09.03.1983
Neðri deild: 57. fundur, 105. löggjafarþing.
Sjá dálk 2825 í B-deild Alþingistíðinda. (2752)

216. mál, Landsvirkjun

Ólafur Þ. Þórðarson:

Herra forseti. Það hefur fjölgað í þingsalnum. Ég tel að það þurfi að vera fortakslaust ákveðið í lögum hvort heimilt sé að velta yfir á almenning í þessu landi afleiðingum af röngum samningum við stóriðju. Ég tel að það eigi ekki að vera heimilt. Þess vegna segi ég já.