09.03.1983
Neðri deild: 58. fundur, 105. löggjafarþing.
Sjá dálk 2830 í B-deild Alþingistíðinda. (2784)
30. mál, heilbrigðisþjónusta
Magnús H. Magnússon:
Herra forseti. Ég spyr: Er það virkilega meining hv. flm. þeirrar brtt., sem hér er til umr., að þau sveitarfélög, sem eru svo óheppin að hjúkrunarfræðingar eða ljósmæður fást ekki til starfa á heilsugæslustöð, þurfi þar til viðbótar að yfirtaka skyldur ríkissjóðs til launagreiðslna starfsfólks heilsugæslustöðva? Er það ekki nægilegt ólán fyrir viðkomandi sveitarfélög að geta ekki skaffað sínum íbúum lögboðna heilsugæslu, þó að þau þurfi ekki þar til viðbótar að borga stórfé sem ríkissjóði bæri ella að borga? Sú grein, sem brtt. gerir ráð fyrir að falli niður, gengur út á það eitt að sveitarfélögum sé hlíft við auknum útgjöldum ef þannig stendur á að alls ekki fáist hjúkrunarfræðingar eða ljósmæður til starfa. Auðvitað er betra að hafa sjúkraliða á heilsugæslustöð en ekki ef ekki fást hjúkrunarfræðingar á sama hátt og það er betra að hafa hjúkrunarfræðing en ekki ef ekki fæst læknir.
Ég vil taka það skýrt fram að það var alls ekki meining þeirra sem unnu að samningu frv. að þetta yrði til að skerða rétt hjúkrunarfræðinga, síður en svo. Þessi grein gengur eingöngu út á það eitt að tryggja rétt viðkomandi sveitarfélaga.