10.03.1983
Sameinað þing: 62. fundur, 105. löggjafarþing.
Sjá dálk 2857 í B-deild Alþingistíðinda. (2832)
172. mál, varnir vegna hættu á snjóflóðum og skriðuföllum
Félmrh. (Svavar Gestsson):
Herra forseti. Eins og hv. þm. Þorv. Garðar Kristjánsson gat um var afgreidd hér þáltill. 2. apríl 1981 um skipulag varna gegn tjóni af völdum snjóflóða og skriðufalla. Þessi mál hafa lengi verið til meðferðar í stjórnkerfinu, löngu áður en ég kom þar og áður en sú till. var flutt sem samþykkt var og hér var vitnað til. M.a. stafar það af því, að það hefur í raun og veru ekki verið nægilega ljóst hvar í stjórnkerfinu þessi málaflokkur ætti að vera. Því miður hefur það komið fyrir að deilur um slíkt hafa stundum tafið það að tekið væri á málum sem skyldi. Þó að þessar deilur séu ekki háværar, þá eru þær engu að síður þannig að þær geta stundum orðið til að tefja mál.
Þegar kemur að máli eins og snjóflóðavörnum, þá eru margir aðilar sem telja sig sjálfkjörna til að hafa þar nokkra forustu eða a.m.k. hönd i bagga um alla framkvæmd. Ég vil nefna aðila eins og t.d. Almannavarnir ríkisins, Skipulag ríkisins, Viðlagatryggingu Íslands, Veðurstofu Íslands, Raunvísindastofnun Háskólans, Vegagerð ríkisins og Rannsóknastofnun byggingariðnaðarins.
Ég fór fram á það á síðasta ári, þrátt fyrir þessa óvissu, við ráðuneytisstjórann í félmrn. að hann tæki saman fyrir mig skýrslu um þessi mál. Það kemur fram í þessari skýrslu, sem er dags. 21. des. 1982, að allt frá árinu 1975, í ársbyrjun, hafa þessi mál verið á dagskrá hér og þar í okkar stjórnkerfi. Ýmsar ákvarðanir hafa verið teknar, sumar þannig að þær hafa haft veruleg áhrif, einkum varðandi gagna- og upplýsingasöfnun og rannsóknir, en að öðru leyti hefur ekki verið fjallað um málið með heildstæðum hætti svo sem þurft hefði að vera.
Hinn 7. mars 1978 var fsp. um þessi mál á dagskrá á hv. Alþingi. Í svari, sem þáv. hæstv. félmrh., Gunnar Thoroddsen, hafði undirbúið við fsp. frá Tómasi Árnasyni, núv. hæstv. viðskrh., segir:
„Þessi þáltill. var send félmrn. 1977, enda þótt telja verði að réttara hefði verið að senda hana þeim ráðuneytum sem Rannsóknaráð ríkisins, Almannavarnir, vegamál og Veðurstofa heyra undir.“ Þannig var það skoðun þáv. hæstv. félmrh. að eðlilegra hefði verið að vista málið í þessum ráðuneytum. Af þessum sökum er það vafalaust sem þáv. ríkisstj., ríkisstj. Geirs Hallgrímssonar, tók um það ákvörðun vorið 1978 að vista þessi mál í samgrn. Það var gert og kemur það fram m.a. í umr. um þessi mál sem síðan urðu.
Á Alþingi 1980 fylgdi hv. þm. Helgi Seljan í nóvembermánuði úr hlaði till. til þál. um snjóflóð og snjóflóðavarnir, sem síðan var samþykkt vorið 1981 og hér var vitnað til í máli hv. fyrirspyrjanda. Þrátt fyrir þá óvissu sem uppi var um þessi mál taldi ég engu að síður rétt að félmrn. færi rækilega yfir þau. Ráðuneytisstjórinn í félmrn. taldi hins vegar mikið vafamál að þessi mál ættu heima í því rn. og segir í þessari skýrslu til mín að það sé í raun og veru aðeins í einu tilviki að þessi mál snerti félmrn. beint. Það sé í sambandi við og samkv. nýju byggingarlögunum, sem kveða á um tilteknar skyldur byggingarfulltrúa í þessu efni, en nýju byggingarlögin eru frá 1979.
Þetta vildi ég nefna, herra forseti, í upphafi máls míns. En eins og ég gat um óskaði ég eftir þessari skýrslu frá ráðuneytisstjóranum í félmrn. og í framhaldi af því kallaði ég saman fund í rn. seint í janúarmánuði eftir að hafa kynnt málið í ríkisstj. Þann fund, sem ég kallaði þar saman, sóttu fulltrúar frá þeim stofnunum sem ég las upp hér í upphafi, auk þess sem þar var fulltrúi frá Sambandi ísl. sveitarfélaga. Á fundinum var það niðurstaða okkar, sem hann sátum, að fara fram á það við Vilhjálm Lúðvíksson, forstjóra Rannsóknaráðs ríkisins, að hann tæki saman yfirlit um vinnubrögð til að bæta varnir gegn snjóflóðum og skriðuföllum. Skilaði Vilhjálmur þessu plaggi til mín 30. jan. s.l. þar sem er að finna ítarlegar tillögur um þessi mál.
