09.11.1982
Sameinað þing: 15. fundur, 105. löggjafarþing.
Sjá dálk 496 í B-deild Alþingistíðinda. (281)
17. mál, verktakastarfsemi við Keflavíkurflugvöll
Árni Gunnarsson:
Herra forseti. Það er augljóst, að fleiri hv. þm. en 11. þm. Reykv. er ekki ljóst hvaða mál eru á dagskrá hér og skal ég ekki ræða það nánar.
Þessi till., sem hér er til umr. um úttekt á verktakastarfsemi við Keflavíkurflugvöll og hlýtur að beinast að fyrirtækinu Íslenskir aðalverktakar, hefur komið hér fram á þinginu áður. Við leyfðum okkur að flytja hana hér áður, ég og hv. þm. Vilmundur Gylfason, í trausti þess að þingið hefði þann stórhug og þann dug í sér að þora að takast á við þetta fyrirtæki, sem hefur líklega haft meira umleikis fjármunalega séð en nokkurt annað fyrirtæki sem hefur starfað á Íslandi. Ég vil benda mönnum á, sem eru andsnúnir því að þetta fyrirtæki og rekstur þess verði skoðað dálítið, að sjáanlegur hagnaður þessa fyrirtækis, sem stendur uppi á Ártúnshöfða í Reykjavík, er 24 þús. fermetra bygging. Ég endurtek: 24 þús. fermetra bygging. Þetta fyrirtæki hefur leigt íslenska ríkinu stóran hluta af sínu húsnæði, þar sem hefur verið Tækniskóli Íslands. Bifreiðaverkstæði Sambands ísl. samvinnufélaga er í hluta af þessu húsnæði. Og hvers vegna? Til samanburðar, ef menn átta sig ekki á stærðinni, get ég getið þess, að hin umdeilda flugstöð á Keflavíkurflugvelli er ekki nema 14 þús. fermetrar. Menn þurfa að skynja stærðina betur og þær peningaupphæðir sem hljóta að hafa farið í þessi hús. Ég held, herra forseti, að það væri virkilega vel þess virði að athuga hve miklir fjármunir hafi runnið í gegnum þetta fyrirtæki á síðustu árum og áratugum og framreikna þá fjármuni til verðlags í dag. Ég er sannfærður um að þar eru á ferðinni tölur sem jaðra við að vera öll fjárlög íslenska ríkisins, ef ekki meira.
Ég held líka að menn skyldu átta sig á því, að það sem þarna hefur gerst minnir að mörgu leyti á það sem gerðist í síldarbæjunum forðum daga. Það eru nefnilega ekki bæjarfélögin í kringum Keflavíkurflugvöll sem hafa haft tekjurnar af verktakastarfseminni á Keflavíkurflugvelli. Það eru menn í henni Reykjavík. Þ.e. það fjármagn sem sveitarfélögum þarna í kring hefði kannske komið vel. Eins og kannske ógeðfellt er að hugsa um það mál í heild, þá eru það menn í Reykjavík, sem hafa fengið það fjármagn. Þetta minnir á síldarbæina þegar spekúlantarnir komu og hirtu allan hagnaðinn af síldveiðunum úti á landi, og er ástæðulaust að rekja það mál.
Mig langar í þessu sambandi að minna á það, að þingið tók á sig rögg 1978 og samþykkti að gerð yrði athugun á einu tilteknu máli, þar sem talið var að hefði verið farið illa með einstakling í þjóðfélaginu. Það leiddi til þess að leiðrétt var mikið misrétti, þó svo ég telji að sú leiðrétting sé ekki að fullu gengin í gildi.
En ég vil einfaldlega segja við þá menn sem eru á móti því að við skoðum þessa stofnun, sem er búin að lifa í þessu landi öll þessi ár án þess að nokkur einasti aðili hafi raunverulega hugmynd um hvað gerist þar á bak við tjöldin, menn sem eru á móti því að sú stofnun verði skoðuð dálítið, það verði kannað hvað hefur orðið um þær gífurlegu fjárhæðir sem það fyrirtæki hefur haft með að gera, í langflestum tilvikum bandarískt fjármagn sem hefur farið til framkvæmda á Keflavíkurflugvelli: Hvar er eftirlitið með þessari stofnun, þessu fyrirtæki? Það er í raun og veru ekki til. Það er hægt að minna á gömul mál, sem upp hafa komið hér á Íslandi varðandi fyrirtæki sem eftirlitslítið hafa haslað sér hér völl. Það er hægt að minna á þau mál og hvað kom upp þegar þau voru skoðuð ofan í kjölinn. Ég vil bara segja við hv. þm. hér inni, að ef þeir ekki hafa döngun í sér til að heimila athugun á þessari verktakastarfsemi er það vegna þess einfaldlega að þeir óttast að það muni eitthvað koma í ljós sem ekki henti ákveðnum öflum í þjóðfélaginu. Ég treysti því og ég trúi því raunar, að á þinginu séu nægilega margir menn sem hugsa í þá veru að það sé bæði eðlilegt og sjálfsagt að skoða fjármálastarfsemi þessa fyrirtækis. Ef svo er ekki er illa farið fyrir þessu þingi.