09.11.1982
Sameinað þing: 15. fundur, 105. löggjafarþing.
Sjá dálk 487 í B-deild Alþingistíðinda. (276)
17. mál, verktakastarfsemi við Keflavíkurflugvöll
Jón Baldvin Hannibalsson:
Herra forseti. Það er satt að segja ánægjuleg undantekning að heyra málsvara Sjálfstfl. flytja ræðu af því tagi sem við heyrðum hér áðan, málsvara Sjálfstfl. lýsa því yfir skýrt og skilmerkilega að hann sé andvígur einokunarfyrirtækjum og af grundvallarsannfæringu fylgjandi því að verktakastarfsemi skuli verafrjáls. Ég vona að þessar góðu undirtektir undir þessa till. og þessi árétting á grundvallarafstöðu boði eitthvað gott.
Rökin fyrir þessari till. eru einföld og augljós. Umrætt fyrirtæki er einokunarfyrirtæki. Það á sér skuggalega fortíð sem rekja má til hinnar alræmdu helmingaskiptareglu íhalds og Framsóknar frá fyrri tíð. Yfir starfsemi þess hvílir mikil leynd. Það hefur komið fram og kom fram í máli 1. flm. að það er í þágu lýðræðislegrar umræðu að þeirri leynd verði svipt af startsemi fyrirtækisins. Ég sagði: Þetta er einokunarfyrirtæki. Starfsemi þess brýtur í bága við þá almennu viðskiptareglu, sem á að halda í heiðri, að útboðum verði beitt þegar um er að ræða verktakastarfsemi, í stað þess að fela slík verkefni hálflokuðu einokunarhlutafélagi sem upphaflega var komið á með nánast pólitísku samsæri örfárra hagsmunaaðila.
Ég vil í annan stað eindregið taka undir ummæli f. flm., sem voru á þá leið að Alþingi eigi í vaxandi mæli að leggja áherslu á eftirlitsvald sitt, eftirlitsskyldu sína, en það tengist þeim hugmyndum, sem talsvert hafa verið til umræðu að undanförnu, að rýmka starfssvið þingnefnda og fela þeim aukið vald. M.ö.o., það er viðleitni til þess að árétta vald og áhrif löggjafarsamkomunnar gagnvart framkvæmdavaldinu og vaxandi íhlutun þess.
Í tilefni af orðum hv. 11. þm. Reykv., þar sem hann beindi þeirri frómu ósk til 1. flm. að hann vendi sig af því að tala um varnarbandalag lýðræðisríkjanna, og í tilefni af þeirri ádrepu sem hann flutti yfir hausamótum hv. þm. Alberts Guðmundssonar og þeirra sjálfstæðismanna, og í tilefni af þeirri ásökun hans að í röðum sjálfstæðismanna gæti tvískinnungs, siðferðilegrar tvöfeldni, í þessum málum, þá vil ég aðeins árétta það að hv. 11. þm. Reykv. gerði rétt í því að beina þeim ummælum sínum aðeins til þeirra sjálfstæðismanna. Hann hefði hins vegar gert rétt í því líka að segja söguna til enda. Hann hafði hörð orð um stjórnarfarið í Tyrklandi, hörð orð um þær ofsóknir sem verkalýðsleiðtogar og leiðtogar jafnaðarmanna hafa orðið fyrir og mátt þola, og að sjálfsögðu ber að taka undir þau orð. En um leið má þess geta í sambandi við varnarsamtök lýðræðisríkjanna, að það hefur átt sér stað þróun í átt til lýðræðis í þeim ríkjum á Pyreneaskaga. sérstaklega Portúgal og Spáni, sem áður voru undir járnhæl fasisma. Það er vissulega mjög ánægjuleg þróun. Og menn verða að horfast í augu við þá staðreynd að þessi varnarsamtök eru þess eðlis að þau hlutast ekki með ofbeldi til um málefni meðlimaríkja sinna, og fara að því leyti öðruvísi að en risaveldið í austri, sem beitir valdi sínu purkunarlaust til þess að koma á og viðhalda ógnarstjórn í Póllandi. Við getum ekki annað sagt en það að við óskum þess eindregið að lýðræðisöflin nái að sigra í Tyrklandi eins og þau gerðu á Spáni, eins og þau gerðu í Portúgal.