18.10.1982
Efri deild: 3. fundur, 105. löggjafarþing.
Sjá dálk 21 í B-deild Alþingistíðinda. (28)

11. mál, orkulög

Flm. (Þorv. Garðar Kristjánsson):

Herra forseti. Ég flyt hér frv. til orkulaga ásamt sjálfstæðismönnum hér í deildinni, Agli Jónssyni, Eyjólfi Konráð Jónssyni, Guðmundi Karlssyni, Lárusi Jónssyni og Salome Þorkelsdóttur. Þetta frv. er endurflutt nú. Það hefur tvisvar verið flutt áður og ég hef þá flutt ítarlegar framsöguræður fyrir þessu frv. og með því að ég veit að hv. þdm. hafa lagt sér á minni aðalatriði þess sem ég hef sagt í þessu máli, þá mun ég nú haga orðum mínum þannig, að leitast við að drepa aðeins hér á helstu atriði frv., sem nauðsynlegt er að leggja áherslu á, og þó að ég viti að hv. dm. hafi lagt á minnið það sem áður hefur verið sagt af minni hálfu í þessu máli, þá er ég ekki eins viss um að hæstv. iðnrh. hafi gert slíkt hið sama, enda á hann sæti í Nd., og það væri náttúrlega æskilegt, þó ekki sé sagt meira, að hann væri viðstaddur umr. um þetta mál. Þetta er eitt stærsta mál orkumálanna.

Þetta frv., sem hér er lagt fram, mótast af víðfeðmi þess viðfangsefnis sem hér er við að fást. Samt sem áður greinast nýmæli frv. í þrjá meginþætti. Er þar um að ræða nýmæli sem varðar rannsóknir á orkulindum landsins, eðli þeirra og skilyrðum til hagnýtingar þeirra, nýmæli í skipulagi orkuvinnslunnar og dreifingu orkunnar og nýmæli er varðar hlutverk og skipulag Orkustofnunar og orkuráðs.

Eitt mesta nýmælið, sem er að finna í þessu frv., er í 2. gr. þess, sem fjallar um orkumálaáætlun. Hér er um algert nýmæli að ræða í orkulögum, þar sem gert er ráð fyrir að meginmarkmið í orkumálum þjóðarinnar verði sett fram í sérstakri orkumálaáætlun til langs tíma. Með tilliti til reynslunnar má halda því fram, að á fáum eða engum sviðum opinberra fjármála sé þörfin brýnni fyrir vandaðan undirbúning ákvarðanatöku en í orkumálum, og kemur þar einnig til, að einstakar orkuframkvæmdir eru einnig mjög fjárfrekar svo sem kunnugt er. Löggjafinn hefur áður talið ástæðu til að ákveða slíka málsmeðferð í einstökum mikilvægum málaflokkum, svo sem í vegamálum, hafnamálum og raunar einnig framkvæmdum á sviði heilbrigðismála. Þar sem einstakir áfangar orkumálaframkvæmda eru einatt mjög umfangsmiklir þykir rétt að miða hér við 10 ára áætlun eða 10 ára áætlunartímabil, en með hliðsjón af óstöðugleika íslensks efnahagslífs þykir jafnsjálfsagt að gera ráð fyrir að breytingar aðstæðna krefjist endurskoðunar á áætluninni á fjögurra ára fresti eða oftar.

Það er gert ráð fyrir, að Orkustofnun og virkjunaraðilar vinni saman að gerð orkumálaáætlunar í umboði ráðh. Þetta eru þeir aðilar sem ætlað er að hafa á hendi þau verkefni er mestu skipta um framtíðarstefnumörkun á þessu sviði. Að sjálfsögðu yrði leitað til annarra aðila við gerð áætlunarinnar, eftir því sem aðstæður gæfu tilefni til. Sérstaklega er gert ráð fyrir að gætt sé samræmis milli orkumálaáætlunar og annarrar áætlunargerðar til langs tíma á vegum ríkisins.

