu frv. Það kom síðan í ljós við meðferð málsins, eins og hér hefur birst í framsögum meiri hl. og minni hl. n., að þetta reyndist ekki rétt og fulltrúar Sjálfstfl. í fjh.- og viðskn. standa ekki að samþykkt þessa frv.
Það er ljóst að margvísleg gagnrýni kom fram utan þings á þennan nýja skatt. Það hefði verið æskilegra að málið hefði verið betur undirbúið af hálfu hæstv. ráðh. en raun bar vitni. Það kom því í hlut nefndarinnar að bregðast við þeirri víðtæku gagnrýni, sem fram kom utan þings á það form skattlagningar sem hér er lagt til, og leggja til brtt. við frv., sem breyta allnokkuð eðli skattlagningarinnar, leggja til breytingar á tollum á hjólbörðum og hræra við afgreiðslu þessa máls í tollskránni. Það er ekki ákjósanleg aðferð við breytingar á tollskrá að hengja þær breytingar aftan í frv. um fjáröflun til vegagerðar með þeim hætti sem hér er gert. Það var hins vegar talið nauðsynlegt til þess að sætta aðila við efni frv. Þess vegna er ljóst að þetta mál er nokkurt vandræðamál hér á þinginu. Undirbúningur þess hefur gert það að verkum að hv. fjh.- og viðskn. varð að vega það og meta á fáeinum dögum hvort hún ætti að standa að afgreiðslu málsins þótt ljóst væri að undirbúningur frv. hefði hvergi nærri verið eins og skýrt hafði verið frá að ætlunin hefði verið.
Sömu dagana og hv. fjh.- og viðskn. var að glíma við þá þraut að breyta þessu frv. í viðráðanlegri búning voru fulltrúar hinna ýmsu landshluta hér á Alþingi að fjalla um vegáætlun þar sem tilgreind eru fjárframlög til vegamála í hinum einstöku landshlutum. Hv. fjh.- og viðskn. var þess vegna í reynd stillt upp við vegg á þann hátt að ef nefndin afgreiddi ekki þennan skatt á síðustu dögum þingsins gæti vegáætlun ekki gengið fram á þeim grundvelli sem fulltrúar hinna ýmsu kjördæma teldu óhjákvæmilegan. Því varð það niðurstaða mín að standa að því að frv. yrði samþykkt, en þó með tveimur skilyrðum: Í fyrsta lagi að skatturinn væri lækkaður allmikið á ákveðnum tegundum bifreiða og í öðru lagi að tryggt yrði með hliðarráðstöfunum af hálfu fjmrn. að öryrkjar og aðrir þeir sem hafa notið hér sérstakrar fyrirgreiðslu vegna fötlunar og annarra hindrana sem sjúkleiki og annað hefur skapað þeim yrðu ekkí látnir bera auknar fjárhagsbyrðar vegna þessarar skattlagningar. Í nál. kemur fram yfirlýsing um að við teljum eðlilegt að mæta auknum rekstrarkostnaði vegna veggjaldsins með því að hækka eftirgjöf af innflutningsgjöldum bifreiða til öryrkja og leggjum til að fjmrn. athugi það mál nánar.
Það er alveg rétt, sem hv. þm. Lárus Jónsson sagði í ræðu sinni, að á undanförnum árum hafa þm. allra flokka hér á Alþingi með einum eða öðrum hætti tekið þátt í að auka skatta og álögur af ýmsu tagi. Ýmsir okkar hafa verið þeirrar skoðunar, að hin svokallaða niðurtalningaraðferð, sem oft hefur verið höfð á orði hér á undanförnum árum, ætti ekki eingöngu að ná til launafólks í landinu, eins og virðist oftast nær þegar um hana er fjallað af hálfu þeirra sem eru höfundar þeirrar stefnu, heldur ætti hún einnig að ná til þeirra skatta og gjalda sem lögð eru á almenning í þessu landi. Við teljum það þess vegna ekki góðan kost að á lokadögum þingsins sé verið að telja skattana upp með þeim hætti sem hér er gert. Þeir sem hæst hafa talað um niðurtalningu á öðrum sviðum efnahagslífsins, hafa talið óhjákvæmilegt að leggja til upptalningu á álögum undir lok þingsins.
