10.03.1983
Sameinað þing: 62. fundur, 105. löggjafarþing.
Sjá dálk 2853 í B-deild Alþingistíðinda. (2825)

Um þingsköp

Árni Gunnarsson:

Herra forseti. Ef einhverjum hv. þm. dettur í hug að mér hafi verið hlátur í hug þegar ég hóf þessa umr. hér um þingsköp, þá er það mikill misskilningur. Ég tel hér mikið alvörumál á ferðinni og ég fagna því að hæstv. forsrh. er kominn í salinn. Ég segi það eins og er, ég gerði tvær tilraunir í morgun til þess að ná sambandi við hann. Það tókst ekki og þá reiknaði ég með því að hér gerðist það sem þingsköp gera ráð fyrir, að menn sinni mætingarskyldu sinni.

Ég verð að segja það eins og er, að mér hefur runnið ákaflega í skap hér síðustu daga þegar ég hef fylgst hér með þingstörfum og hver frsm. n. á fætur öðrum kemur hér upp og lýsir yfir því, að hann hafi og hans nefnd varla haft tíma til þess að athuga nógu rækilega, kanna nógu vel þau frv. sem nefndir hafa fengið til afgreiðslu. Þetta geta menn lesið í útskrift af ræðum manna hér. Og þetta gengur auðvitað ekki. Á sama tíma svífur þingið hér í einhverju tómarúmi vegna þess að engin svör fást um það hvenær hæstv. forsrh. ætlar að rjúfa þing og boða til kosninga. Við heyrum í véfréttastíl í fjölmiðlum að það sé hugmynd, það kunni að vera o.s.frv.

Það er þess vegna, herra forseti, að ég hóf þessa umr. Það er þess vegna að ég geri kröfu til þess að við fáum að vita um þessa einföldu hluti, svo að menn geti skipulagt störf sín samkv. því. Þetta er virðingarleysi gagnvart 60 mönnum, sem hér sitja á löggjafarsamkundu þjóðarinnar, að greina þeim ekki frá jafneinföldum hlutum og þeim hvenær á að senda þing heim og hvenær á að halda kosningar í landinu. Það er nefnilega þjóð utan veggja þessa húss sem hefur líka áhuga á þessum málum og vill fá að vita hvað er að gerast og hvað á að gerast í náinni framtíð. Ef menn í raun og veru eru að hugsa fyrir virðingu þessarar stofnunar, þá er öllum fyrir bestu að þessi mál séu á hreinu.

Herra forseti. Ég verð að segja það að mér finnst ekki sómasamlegt, eins og ég sagði hér í upphafi, að þm. haldi áfram störfum á sama eða svipuðu róli og verið hefur undanfarna daga, án þess að þeir fái svör við spurningum, svör sem þeir eiga fullan rétt á að fá, lýðræðislegan, stjórnarfarslegan rétt. Þetta gengur ekki svona lengur. Þessi svör verðum við að fá. Ég skora á hæstv. forsrh., að greina nú þinginu írá því hvenær hann ætlar að senda það heim og hvenær hann ætlar að láta kosningar fara fram. Þetta mál kemur ekki okkur einum við, sem ætlum í framboð, heldur þeim sem hyggjast taka þátt í kosningunum líka.