Orkumálaáætlun er ætlað að setja fram leiðir til þess að fullnægja skynsamlegri orkunotkun þjóðarinnar á áætlunartímabilinu á sem hagkvæmastan hátt og gera í því sambandi grein fyrir nýtingu á orkulindum landsins, innflutningi á orkugjöfum og verðlagningu á orku. Þá skal í áætluninni sett fram fjármagnsþörf á áætlunartímabilinu og gerð grein fyrir því, hvernig staðið skuli undir fjármagnsútgjöldum, þ.e. afborgunum og vöxtum af lánsfé.

Þetta er það sem ég vildi sérstaklega taka fram um Þetta þýðingarmikla nýmæli í frv. þessu um það sem varðar langtímaáætlanir í orkumálum.

Það hefur verið hlutverk Orkustofnunar að annast þann þátt orkumálanna sem við kemur rannsóknum og skyldum viðfangsefnum. Verður að telja grundvallaratriði í framkvæmd orkumálanna, að þau verkefni, sem Orkustofnun er falið að sjá um, fari vel úr hendi. Hér er því mest um vert að Orkustofnun hafi sem best tök á að gegna sínu mikilvæga hlutverki. Þær tillögur, sem varða Orkustofnun, miða því í meginatriðum að því 1. að styrkja stjórn stofnunarinnar; 2. hnitmiða verksvið stofnunarinnar við rannsóknir á orkulindum landsins, áætlanagerð um orkubúskapinn og aðstoð og ráðgjöf um stefnumótun í orkumálum; 3. að efla áhrifavald stofnunarinnar og þátt hennar í heildarstjórn orkumálanna. — Með tilliti til þess er lagt til að Orkustofnun sé fengin þingkjörin stjórn á þann veg, að orkuráði sé ætlað það verkefni auk þess að hafa með höndum stjórn Orkusjóðs svo sem nú er. Þá gerir frv. ráð fyrir að sú starfsemi, sem nú heyrir undir Orkustofnun í einu eða öðru formi, en varðar ekki meginhlutverk stofnunarinnar, verði fengin öðrum aðilum í hendur. Hins vegar er Orkustofnun fengið í hendur veigamikið verkefni við gerð orkumálaáætlunarinnar, eins og ég hef áður getið um.

Þá vil ég taka fram, að frv. gerir ráð fyrir að meginraforkuvinnslan verði á hendi eins fyrirtækis, þar sem er Landsvirkjun. Jafnframt er svo ráð fyrir gert, að sjálfstæð orkufyrirtæki í hinum einstöku landshlutum geti einnig annast orkuvinnslu eftir því sem efni standa til.

Samkv. þessu gerir frv. ráð fyrir, að heildarstjórn raforkuvinnslunnar verði komið á fót í formi samvinnu, sem fyrirtækjunum, er hafa á hendi orkuvinnslu, er gert að hafa. Samvinna þessi lýtur að skipulegri yfirstjórn, er varðar byggingu orkuvera og samrekstur þeirra. Reglur um þetta efni mótast mjög af þeirri sérstöðu Landsvirkjunar að bera ægishjálm yfir öll orkuveitufyrirtæki landsins. Er og staða Landsvirkjunar mjög efld frá því sem verið hefur með því að henni er ætlað að gegna aðalhlutverki í yfirstjórn raforkuvinnslunnar, svo sem fram kemur í frv. með reglum um 1. skipun samvirkjunarráðs, 2. eignarhald að stofnlínum, sem ætluð er Landsvirkjun, og 3. samrekstur orkuveranna.

Ég hef hér í fáum orðum drepið á ein þýðingarmestu nýmælin í frv., en mér þykir ekki vera hægt að komast h já að víkja aðeins að öðrum þýðingarmiklum atriðum og vil ég einnig gera það í fáum orðum.

