09.03.1983
Neðri deild: 57. fundur, 105. löggjafarþing.
Sjá dálk 2827 í B-deild Alþingistíðinda. (2763)

230. mál, almannatryggingar

Halldór Ásgrímsson:

Herra forseti. Ég var truflaður um hríð af einum ráðh., sem málið er þó skylt. Ég var ekki viðstaddur og vissi ekki að umr. um þetta mál væri lokið.

Hér er um allmikið útgjaldamál að ræða. Í lögum um stjórn efnahagsmála nr. 13/1979 stendur í 13. gr.: „Meðal þess háttar verkefna fjárlaga- og hagsýslustofnunar skulu vera, eftir því sem nánar verður ákveðið í reglugerð:

...2. Kostnaðarmat á tillögum frv. sem hafa í för með sér kostnaðarauka fyrir ríkissjóð. Skal slíkt mat liggja fyrir áður en ákvarðanir eru teknar, enda sé því skilað til þingnefndar á tilskildum tíma.“

Ég hef ekki orðið var við að neinar slíkar upplýsingar hafi komið hér fram. Ég hef hins vegar heyrt að það geti verið um það að ræða að útgjöld af þessu frv. séu einhvers staðar á bilinu 40–80 millj. kr. Ég tel það vera skyldu samkv. lögum að gerð sé grein fyrir þessum kostnaði áður en til atkvgr. kemur og vildi ég biðja hv. nefnd að upplýsa þingheim um það áður en ég treysti mér til að greiða atkv. um þetta mál.