10.03.1983
Sameinað þing: 62. fundur, 105. löggjafarþing.
Sjá dálk 2861 í B-deild Alþingistíðinda. (2835)
172. mál, varnir vegna hættu á snjóflóðum og skriðuföllum
Fyrirspyrjandi (Þorv. Garðar Kristjánsson):
Herra forseti. Ég verð nú að segja það, að mér kom nokkuð einkennilega fyrir eyru tónninn í ræðu hæstv. ráðh. Hann var að tala um að það þyrfti að laða fram jákvæða niðurstöðu. Geta ekki allir verið sammála um það? Hvaða tilefni gaf ég til þess að leggja sérstaka áherslu á þetta? Jú, hann sagði að ég hefði verið að leggja út á verri veg það sem hann hefði verið að segja og ég hefði gert þá óhæfu að nefna nafn eins manns og hann spyr: Hvers vegna er hann nefndur sérstaklega? Skýringin er sú, að hann nefndi ekki nema einn mann á nafn. Og ég var hvorki að nefna nafn þessa manns til hnjóðs eða heiðurs ráðh. Þetta voru bara upplýsingar sem ráðh. kom með.
En aðalatriðið í þessu er það, að ég sagði að ég efaðist um að það væri rétt að sefja ekki heildarlöggjöf. En ég hefði átt að haga orðum mínum öðruvísi og geri það að gefnu tilefni nú. Ég spyr hæstv. ráðh.: Ætlar hann að hunsa vilja Alþingis? Það er ekki hæstv. ráðh. að ákveða hvort frv. verði undirbúið og lagt fyrir Alþingi. Alþingi hefur þegar ákveðið þetta og ég vil fá svör við því hvort hæstv. ráðh. og ríkisstj. ætli ekki að hlíta ákvörðun Alþingis eða vilja Alþingis í þessu efni.