09.03.1983
Neðri deild: 57. fundur, 105. löggjafarþing.
Sjá dálk 2828 í B-deild Alþingistíðinda. (2776)
230. mál, almannatryggingar
Halldór Blöndal:
Herra forseti. Ég tel að það sé skýlaust að lagaheimildir skorti fyrir þeim greiðslum, sem ákveðið hefur verið af ríkisstj. að taka upp vegna viðgerða á tönnum. Mér þykir best að Alþingi ákveði slíkt sjálft, er samþykkur þeirri breytingu. Málið er vel undirbúið í rn., eins og fram hefur komið. Allar upplýsingar liggja fyrir. Ég segi já.