Samkv. frv. er reiknað með því, að fyrirtæki sveitarfélaga eða sameignarfélög ríkis og viðkomandi sveitarfélaga hafi á hendi raforkudreifingu og rekstur hitaveitna hvert í sinu umdæmi. Er þá gert ráð fyrir að þessi landshlutafyrirtæki geti einnig annast raforkuvinnslu, ef vilji er fyrir slíku og möguleikar. Með tilliti til þessa er gert ráð fyrir, að Rafmagnsveitur ríkisins verði lagðar niður jafnóðum og aðstæður leyfa. Leiðir þetta af því, að rétt þykir, eins og ég hef hér lagt áherslu á, að landshlutafyrirtæki hafi á hendi raforkudreifinguna. Verður þá ekki ástæða til að halda áfram rekstri Rafmagnsveitna ríkisins til orkuvinnslu, þar sem önnur orkufyrirtæki með aðild ríkisins verði fær um slíkt. Með tilliti til þessa er ríkisstj. veitt heimild samkv. frv. til að láta af hendi eignir Rafmagnsveitna ríkisins til annarra orkufyrirtækja í landinu með þeim skilmálum sem um semst. Framkvæmd þessa fer fyrst og fremst eftir því, hvort landshlutafyrirtækjum eða sveitarfélögum verði gert kleift að taka við eignum Rafmagnsveitna ríkisins í viðkomandi landshluta. Starfsemi Rafmagnsveitna ríkisins getur hvergi orðið lögð niður nema þar sem tryggt er að fyrir hendi sé annar aðili fær um að halda uppi þeirri þjónustu sem um er að ræða. Þess vegna verður þetta fyrirtæki ekki lagt niður í einum áfanga, heldur smám saman, eftir því sem ástæður leyfa.

Ýmis önnur nýmæli er að finna í frv., sem ástæða væri að drepa á, en ég skal aðeins nefna nýmæli eins og það, að gert er ráð fyrir að Jarðboranir ríkisins verði teknar undan rekstrarstjórn Orkustofnunar. Um það verður nánar rætt þegar hér kemur til umr. mál nr. 10, um Jarðboranir ríkisins, sem er fylgifrv. þess frv. sem við nú ræðum.

Þá er í frv. þessu gert ráð fyrir, að Orkustofnun sé leyst undan því hlutverki að annast hagnýtar jarðfræðilegar kannanir, m.a. vegna neysluvatnsleitar. Það er gert ráð fyrir öðrum aðilum til að sinna þessum störfum. Auk þess er gert ráð fyrir að svokölluð tækninefnd Orkustofnunar, sem að forminu til hefur verið við lýði, verði lögð niður því að hún hefur enga þýðingu haft.

Þá er Orkustofnun sérstaklega falið með beinum fyrirmælum að vinna að orkusparnaði. Ekki er í núgildandi löggjöf neitt að finna um þau efni, en við vitum öll, hve þessi þáttur orkumálanna er orðinn þýðingarmikill nú. Þá er það enn fremur nýmæli, að Orkustofnun er falið sérstaklega að uppfræða almenning um orkumál. Virðist full ástæða til þess að láta slík mál til sín taka.

Þá eru nýmæli og sérstök þýðingarmikil efnisatriði sem varða Orkusjóð. Það er gert ráð fyrir að Orkusjóður verði efldur eftir því sem með þarf til að tryggja framkvæmd orkumálaáætlunar. Þá er Orkusjóði fengin almenn heimild til að veita orkuveitulán til hitaveituframkvæmda, en samkv. lögum eru engin bein ákvæði um slíkt. Enn fremur er Orkusjóði heimilað í frv. þessu að veita einstaklingum lán til hitaveituframkvæmda. Engin heimild er til þess í núgildandi lögum, en þetta getur haft þýðingu, einkum í sveitum landsins þar sem einstakir bæir hafa möguleika á að virkja jarðvarma í eigin þarfir.

Þá er um að ræða nýmæli sem varðar fyrirkomulag í sambandi við lánveitingar Orkusjóðs. Það er gert ráð fyrir að orkuráð taki ákvarðanir um lánveitingar úr Orkusjóði í stað tillögugerðar til ráðh. Samkv. gildandi lögum er verksvið orkuráðs í dag að gera tillögur til ráðh. og þó að það sé venjan, ég hygg undantekningarlaus eða nær því, að ráðherrar samþykki það sem orkuráð leggur til í þessu efni, þá er valdið að forminu til hjá ráðh. Það þykir eðlilegt að þetta vald sé hjá stjórn sjóðsins, eins og venjulega er með lánasjóði, með sérstöku tilliti til þess að gert er ráð fyrir að stjórnin sé þingkjörin, kjörin af Alþingi.