Komið hefur fram í mínum orðum hér að engin ánægja ríkir hjá okkur mörgum með hvernig þetta mál reyndist undirbúið. Það reyndist ekkí rétt, sem sagt þar var, að frv. nyti stuðnings fulltrúa allra flokka í þinginu. Það reyndist einnig óhjákvæmilegt í n. að breyta álagningunni aliverulega við þau skilyrði að þm. allra kjördæma voru að ganga frá vegáætlunum í sínum kjördæmum. Þess vegna er skoðun mín að þessi skattálagning sé illur kostur. Það verði óhjákvæmilegt að skoða hana nánar þegar reynsla hefur af henni fengist. Betra hefði verið ef tími og tóm hefði gefist til að fara aðrar leiðir í því að tryggja vegaframkvæmdir í landinu en leggja enn á ný álögur á almenning í þessu landi. Ljóst er að það er almenningur í þessu landi sem mun útvega meginhlutann af því fjármagni sem hér er lagt til að fari í vegagerð. Meginhlutinn af þeim tekjum, sem eiga að koma af þessu veggjaldi, er fenginn frá venjulegum bifreiðaeigendum, launafólki í þessu landi, sem notar bifreiðar vegna vinnu sinnar eða heimilislífs.
Ég er þeirrar skoðunar að þær byrðar sem atmennt launafólk ber í þessu landi séu með þeim hætti nú að það sé illgerlegt að auka þær, hvort heldur með þessum hætti eða öðrum. En við höfðum gefið það fyrirheit í Alþb., þegar málið var í undirbúningi, að standa að frv. Þótt gallar hafi komið í ljós í meðferð málsins taldi ég rétt að standa við þau orð. Ég tel að það sé langt í frá að þetta sé viðunandi lausn á þeim vandamálum sem fólgin eru í því hvernig eigi að stuðla að auknum framkvæmdum í vegagerð í landinu.
Ég er þeirrar skoðunar um þær aðgerðir, sem fulltrúar allra flokka hafa staðið að hér á undanförnum árum og ekkert síður á ríkisstjórnartímabili 1974–1978 en síðan 1978, að auka jafnt og þétt margvíslega skatta á almennt launafólk að kominn sé tími til að standa gegn frekari skrefum á þeirri braut. Það er allt of auðvelt fyrir stjórnmálamenn, sem vilja slá sig til riddara á framkvæmdum á ýmsum sviðum, að koma síðan til launafólksins í landinu og segja: Þið eigið einfaldlega að borga brúsann.
Það var gripið fram í áðan og spurt hvar hæstv. fjmrh. væri. Ég vil vekja athygli hv. Ed. á því að á síðustu tveimur árum hefur hæstv. fjmrh. Ragnar Arnalds haft margvíslega forgöngu um að leitast við að lækka byrðar á almennu launafólki hér í landinu með lækkun sjúkratryggingagjalds og með ráðstöfun tekjubóta af því tagi sem gerð hefur verið tilraun með á undanförnum mánuðum. En reyndin er hins vegar sú, að ráðherrar hinna ýmsu málaflokka, sem bera ábyrgð á framkvæmdum og umsvifum á hinum ýmsu sviðum, hafa verið kröfuharðastir um ný útgjöld og nýjar tekjuöflunarleiðir til að geta varið þeim til framkvæmda á hinum ýmsu sviðum. Eins og kom fram hjá hæstv. fjmrh. fyrir nokkrum mánuðum lagði hann til við undirbúning fjárlagagerðar s.l. haust innan ríkisstj. að nokkur fjöldi ríkisstofnana og ríkisfyrirtækja yrði ýmist lagður niður eða starfsemi þeirra endurskipulögð frá grunni. Hann lagði fram í þessu skyni sérstaka skrá í vinnu ríkisstj. að undirbúningi fjárlagafrv. Það kunna að þykja nokkur tíðindi að fjmrh. Ragnar Arnalds skuli hafa verið reiðubúinn og hans flokkur að taka til skoðunar ýmsar þær stofnanir og fyrirtæki sem sett hafa verið upp í ríkisgeiranum á undanförnum áratugum og jafnvel leggja til að menn íhuguðu í alvöru að starfsemi þessari yrði hætt eða henni fenginn annar farvegur. En hverjir voru það sem neituðu þessum tillögum? Það voru fyrst og fremst ráðherrar hinna ýmsu fagráðuneyta sem neituðu því að það yrði hróflað við þessu og hinu sem undir þá heyrði.