Eftir að skýrsla Vilhjálms Lúðvíkssonar lá fyrir var enn kallaður saman fundur þeirra aðila sem hér um ræðir. Niðurstaða fundarins, sem var haldinn 4. febr. 1983, var sem hér segir:
„Í umr. kom m.a. fram hjá fundarmönnum að ekki mundi vera um vöntun á lögum að ræða. Fremur væri spurning um framkvæmd og skipulag. Talið er óhjákvæmilegt að mikið af varnar- og athugunarstarfi verði að vera hjá heimamönnum, en þó ekki eingöngu, þar sem það hefði sýnt sig að um gæti verið að ræða mikla fjárhagshagsmuni einstakra aðila.“ Ég er að lesa hér orðrétta fundargerð sem ég tek fram að er ekki samin af mér.. „Varðandi kort yfir svæði þar sem einhvern tíma hefðu fallið snjóflóð væri ekki að finna heimildir um aðra staði en þar sem byggð hefði verið, en nú hefði byggð víðast aukist mjög og skipulögð svæði þar sem aldrei hefði verið byggt áður.“
Að lokum var samþykkt að leggja til við ráðh. að stofnuð yrði nefnd eða skipaður starfshópur, sem safnaði og kannaði lög sem í gildi eru og í framhaldi af því gerði tillögur um endurskoðun og samræmingu eða heildarlöggjöf og var Vilhjálmi Lúðvíkssyni falið að gera tillögur, sem aðilar afgreiddu síðan á fundi mánudaginn 7. febr. 1983.
Niðurstaða þess fundar var svo uppistaða í samþykkt, sem ríkisstj. gerði að minni till. 10. febr., en fréttatilkynning um málið var send út 28. febr.
Niðurstaða fundarins var þessi: Að skipuð verði nefnd til að hafa forustu um að efla varnir gegn snjóflóðum í landinu. Hlutverk nefndarinnar verði að samræma störf opinberra aðila í þeim tilgangi að koma svo sem unnt er í veg fyrir tjón og slys af völdum snjóflóða og skriðufalla. Nefndina skipi fulltrúar eftirtalinna sex aðila: 1. Almannavarna ríkisins. 2. Sambands ísl. sveitarfélaga. 3. Skipulags ríkisins. 4. Viðlagatryggingar Íslands. 5. Veðurstofu Íslands. 6. Raunvísindastofnunar Háskólans. 7. Vegagerðar ríkisins. 8. Rannsóknastofnunar byggingariðnaðarins.
Nefndinni verði falið að leita samráðs við sveitarfélög og aðra aðila sem hagsmuna eiga að gæta eða hlutverki gegna í þessu efni. Verði nefndinni ætlað að hafa forustu um framkvæmdir á þeim sviðum sem m.a. eru rakin í ályktun Alþingis um heildarlöggjöf, skipulag og varnir gegn hættu af snjóflóðum og skriðuföllum. Áhersla verði lögð á að framkvæmdir á einstökum liðum þál., sem samþykkt var á Alþingi 2. apríl 1981, hefjist strax á grundvelli gildandi laga, en leiði störf nefndarinnar í ljós þörf á breytingum á lögum eða setningu nýrra laga geri hún tillögur þar um. Gert er ráð fyrir að í byrjun verði fyrst og fremst um skipulags- og undirbúningsstörf að ræða á vegum nefndarinnar. Verði nefndinni falið að gera heildaráætlun um aðgerðir í þessu efni með tillögum um tímamörk til framkvæmda og fjármögnunar. Nefndin skili fyrstu yfirlitstilhögun fyrir septemberlok 1983. Nefndinni verði heimilað að ráða sérstakan starfsmann til að vinna með nefndinni.
Þessi till. var samþykkt i ríkisstj. 10, febr. s.l. og í samræmi við samþykkt ríkisstj. hef ég skrifað þeim stofnunum sem hér voru nefndar. Ég hef beðið þær um tilnefningar og ég hef einnig ritað fjmrn. sérstakt bréf og óskað eftir því, að viðkomandi nefnd fái að ráða sér starfsmann strax og hún getur hafið störf eftir að hún er fullskipuð. Það er gert ráð fyrir því að nefndin skili af sér störfum í septembermánuði n.k. Tilgangurinn með því er sá; að þá geti legið fyrir tillögur vegna fjárlaga ársins 1984, því að hér er fyrst og síðast um að ræða fjárhagsmál. Það verður að tryggja með einhverjum hætti að komið verði á farvegi fyrir sveitarfélögin til að leita til, ef þau þurfa á stuðningi að halda við að koma upp snjóflóðavörnum. Ég tel að það sé fjárveitingahliðin á þessu máli sem er langsamlega stærst. Mér sýnist, eftir að hafa farið vel og rækilega yfir lög og reglur um þetta, að í sjálfu sér þurfi hér ekki ný lög, ef Alþingi samþykkir fjárveitingar í þessu skyni á fjárlögum hverju sinni samkv. áætlun, sem þá yrði hugsanlega gerð að fengnum tillögum slíkrar nefndar. Ef hins vegar nefndin kemst að þeirri niðurstöðu að nauðsynlegt sé að setja lög, sem hún hefur ekki gert til þessa, þá held ég að hafa verði hraðan á og setja þau strax á haustþingi svo að hérna verði alveg skýr ákvæði um það með hvaða hætti eigi að fjármagna varnir gegn snjóflóðum og skipuleggja þær.
Í sambandi við þetta mál hefur verið bent á að enn sé hugsanlega eitthvað um það í landinu að byggt sé á hættusvæðum. I því efni vil ég bara taka það fram að í nýju byggingarlögunum frá 1979, sem núv. hæstv. forsrh. beitti sér fyrir að sett voru, eru alveg ótvíræð ákvæði sem heimila byggingarnefndunum að banna að byggt sé á slíkum svæðum. Spurningin er hér því frekar um framkvæmd, eins og segir í áliti starfshópsins, sem ég nefndi áðan, en um skort á lagafyrirmælum.
Herra forseti. Ég vænti þess að ég hafi svarað þeirri fsp. sem til mín var beint.