09.03.1983
Neðri deild: 57. fundur, 105. löggjafarþing.
Sjá dálk 2823 í B-deild Alþingistíðinda. (2744)

209. mál, skráning og mat fasteigna

Fjmrh. (Ragnar Arnalds):

Herra forseti. Ég mæli fyrir frv. til l. um skráningu og mat fasteigna.

Svo stendur á og hefur staðið á um nokkurt skeið, að yfirfasteignamatsnefnd ákveður framreikningsstuðla fyrir skráð matsverð fasteigna og tekur þá ákvörðun í nóvembermánuði, en undirbúningsvinna fer fram á tímabilinu ágúst til okt. ár hvert. Jafnframt hefur staðið svo á, að ný nefnd er skipuð á haustmánuðum eða nánar tiltekið í nóvembermánuði og því hefur farið svo, að rétt um það bil sem nefndin á að skila af sér störfum á hún að ákveða framreikningsstuðla og er raunar hætt störfum þegar ákvörðun á að taka. Það ber því brýna nauðsyn til að breyta þessu fyrirkomulagi þannig að skipunartími nefndarinnar falli á aðra mánuði ársins en þessa vinnumánuði, þegar ákvörðun er tekin um framreikningsstuðla, og í fullu samráði við yfirfasteignamatsnefnd hefur frv. þetta verið samið þar sem gert er ráð fyrir að skipunartími nefndarinnar skuli vera frá 15. maí til jafnlengdar að þremur árum liðnum.

Þetta er ákaflega einfalt mál og á ekki að þurfa að vera nokkurt deiluefni. Ef frv. verður að lögum verður ný yfirfasteignamatsnefnd skipuð nú með vorinu. Raunar varð samkomulag um það við þá yfirfasteignamatsnefnd sem skipuð var í desembermánuði s.l. að reynt yrði að stuðla að þessari lagabreytingu þannig að unnt væri að skipa í nefndina á nýjan leik núna með vorinu. Þess vegna ber brýna nauðsyn til að afgreiða þetta mál fyrir þinglok og ættu ekki að vera vandræði með það, þar sem málið er í síðari deild og þarf ekki að valda miklum umr.

Ég vil leyfa mér að leggja til að máli þessu verði vísað til hv. fjh.- og viðskn. að lokinni þessari umr.