10.03.1983
Sameinað þing: 62. fundur, 105. löggjafarþing.
Sjá dálk 2855 í B-deild Alþingistíðinda. (2829)

Um þingsköp

Ólafur Ragnar Grímsson:

Herra forseti. Hv. þm. Árni Gunnarsson lýstir hér almennri reglu, sem hann taldi að hefði verið við lýði og ætti að vera við lýði, að forsrh. á hverjum tíma, hvort sem hann heitir Gunnar Thoroddsen eða hvað svo sem hann heitir, eigi að vera verkstjóri í störfum þingsins. Ég hef aldrei heyrt neinn mann staðfesta þessa kenningu. Ég er algerlega andvígur þessari kenningu og fel að hægt sé að færa sterk rök að því að ýmsar grundvallarreglur í okkar stjórnskipun séu andstæðar slíkri kenningu. Hitt er svo rétt, að það hefur oft og tíðum gerst áður fyrr, þegar sitjandi forsrh. var óumdeildur foringi í sínum flokki og sá flokkur var sterkt og ráðandi afl í þinginu, að slíkur maður hefði mikil áhrif á gang mála í þinginu.

En ég vildi, herra forseti, andmæla þeirri kenningu og ekki láta þessari umr. lokið hér án þess að ítreka, bæði vegna þess sem gerst hefur á undanförnum árum og þess sem kann að gerast í framtíðinni, að ég er algerlega ósammála þeirri kenningu að forsrh. á hverjum tíma sé sjálfskipaður verkstjóri starfa í þinginu. Það eru forsetar þingsins og flokkarnir, í samvinnu þeirra á millum, sem eiga að annast þá verkstjórn, en þó fyrst og fremst þeir forsetar sem til þess eru kjörnir, aðallega forseti Sþ., sem hefur auk þess þann sérstaka sess í stjórnskipun lýðveldisins að vera jafngildur hæstv. forsrh. sem handhafi forsetavalds í lýðveldinu.