Þá er eitt nýmæli enn, sem leiðir af breyttri tækni og auknum framförum í orkumálunum, og það er á þá leið, að rýmkaðar eru heimildir til að reisa raforkuver án leyfis stjórnvalda, en það þykir eðlilegt að ekki þurfi að leita til stjórnvalda til smávirkjana, jafnvel einkavirkjana, eins og nú er.

Það gæti verið ástæða til þess fyrir mig að koma inn á fleiri atriði, sem eru í þessu frv. og til nýmæla mega teljast eða eru mjög þýðingarmikil, en ég mun ekki gera það að þessu sinni. Ég vil aðeins vekja athygli á t.d. V. kaflanum, sem er um orkuveitur, þar sem eru mörg nýmæli frá gildandi lögum og sniðnir eru af þeir vankantar sem hafa komið í ljós varðandi ýmis tæknileg atriði, en þessi kafli hefur líka að sjálfsögðu ekki síst verið unninn af sérfræðingum og tæknimenntuðum mönnum á þessu sviði. Ég sé þó ekki ástæðu til þess að fara að ræða einstök atriði þessa kafla hér sérstaklega nema að gefnu tilefni.

Ég sagði í upphafi máls míns, að hér væri um að ræða frv. sem væri nú endurflutt. Og það er ekki einungis endurflutt í fyrsta sinn nú. Það er endurflutt í annað sinn. Þetta er í þriðja sinn sem mál þetta er lagt fyrir hv. deild. En það hefur ekki fengið afgreiðslu og það verður ekki komist hjá því að víkja nokkrum orðum að þeirri staðreynd. Hvernig stendur á því, að frv. sem svo vandlega hefur verið unnið hefur ekki fengið afgreiðslu á sama tíma sem það hefur ekki komið fram nein rökstudd gagnrýni á þeim helstu nýjungum og helstu efnisatriðum sem þetta frv. hefur að geyma? Hvernig stendur á því, að svo þýðingarmikið mál sem skipulag orkumálanna hefur ekki fengið afgreiðslu á sama tíma sem engar tillögur hafa komið fram sem varða heildarendurskoðun á þessari löggjöf, og þó er svo að sjá að allir séu sammála um að það þurfi að fara fram heildarendurskoðun á þessari löggjöf? Það er sannarlega von til þess að spurt sé að því hver er ástæðan.

Nú skal ég ekki fara að gerast æðifjölorður um það. Það er þeirra, sem hafa stöðvað afgreiðslu frv., að skýra það. En þó get ég ekki látið vera að víkja að ágreiningsatriðum sem hafa verið uppi varðandi skipulag orkumálanna. Það var ágreiningur, sem lengi var rætt um og mikið var deilt um, sem varðaði það, að annars vegar vildu sumir hafa eitt meginorkufyrirtæki og banna öðrum aðilum að annast raforkuframleiðslu, en hins vegar voru þeir sem gengu út frá því að allavega mundi vera eitt meginorkufyrirtæki, sem er fyrir hendi í formi Landsvirkjunar, en hins vegar væri ekki nein ástæða og mjög vafasamt og raunar óhægt að banna öðrum aðilum að virkja eða annast raforkuframleiðslu ef þeir vildu það og ef þeir gætu það.

