09.11.1982
Sameinað þing: 15. fundur, 105. löggjafarþing.
Sjá dálk 491 í B-deild Alþingistíðinda. (278)

17. mál, verktakastarfsemi við Keflavíkurflugvöll

Ólafur Ragnar Grímsson:

Herra forseti. Hv. síðasti ræðumaður, Albert Guðmundsson, hefur nú upplýst þingheim um það, að hann hafi í sinu stjórnmálastarfi gengið í smiðju bæði til Jónasar frá Hriflu og til mín. (Gripið fram í.) Ja, hv. þm. var að upplýsa það hér áðan, að hann hefði flutt till. á Alþingi sem væri orðrétt eftir till. sem ég hef flutt. Ég held að það sé ekki hægt að gerast skýrar lærisveinn neins þm. en taka orðrétta till. sem sá hefur flutt og flytja hana næstum því óbreytta sem sína till., enda var hv. þm. það velkomið. Ég var hreykinn af því að hv. þm. Albert Guðmundsson taldi tillöguflutning minn um Eimskipafélagið og Flugleiðir svo til fyrirmyndar að hann flutti nánast samstundis sams konar till. um Samband ísl. samvinnufélaga, sem ég lýsti hér yfir í þingsólum að ég styddi. (Gripið fram í.) Nei, ég er ánægður með að þessi lærdómur hv. þm. Alberts Guðmundssonar skuli vera kominn á spjöld sögunnar. Mér finnst ánægjulegt að hann skuli vera óafmáanlegur á spjöldum sögunnar.

Ég ætla ekki að rekja hér ítarlega samskipti við hv. þm. og reyndar fleiri aðila hér í þinginu um tillögur um Tyrkland á síðasta þingi, aðeins geta þess til upplýsingar, að þing Evrópuráðsins samþykkti með yfirgnæfandi meiri hluta stefnu sem þm. margs konar flokka, vinstri flokka, miðjuflokka, frjálslyndra flokka í Evrópu, stóðu að og á mörgum þjóðþingum var um þær mundir unnið að sams konar ályktun um Tyrkland til þess að reyna að styðja lýðræðisöflin í Tyrklandi á sama hátt og við höfðum ályktað hér um Pólland í því skyni að styðja lýðræðisöflin í Póllandi. Ég fór þess síðan á leit við þingflokka Sjálfstfl., Framsfl. og Alþfl. að þeir gerðust meðflm., einhverjir úr þingflokkunum fyrir hönd þeirra, að slíkri till. hér, sem væri viljayfirlýsing Alþingis til stuðnings lýðræðisöflunum í Tyrklandi, en bæði frá þingflokkum Sjálfstfl. og Framsóknar kom neitun við þessari beiðni. Þau samskipti fóru hér fram milli manna í þinginu og eru ekkert launungarmál eða neitt í því sambandi. Ég átti viðræður við ýmsa þm. í því sambandi. Það var eingöngu Alþfl. sem var reiðubúinn að standa að flutningi þeirrar tillögu. Afsökun þeirra sem þá neituðu að sýna lýðræðisöflunum í Tyrklandi sams konar stuðning og við vorum allir sammála um að sýna lýðræðisöflunum í Póllandi var sú, að það væri verið að setja landinu stjórnarskrá sem mundi innleiða lýðræði á nýjan leik. Nú er búið að setja stjórnarskrá. Nú sjá menn hvílík skopstæling þar er á lýðræði. Verkalýðsforingjar, stjórnmálamenn, forustumenn stjórnmálaflokka, jafnaðarmannaflokka og frjálslyndra flokka, eru ýmist í fangelsi eða þeim er bannað að sinna stjórnmálastarfsemi. Þegar umræða fór fram um stjórnarskrána á undanförnum vikum var bannað að mæla gegn henni opinberlega. Það var nú öll lýðræðislega umræðan og atkvgr. sem fór fram um þessa stjórnarskrá. Þess vegna væri kannske kominn grundvöllur nú fyrir því, að þeir sem þá lifðu í voninni um að þessi stjórnarskrá mundi leysa vanda Tyrkja séu þá reiðubúnir að ganga til liðs við okkur um að styðja slíka ályktun.

Ég átti ekki von á að hér á Alþingi Íslendinga væru menn í tveimur stærstu flokkum þingsins sem væru ekki reiðubúnir að hafa sams konar skoðanir á málefnum Tyrklands og meginþorri frjálslyndra þm. á Evrópuráðsþinginu var reiðubúinn að hafa. Það var hins vegar fróðlegt að verða þess vís. (Gripið fram í.) Ég get vel skilið að hv. þm. Ólafi Þ. Þórðarsyni líði hálfilla að heyra rifjaða upp afstöðu Framsfl., en hann verður að lúta því að málfrelsi er hér í ræðustól og sé rifjað upp að gefnu tilefni (ÓÞÞ: Hvaða mál er á dagskrá, forseti?) Vill ekki forseti upplýsa þm. um það, fyrst hann er ekki læs. Það er nú illa komið fyrir Reykholti ef ábúandi þar er ekki lengur læs. (ÓÞÞ: Það eru ákveðin mál á minni dagskrá og ég fylgdist ekki með hvaða mál er á dagskrá.) Ég vil beina þeirri ósk til hæstv. forseta Jóns Helgasonar, að hann sjái til þess að skrifstofustjóri Alþingis útvegi hv. þm. Ólafi Þ. Þórðarsyni lestrarkennara.

