09.03.1983
Efri deild: 64. fundur, 105. löggjafarþing.
Sjá dálk 2797 í B-deild Alþingistíðinda. (2712)

198. mál, fjáröflun til vegagerðar

Kjartan Jóhannsson:

Herra forseti. Ég veit ekki hvort hægt er að gera þá kröfu til annarra að þeir haldi sig fast og stíft við dagskrármálið eftir að 11. þm. Reykv., Ólafur Ragnar Grímsson, hefur haldið hér stefnumarkandi ræðu í efnahagsmálum. Það er hins vegar eftirsjá að því að hann skyldi ekki halda þessa ræðu fyrir 1–2 árum. Þá væri ekki jafnilla fyrir okkur komið núna, svo framarlega sem hann hefði þá komið fram vilja sínum fyrir hönd þingflokksins og talað fyrir hönd þingflokksins. Þá væri ekki eins illa komið fyrir okkur og raun ber vitni.

Við höfum oft talað fyrir því, Alþfl.-menn, að það væri orðið mikið einkenni á þessu þjóðfélagi að reikningar væru framsendir launafólki, ekki síst fyrir ýmiss konar óráðsíu í fjárfestingu og hallærisrekstur, að það færu miklir fjármunir í fjárfestingu sem ekki skilaði arði. Ég þarf ekki að telja upp dæmin um það. Þau verða rakin allt frá Kröflu og í gegnum skriðu innflutnings á togurum á undanförnum árum, sem við Alþfl.menn fluttum hér frumvörp um ár eftir ár að skyldi stöðvaður, sem við höfðum reyndar forgöngu um að var stöðvaður í tíð fyrrv. ríkisstj., en sú ákvörðun fékk ekki að standa.

Ræða hv. þm. Ólafs Ragnars Grímssonar var eins konar uppgjör við ríkisstjórnina, sem Alþb. er aðili að, en jafnframt í rauninni harkaleg árás á hæstv. fjmrh. En í meginatriðum trúi ég að þetta hafi verið rétt mat hjá hv. þm. En vegna tilmæla hæstv. forseta um að halda sig sem mest við efnið skal ég ekki á þessu stigi fara nánar út í þessi atriði, þó að til þess sé í raun ærin ástæða.

Það sem hér er til umr. er veggjald, fjáröflun til vegagerðar. Mér er sagt að Nóbelsskáldið okkar, Halldór Laxness, sem hefur átt Jagúarbíl, hafi einhvern tíma verið spurður að því hvort það væri ekki óhentugt og dýrt að vera með svo fínan bíl á svo vondum vegum útlendingur hafi spurt hann að því. Og Halldór Laxness svaraði að bragði: „Það er í rauninni dýrt að vera Íslendingur.“ Það er það, sem við stöndum frammi fyrir núna. Það er dýrt að aka bílum á slæmum vegum, en það er líka dýrt að endurbyggja vegina og gera þá betur úr garði. Hvorn kostinn sem menn velja er dýrt að vera Íslendingur. Hér stendur valið um hvort menn ætla að leggja meira fé í vegagerð og njóta þægindanna af betri vegum og lægri kostnaðar við að reka bílinn eða hvort menn ætla að halda áfram að eyðileggja bílana sína unnvörpum á ónýtum vegum.

Það kom fram í ræðu hv. 3. þm. Norðurl. e. áðan, að skattlagning væri mikil af umferðinni í landinu. Það er rétt. En vegirnir kosta líka mikið. En einhvern veginn hefur það viljað verða svo, að þessir peningar hafa ekki enst allt of vel í vegagerð, án tillits til þess hvort fjmrh. heitir Matthías A. Mathiesen, Ragnar Arnalds eða Tómas Árnason og án tillits til þess hvaða þingmeirihluti hefur farið með völd hér á Íslandi. Það sem meira er: Vegna þess að nýbyggingar á vegum hröpuðu um fjórðung að raungildi í fjmrh.-tíð Matthíasar Á. Mathiesens var það sérstakt tilefni til þess að Alþingi samþykkti langtímaáætlun í vegagerð til að rétta hlutinn eftir þetta tímabil. Það vitum við.

Til nýbyggingar vega fóru á verðlagi 1981 199 millj. árið 1975, en 156 árið 1978. Þegar við stöndum frammi fyrir því að ætla að sinna því verkefni sem Alþingi samþykkti með langtímaáætlun í vegagerð og um endurbætur á vegakerfinu hljóta menn að leita leiða til að reyna að standa við það verkefni, a.m.k. að sem mestu leyti.

Um þessar mundir hafa þm. verið að reyna að skipta niður því fé sem til vegagerðar á að verja. Ég er hræddur um að það þrengdist mjög kosturinn ef það fé yrði skorið niður um svo sem eins og 100 millj. kr. En meðan menn ekki benda á aðrar leiðir til að mæta þessu verkefni hljóta menn að leitast við að finna lausn og það er auðvitað hlutverk Alþingis að finna lausn á þessu máli. Varla eru uppi hugmyndir um að leysa þetta með erlendum lánum, ég vona ekki, þannig að menn standa frammi fyrir því að útvega innienda fjáröflun í þetta eða leysa það með erlendum lánum. Þá trúi ég að valið sé auðvelt.

Alþfl. hefur talið að það væri hlutverk Alþingis og hann vildi eiga hlut að því að leysa þann vanda sem menn stæðu frammi fyrir í þessum efnum. Hitt er annað mál, að Alþfl. taldi að veggjaldið, eins og það lá fyrir í upprunalegri mynd, væri gallað og stóð þess vegna fyrir því að á því yrðu gerðar breytingar. Ef hæstv. samgrh. þarf að kvarta undan því, eins og hann gerði hér áðan, að hér sé um of mikla takmörkun á veggjaldinu að ræða getur hann kennt Alþfl. um það.

Á sama hátt hefur það verið skoðun okkar Alþfl.manna og verið samþykkt þáltill. frá einum okkar þm. um það, að það væri rangt að skattleggja hjólbarða með þeim hætti sem gert hefur verið. Hér er um öryggistæki að ræða. Það er ekki eðlilegt að hvetja menn í rauninni til þess með skattlagningu að sinna ekki öryggistæki af þessu tagi með eðlilegum hætti, að draga um of að endurnýja hjólbarða. Það getur valdið alvarlegum slysum. Þess vegna lögðum við áherslu á það við afgreiðslu þessa máls, að það að draga úr tollheimtu á hjólbörðum yrði liður í þeirri ákvörðun sem hér er tekin. Við höfum fengið fyrirheit um að ekki einungis verði þegar í stað helmingaður tollur á hjólbörðum í ákveðnum tollskrárnúmerum, heldur verði haldið áfram á sömu braut. Það er áreiðanlegt að langtum heilbrigðara er að taka upp veggjald af því tagi sem hér um ræðir en halda áfram mikilli tollheimtu á hjólbörðum. Að því leytinu er hér verið að stíga skref til réttrar áttar að því er varðar tekjuöflun af umferðinni til að standa undir vegaframkvæmdum.

Herra forseti. Við Alþfl.-menn áttum hlut að þessari lausn fyrst og fremst vegna þess að við töldum að þetta mál yrði að leysa og við komum ekki auga á í fljótu bragði að það yrði leyst með öðrum hætti en þeim sem hér er lagt til. Það yrði mikið ábyrgðarleysi af þeim sem hlaupast frá þessu verki núna án þess að koma því í höfn. Alþingi á vitaskuld að leysa þetta mál og við Alþfl.-menn töldum rétt að standa að lausn á því.