Nú ætla ég ekki að fara að hafa langt mál um þennan ágreining, en ég held að það væri gott að menn gerðu sér grein fyrir því hver þessi ágreiningur var í hnotskurn eftir ítarlegar umræður um þessi mál í þeirri nefnd, sem vann að skipulagi orkumálanna og var skipuð af þáverandi iðnrh., Gunnari Thoroddsen, 1977 og skilaði áliti haustið 1978, — áliti sem þetta frv. er byggt á, en nefndin klofnaði út af ágreiningnum um hvort það ætti að vera eitt raforkuvinnslufyrirtæki í landinu og banna öðrum að virkja. Og hver var ágreiningurinn í hnotskurn? Þeir sem lögðu áherslu á eitt orkufyrirtæki vildu lögfesta það, að ekkert fyrirtæki í landinu mætti virkja stærra en 5 megawött. Við hinir, sem vildum hafa þetta frjálst, sögðum sem svo: Ef það eru aðilar í landinu sem treysta sér til þess að virkja stærra en 5 megawött, þá á þeim að vera það heimilt og það eru engin rök til þess að banna slíkt. Um þetta var ágreiningur.

Ég hef alltaf litið svo á að það væri ekki hægt að standa á þessu sjónarmiði, að það megi ekki leyfa neinum öðrum í landinu, nema einu fyrirtæki, Landsvirkjun, að virkja stærra en 5 megawött. Það er útilokað að hægt sé að standa á þessu og ágreiningur um þetta efni er alger gerviágreiningur. Það væri ástæða til þess að spyrja: Hvers vegna er haldið uppi slíkum gerviágreiningi? Það verður ekki hægt og í raun og veru er það ekki hægt í dag með neinu móti vegna þess að á þessum tíma, sem liðinn er frá því að það var ágreiningur í þessari skipulagsnefnd orkumála, hefur þróunin orðið sú, staðreyndin er sú, að þetta þrönga sjónarmið fær ekki staðist. Síðan hefur það skeð, að öðrum aðilum en Landsvirkjun hefur verið veitt heimild til að virk ja stærra en 5 megawött. Það hafa verið samþykkt lög á Alþingi um að veita Hitaveitu Suðurnesja heimild til að virkja 10 megawatta virkjun. Það hefur líka verið veitt heimild til sjóefnaverksmiðju til að virkja stærra en 5 megawött. Og dettur nokkrum í hug að það hefði verið hægt að standa á móti þessum ákvörðunum? Það reyndi enginn til þess að gera það. Allt sem menn segja og vilja viðhalda um ágreining út af þessu atriði, að binda virkjunarheimildir til annarra en Landsvirkjunar við 5 megawött, er fullkomin fáviska, ég leyfi mér að segja það. Og mér þætti gott að heyra ef hæstv. ráðh. ætlar að halda þessu fram hér enn í dag eftir þá þróun sem hefur orðið í þessum málum og eftir að hann er sjálfur búinn að standa að því að heimila virkjun stærri en 5 megawött fyrir Hitaveitu Suðurnesja og sjóefnaverksmiðjuna. Ég trúi því ekki fyrr en ég heyri.

Þá er það annað atriði sem menn hafa viljað gera að ágreiningsefni í sambandi við þetta frv. að því er virðist. Því hefur verið haldið fram að það væri ekki hægt að samþykkja þetta frv. vegna þess að það væri ekki í samræmi við þróunina í landinu og í því sambandi hefur verið bent á fyrirætlanir, sem nú eru orðnar að staðreynd, um að Laxárvirkjun og Landsvirkjun sameinuðust. Það er algerlega út í hött að halda því fram, að það hefði ekki verið hægt alveg jafnt þó að það hefði verið búið að samþykkja þetta frv. Það liggur meira að segja ljóst fyrir, að þetta frv. felur í sér rammalöggjöf um skipulag orkumálanna og sú rammalöggjöf er á þann hátt, að það geta verið fleiri eða færri orkufyrirtæki í landinu eftir því sem menn vilja, eftir því sem þykir hagkvæmt, og í grg. fyrir þessu frv. hefur alla tíð verið tekið fram að skipulag það, sem þetta frv. leggur til, rúmar ekki einungis að það geti verið stofnuð landshlutafyrirtæki til raforkuvinnslu, heldur einnig að það séu lögð niður slík fyrirtæki, ef fyrir hendi eru, og það sé hægt að sameina Laxárvirkjun og Landsvirkjun ef vilji er fyrir hendi. Allt þetta rúmast innan þess ramma sem þetta frv. gerir ráð fyrir og hefur alla tíð verið lögð áhersla á þetta. Samt virðast menn, og þá á ég fyrst og fremst við hæstv. iðnrh., leitast við að hengja hatt sinn á slíka fjarstæðu sem þá, að ekki sé hægt að samþykkja þetta frv. vegna þess að það útiloki sameiningu orkufyrirtækja. Þetta er algerlega út í hött. Þetta sjá allir, ef þeir lesa frv. Það er augljóst mál.