Við höfum allt of lengi gengið þá götu að einstakir ráðherrar telji að það sé vænlegasta leiðin til fylgisöflunar í þessu landi að reisa minnisvarða með auknum útgjöldum með einum eða öðrum hætti. Þegar við blasir í þjóðarbúskap okkar veruleg tekjuminnkun vegna markaðsbrests á fjölmörgum sviðum, vegna minnkandi afla, vegna þess að fjárfesting, sem farið hefur verið í á fjölmörgum sviðum, hefur ekki skilað arði, þá er óhjákvæmilegt að menn geri ákveðnar skipulagsbreytingar á þeim sviðum sem fjármagni hefur verið varið í til þessa, ef þessi minnkun þjóðartekna, ef þessi þrenging umsvifa vegna markaðsbrests erlendis og minnkandi afla hér innanlands og fjárfestingar, sem ekki hefur skilað arði, á ekki að koma niður á almenningi í landinu í formi slíkrar kjararýrnunar að heimilin í landinu muni í raun og veru brotna fjárhagslega undan þeirri byrði. Þess vegna hefði verið æskilegra að menn hefðu sest niður og fundið aðra lausn á þeim tekjuöflunarvanda sem hér er en einfaldlega að segja við launafólkið í landinu: Þið eigið að borga meira. Fjárfestingarvandamál, hvort sem þau eru á sviði vegagerðar eða á sviði annarra þátta í okkar þjóðfélagi, verða ekki leyst á þeim tímum sem við nú lifum eða sem fram undan eru einfaldlega með því að segja við launafólkið í landinu: Þið eigið að borga meira. Það er merkilegt að sömu aðilar og fyrr á þessu þingi, fyrir nokkrum vikum, lögðu til að kjör launafólks yrðu skert allverulega með því að taka af launafólki vísitölubætur skuli einnig telja sjálfsagt að fara þessa leið hér.
Það skal tekið fram, herra forseti, að ég segi þetta ekki vegna þessa frv. sérstaklega og ekki vegna þessa málaflokks sérstaklega. Ég tek það alveg skýrt fram. Ég segi þetta eingöngu vegna þess að mér finnst að á tímum minnkandi þjóðartekna, á tímum markaðsbrests í grundvallarútflutningsgreinum okkar, á tímum minnkandi afla og þeirrar staðreyndar að fjárfesting, hvort sem það er járnblendiverksmiðja, útgerðarfjárfesting eða önnur fjárfesting, sem ákveðin hefur verið hér á undanförnum 5–10 árum, skilar ekki þeim arði sem ætlast var til í upphafi, þá verði menn að draga saman seglin í framkvæmdum. Þá sé einfaldlega ekki hægt að koma jafnt og þétt með nýjar og nýjar tillögur um að standa straum af auknum umsvifum á verksviði einstakra ráðherra með nýjum sköttum.
Hv. þm. Lárus Jónsson flutti hér svipaða þulu og þm. Sjálfstfl. hafa flutt á undanförnum árum um nauðsyn þess að lækka skatta og taldi að þeir þrír ráðherrar, sem eru þm. Sjálfstfl. í núv. ríkisstj., væru ekki fulltrúar fyrir flokkinn. En í sveitarstjórnarkosningunum á s.l. ári tók Sjálfstfl. völdin í Reykjavík. Væntanlega eru þeir sem þar eru, hv. þm. Albert Guðmundsson, Davíð Oddsson og aðrir, sem skipa borgarstjórnarmeirihl. í Reykjavík, fulltrúar fyrir Sjálfstfl., gæðastimplaðir í bak og fyrir. (EgJ: Það er rétt. Hvað annað?) Já, það er rétt. Það er viðurkennt hér. En hvað hefur gerst í Reykjavík? Hvað hefur gerst í Reykjavík eftir að skattalækkunarmennirnir miklu komust til valda? Eigum við ekki að skoða það smástund? (SalÞ: Jú, endilega.) Endilega, segir hv. þm. Salome Þorkelsdóttir. Ég skal verða við þeirri ósk.
