10.03.1983
Sameinað þing: 62. fundur, 105. löggjafarþing.
Sjá dálk 2854 í B-deild Alþingistíðinda. (2826)

Um þingsköp

Forsrh. (Gunnar Thoroddsen):

Herra forseti. Út af þessari fsp. hv. þm. Árna Gunnarssonar, sem er nú flutt hér af ástæðulausum þjósti, er þess að geta að grundvöllurinn að þessari spurningu er náttúrlega algerlega rangur og rökfærslum snúið við. Varðandi kjördag hefur það verið tilkynnt opinberlega fyrir alllöngu að hann verði eigi síðar en 23. aprílmánaðar. Ég tel að því sé slegið föstu að hann verði 23. apríl. Að vísu hafa núna undanfarna daga komið fram óskir um að þessu verði ekki endanlega slegið föstu meðan ekki er séð hvenær Alþingi ljúki. Ég hef gengið út frá því að það yrði 23. apríl.

Varðandi hitt atriðið, hvenær þing verði rofið og þingstörfum hætt, þá munu vera líklega um tvær vikur að ég ætla síðan ég ræddi um það við forseta þingsins alla þrjá að ríkisstj. vildi stefna að því að ljúka þingi föstudaginn 11. mars eða laugardaginn 12. mars. Forsetarnir allir voru sammála því að vinna á þessum grundvelli og það hefur verið gert.

Ég taldi ekki rétt að tilkynna þinginu úrslitakosti um það hvaða dag þingstörfum yrði lokið, eins og mér skilst að hv. þm. Árni Gunnarsson krefjist nú að ég geri og hafi gert fyrir löngu. Hann telur það virðingarleysi fyrir Alþingi af minni hálfu að gera slíkt ekki. Mér finnst þessum röksemdum gersamlega snúið við. Það mætti segja að það væri virðingarleysi og óviðfelldin vinnubrögð gagnvart Alþingi að gera slíka úrslitakosti, að slíta þingi og rjúfa á tilteknum degi með löngum fyrirvara, áður en vitað er hvar þingmál eru á vegi stödd sem þurfa fram að ganga.

Nú í dag horfir svo um þingmál, sem fram þurfa að ganga, — ég get nefnt þau, það er frv. um kjördæmabreytingu, lánsfjárlög, vegáætlun og veggjald, svo að þau helstu séu nefnd, sem ríkisstj. hefur lagt áherslu á að fá afgreidd, — að það er engan veginn útilokað að þeim gæti orðið lokið í dag og á morgun.

Það hefur komið inn í þetta dæmi að þingflokkur sjálfstæðismanna hefur skorast undan þingfundum á laugardaginn kemur, laugardaginn 12. mars, vegna fundar sem flokkurinn hefur boðað fyrir alllöngu. Það er gert ráð fyrir því í þingsköpum að eldhúsumræður fari fram á síðari hluta þings. Að vísu hefur það komið fyrir að þing hefur verið rofið áður en eldhúsumræður færu fram og þá hafa þær fallið niður af sjálfu sér. Það var ætlunin að eldhúsumræður yrðu í kvöld, fimmtudagskvöld hinn 10. mars og útvarpað. Samkv. þingsköpum eru formenn þingflokka aðilar að ákvörðunum um útvarpsumræður. Úr þeim hópi munu hafa komið fram óskir um að þær umr. yrðu eftir helgi, á mánudag, og yrði sjónvarpað. Þannig standa þessi mál nú. Það hefur verið stefna og vilji ríkisstj. og þar með forsrh. að haga þinglausnum í samræmi við það hvernig málum miðar áfram og með það fyrir augum að reyna að halda sæmilegum friði um þessi mál. Ég segi: Þannig standa málin og mér finnst málum alveg snúið við með kröfu hv. þm. Árna Gunnarssonar um það að fyrir fram hefði átt að setja úrslitakosti um dagsetningu í þessu efni.