Þessar ástæður, 5 megawatta mörkin og fyrirslátturinn um það að ekki sé hægt að sameina orkufyrirtæki ef þetta frv. verður að lögum, eru algerlega tilhæfulausar og haldlausar. En á þessum forsendum, ef forsendur skyldi kalla, leyfa stjórnvöld sér og hæstv. ráðh. að liggja þversum í götu fyrir öllum framförum í skipulagsmálunum. Og hæstv. ráðh. hefur talað um að frv. þetta væri í raun og veru ótækt. Hann hefur ekki leitast við að færa nokkur rök fyrir þessu, nema ef vera skyldi þetta með 5 megawatta mörkin og það sem ég vék að um sameiningu Laxárvirkjunar og Landsvirkjunar. Nú vil ég leyfa mér að biðja hæstv. ráðh. — ég held að það verði ekki lengur komist hjá því að svara — að svara vissum spurningum.

Ég vil spyrja hæstv. iðnrh.: Er það ótækt að gert skuli vera ráð fyrir að það verði gerð ítarleg orkumálaáætlun til 10 ára, eins og frv. gerir ráð fyrir, eða er það æskilegt? Hæstv. ráðh. hlýtur að hafa skoðun á þessu. Ég spyr enn fremur hæstv. iðnrh.: Er það ótækt að sett sé stjórn yfir Orkustofnun, þingkjörin stjórn, eins og þetta frv. gerir ráð fyrir, eða er það æskilegt? Vill hæstv. ráðh. tjá sig um þetta þýðingarmikla atriði? Og enn: Er það ótækt að stefna að því að styrkja Orkustofnun, hnitmiða störf Orkustofnunar við rannsóknir og ráðgjöf í orkumálum og efla áhrifavald stofnunarinnar, eins og þetta frv. gerir ráð fyrir? Er það ótækt eða er eitthvert vit í því? Vill hæstv. ráðh. tjá sig um þetta efni? Og ég spyr áfram: Er það ótæk stefna, að gert sé ráð fyrir að Orkusjóður verði stórefldur eða kann nú að vera að það sé einhver skynsemi í því að efla Orkusjóð? Ég vænti þess að hæstv. ráðh. tjái sig um þetta. Ég spyr enn fremur hæstv. ráðh. hvað sé ótækt við að raforkudreifingin verði í höndum sveitarfélaga eða samtaka þeirra, eins og þetta frv. gerir ráð fyrir. Vill hæstv. ráðh. gera grein fyrir því, hvað hann finnur að þeirri skipan?

Ég gæti haldið áfram að spyrja hæstv. ráðh., en ég ætla að láta staðar numið í bili. Ég hygg að ég sé nú búinn að gera heiðarlega tilraun til þess að fá efnislegar umr. um þetta mál og hæstv. ráðh. geti ekki skotið sér undan því að ræða þessi mál efnislega — þessa þætti, sem ég hef sérstaklega spurt um. Ég er í raun og veru að vænta þess, að það verði ekki enn á ný leikinn sá leikur — ég segi: að undirlagi hæstv. ráðh. — að koma í veg fyrir að þetta frv. hljóti þinglega meðferð í þetta sinn. Hér er um það stórt mál að ræða að hæstv. ráðh. er ekki stætt á að svæfa það endalaust og á sama tíma að neita því ekki að það sé þörf á því nú að setja nýja heildarlöggjöf um skipulag orkumálanna.

Herra forseti. Að lokinni þessari umr. leyfi ég mér að fara þess á leit að frv. verði vísað til hv. iðnn.