Það væri full ástæða til að fara í þessi mál hér og ræða almennt um afstöðu manna til alþjóðamála og lýðræðis annars staðar. Það má í því sambandi nefna það, að einn þm. Sjálfstfl. sagði hér í umr. um El Salvador í fyrra að El Salvador væri svo langt í burtu að við gætum nú varla verið að hafa áhyggjur af mannréttindum þar. Þar væru reyndar að koma kosningar sem mundu leysa öl( mannréttindamál. Á Íslandi var fyrir nokkrum dögum fyrrv. þm. kristilegra demókrata frá EI Salvador, fulltrúi mannréttindanefndar í því landi, sem upplýst hefur okkur mörg um hvaða atburðir hafa þar átt sér stað og þær hörmungar sem þar ríkja. Það sem við erum hér að fara fram á er að samræmi sé í þeirri afstöðu til lýðræðis annars staðar í heiminum sem menn setja fram hér, en það sé ekki dreginn upp einhver allt annar mælikvarði fyrir aðildarríki Atlantshafsbandalagsins. Það gefst síðar í vetur tækifæri til þess að ræða þessi efni.

Ég vil ítreka í framhaldi af ummælum sem hv. þm. Matthías Bjarnason lét frá sér fara í ræðustól áðan, að ég held að það sé nauðsynlegt að starfsemi móðurfyrirtækja Íslenskra aðalverktaka sé sérstaklega könnuð í þessu sambandi. Ég held að það sé ljóst, að fyrirtækið Reginn hefur t.d. verið notað til að kaupa eignarhluti í ýmiss konar fyrirtækjum, bæði í samgöngum, í sjávarútvegi, í fiskvinnslu og ýmsum öðrum atvinnugreinum. Ég hef gagnrýnt það á öðrum vettvangi, að þetta hlutafélag, sem sagt er að sé í eigu samvinnuhreyfingarinnar, sé notað með þessum hætti til að kaupa upp eignarhluti í hinum og þessum fyrirtækjum og veita þannig fjármagni úr rekstri Íslenskra aðalverktaka inn í hlutabréfakaup af alls konar tagi, sem eiga sér stað án þess að aðalfundur Sambandsins eða nokkur önnur meiri háttar fulltrúasamkoma í samvinnufélögunum í landinu fjalli um það. Þær ákvarðanir eru ekki teknar á hinum opnu lýðræðislegu vettvöngum samvinnuhreyfingarinnar, heldur eru þær ákvarðanir teknar af forstjórum og stjórnarmönnum í Regin hf., sem beita aðstöðu sinni með þessum hætti.

Ég hef talið mjög óheppilegt vægast sagt fyrir samvinnuhreyfinguna í landinu að hún sé að blanda þannig saman þátttöku sinni í verktakastarfsemi á Keflavíkurflugvelli og kaupum sínum á eignarhlutum í hinum og þessum hlutafélögum víða í landinu. Ég er þess vegna alveg sammála því, sem hv. þm. Matthías Bjarnason sagði hér áðan, að í athugun af þessu tagi er nauðsynlegt að ráðstöfun þess fjármagns, sem þarna hefur verið skapað, sé ítarlega könnuð. Þar er ég algerlega ósammála hv. þm. Albert Guðmundssyni um að það eigi ekki að vera hluti þessarar athugunar. Þegar hv. þm. Albert Guðmundsson var að lýsa sig ósammála mínum skoðunum um ráðstöfun fjár af þessu tagi var hann um leið að lýsa andstöðu sinni við þau sjónarmið sem hv. þm. Matthías Bjarnason setti hér fram og gerði reyndar miklu skýrar en ég gerði.

Að lokum held ég að nauðsynlegt væri að hv. þm. tækju það rækilega til athugunar að kveða ekki upp áfellisdóm þegar flutt er till. um að Alþingi taki til athugunar og afli sér upplýsinga um ýmis mikilvæg svið í þjóðfélaginu sem snerta almannahag, m.a. vegna þess að ríkið sé beinn eignaraðili í viðkomandi fyrirtækjum. Þegar Alþingi tekur sér vald til að afla upplýsinga og kanna slíka starfsemi má ekki umsvifalaust dæma slíkar tilraunir óeðlilegar vegna þess að þar með sé verið að gefa til kynna sekt og að tillöguflutningur af slíku tagi sé óeðlilegur. Það er óhjákvæmilegt í því flókna þjóðfélagi sem við lifum í, þar sem margs konar ríkisstofnanir, hálfríkisstofnanir, hlutafélög, sem ríkið er aðili að, og önnur stór hlutafélög annast mikilvæga starfsemi í þjóðfélaginu öllu, að Alþingi hafi rétt og vald til að afla upplýsinga og kynna sér gang slíkra mála. Það er hlutverk okkar sem kjörinna fulltrúa fólksins í landinu að tryggja að hagsmuna fólksins sé gætt á öflum þessum sviðum og ákvarðanir, sem þar eru teknar, séu í samræmi við hagsmuni fólksins. Í mörgum tilvikum getum við ekki sinnt þessu hlutverki okkar nema afla okkur upplýsinga á þann hátt sem lagt er til í þeirri till. sem hér er til umr. Það væri mjög æskilegt ef það skapaðist vilji fyrir því innan þingsins að menn hættu að fordæma slíkan tillöguflutning á þeirri forsendu, að í því felist sjálfkrafa ásökun. Svo er ekki, heldur er eingöngu verið að sinna því fulltrúahlutverki sem þjóðkjörnir fulltrúar fólksins í landinu verða að gegna í okkar þjóðfélagi.