09.03.1983
Neðri deild: 57. fundur, 105. löggjafarþing.
Sjá dálk 2812 í B-deild Alþingistíðinda. (2729)

30. mál, heilbrigðisþjónusta

Ólafur G. Einarsson:

Herra forseti. Þetta virðist ætla að verða meira mál en ég átti von á þegar ég hóf máls á þessu hér fyrr í dag.

Ég hef í sjálfu sér ekki miklu við að bæta þau orð mín sem ég sagði á fundi fyrir kvöldmat. Ég varaði þá við því að setja í lög ákvæði sem þetta, sem hér er ráðgert í 8. gr., þar sem sjúkraliðar fá nánast heimild til að ganga inn í störf hjúkrunarfræðinga. Ég met yfirlýsingu hæstv. ráðh., sem hann gaf áðan um að hann væri tilbúinn að rita Hjúkrunarfélaginu bréf þar sem hann greindi frá skilningi sínum á ákvæði frv., að hér væri eingöngu um tímabundna ráðningu sjúkraliða að ræða ef á því þyrfti að halda, en mér nægir ekki þessi skilningur hæstv. ráðh. þó góður sé. Það er í sjálfu sér ekkert sérstakt við það þótt hæstv. ráðh. mundi líta á það sem tímabundna ráðningu sjúkraliða að heilsugæslustöð. Ef ég veit rétt fengi hjúkrunarfræðingur, sem ekki hefði sérmenntun í heilsugæslu, ekki heldur nema tímabundna ráðningu.

Það er því engin sérstök lausn hjá hæstv. ráðh. að lýsa þessu yfir og nægir mér ekki.

Mér finnst gæta dálítils misskilnings í máli hv. þm. Péturs Sigurðssonar. Það ber ekki að skilja mín orð þannig, að ekki komi til mála að ráða sjúkraliða til starfa við heilsugæslustöð ef hjúkrunarfræðingur fæst ekki. En ég vil ekki fá það sem pósitívt ákvæði í lög, það vil ég ekki, og það er kannske þarna sem okkur greinir á. Sjúkraliðar eiga að vinna í öllum tilvikum undir stjórn hjúkrunarfræðings. Í þessu tilviki er ekki gert ráð fyrir því. Það er alls ekki gert ráð fyrir að hjúkrunarfræðingur verði að störfum í heilsugæslustöð þar sem sjúkraliði á að gegna hans starfi. Það er þannig gert ráð fyrir þessu samkv. orðalagi frv. og við það felli ég mig ekki.

Það mætti nefna ýmis hliðstæð dæmi. Ég nefndi í dag hvort það yrði næsta skrefið að hjúkrunarfræðingar fengju heimild til að ganga inn í störf lækna t.d. ef ekki fengist héraðslæknir í eitthvert tiltekið hérað. Það mætti taka ýmis fleiri hliðstæð dæmi. Ég veit að ef hv. þm. Pétur Sigurðsson þyrfti að fara í flugvéi, þó það væri lítil flugvél sem ætti að fljúga bæði lágt og hægt, mundi hann ekki ráða mjólkurbílstjórann á staðnum til að fljúga henni ef ekki fengist flugstjóri. (Gripið fram í: Hann mundi fljúga henni sjálfur.) Já, hann mundi kannske fljúga henni sjálfur. Á sama hátt mundi hv. þm. Pétur Sigurðsson ekki sækja um yfirlæknisstarfið á Hrafnistu þó hann sé öllum hnútum þar gjörkunnugur og kunnugri en ýmsir aðrir. Það mundi hann ekki láta sér detta í hug að gera. Það liggur við að þetta minni mig á söguna af héraðslækninum og alþm. sem var búinn að vera þm. í áratugi fyrir tiltekið kjördæmi. Héraðslæknirinn vildi komast á þing og hafði orð á því í sínum flokki að nú væri röðin komin að sér og þá varð þm. að orði: „Ja, mér hefur aldrei dottið í hug að sækja um héraðslæknisstarfið hér.“ (Gripið fram í: Það gerði stjórnlagafræðingurinn.) Já, það má vera að stjórnlagafræðingurinn mundi láta sér detta þetta í hug.

En ég skal ekki orðlengja þetta frekar. Ég ítreka andstöðu mína við þessa grein og til þess að leggja enn meiri áherslu á þá andstöðu flyt ég hér brtt. við frv. Meðflm. mínir að þessari brtt. eru hv. þm. Guðrún Helgadóttir, Halldór Ásgrímsson og Jóhanna Sigurðardóttir. Brtt. er við 8. gr. og er þess efnis, að liður 17. 4. falli brott.

Till. er skrifleg, en hún er of seint fram komin og ég óska eftir því við hæstv. forseta að hann leiti afbrigða þannig að hún megi koma fyrir og hljóta afgreiðslu.