Einn skattur hefur verið lækkaður, fasteignaskattur. Hvernig er hann lækkaður? Hann er lækkaður þannig, að stóreignamenn og fyrirtæki fá meginhluta skattalækkunarinnar í sinn hlut. Venjuleg fjölskylda launamannsins, sem býr í íbúð í sambýlishúsi, fær lækkun sem nemur um það bil 500 kr., en stórkaupmaðurinn og forstjórinn, sem búa í einbýlishúsinu, fá lækkun um 2000–3000 kr. og fyrirtækin, sem eiga verslunarhallirnar og aðrar stórbyggingar, fá lækkanir í tugum og jafnvel hundruðum þús. Skattalækkunin er framkvæmd með þeim hætti að fjölskylda launamannsins fær 500 kr. minnkun, en fjölskylda stóreignamannsins fær mörg þús. kr. minnkun. (SalÞ: Er það þessi krónutala eða prósentan?) Það er alveg ljóst að sú krónutala sem kemur til lækkunar hjá hverjum og einum er eins og ég hef hér lýst. En sagan er ekki búin, hv. þm. Salome Þorkelsdóttir. Hún er rétt að byrja. (Gripið fram í.) Sjálfstfl. í Reykjavík fór nýjar brautir í skattlagningu til að afla borgarsjóði tekna. Hverjar voru þær brautir? Jú, að skattleggja börnin í Reykjavík.
Nú hefur það gerst í fyrsta sinn í Reykjavíkurborg að í hvert sinn sem barn kemur á barnaleikvöll þarf það að greiða 10 kr. Komi það oftar en einu sinni á hverjum degi þarf það að borga aftur 10 kr. (Gripið fram í: Það er á Akureyri.) Það er ekki betra fyrir það þó að það gerist á Akureyri. (SalÞ: Það er ekki Sjálfstfl.) Nei, það er alveg rétt, það er ekki Sjálfstfl., en aum er afsökunin orðin þegar strax er byrjað að skýla sér bak við það að einhverjir vondir vinstri menn kunni kannske að hafa gert hið sama. Það er ekkert betra fyrir það. En safnast þegar saman kemur. Hafa hv. þm. Sjálfstfl. sest niður og reiknað hve þetta eru mikil útgjöld árlega fyrir fjölskyldu launafólksins eða ef til vill hina einhleypu verkakonu, sem þarf að senda börn sín á leikvöll? Útgjaldaviðbótin fyrir hina einhleypu verkakonu, sem sendir börn sín tvö eða þrjú á leikvöll um það bil 200 virka daga á ári, er talsverð og hvað nemur hún mikilli upphæð hjá henni einni? Heilum mánaðarlaunum. Aukning skattanna á verkakonuna í Reykjavík, sem verður að senda börn sín á leikvellina, nemur mörgum þúsundum kr. á ári. Hann er fljótur að fara fimmhundruðkallinn sem gefinn var eftir í fasteignaskatta af íbúðinni. Hann er tekinn margfaldur aftur með því að skattleggja börnin sem fara inn á leikvellina.
En sagan er ekki öll búin. Strætisvagnafargjöldin hjá börnunum eru hækkuð á tveimur mánuðum um 119%. Um 119% á tveimur mánuðum eru strætisvagnafargjöld barna í Reykjavík hækkuð. Auðvitað er það skattaaukning. Auðvitað er það tekjuöflunarleið fyrir borgarsjóð eftir öðrum leiðum. Hvað þýðir þetta á heilu ári fyrir venjulega barnafjölskyldu, sem verður að senda börn sín í skóla með strætisvögnum og til að heimsækja afa og ömmu einu sinni eða tvisvar í viku eða svo? Þessi eina hækkun nemur í útgjaldaaukningu 7–8 þús. kr. á ári. Með þessum tveimur liðum, gjöldunum á leikvellina og hækkun barnafargjaldanna í strætisvögnunum, sem er miklu meiri hækkun en á fullorðinsfargjöldunum, er tekið í auknar innheimtur hjá borgarsjóði í Reykjavík sem nemur 1–2 mánaðarlaunum venjulegs launamanns í þessari borg eða milli 10–20 þús. kr. í aukna skattheimtu af launafólki í Reykjavík. Og hvað er það á móti 500 kr. sem launamaðurinn fékk í formi hinnar margauglýstu lækkunar á fasteignagjöldum? Það er ekki mikið. Þess vegna fagna ég því að hv. þm. Lárus Jónsson skyldi benda mönnum á að skoða staði þar sem gæðastimplaðir sjálfstæðismenn stjórna. Hvað gerist þar í skattaálögum á allmennt launafólk? Það var sagt áðan skýrt í frammíkalli að þessir menn væru gæðastimplaðir af Sjálfstfl., að enginn þyrfti að efast um að þeir væru að framkvæma hans stefnu. En Sjálfstfl. er ekki treystandi til að lækka skatta á almennu launafólki hér í þessu landi. Þar verða aðrir að koma til.