10.03.1983
Sameinað þing: 62. fundur, 105. löggjafarþing.
Sjá dálk 2862 í B-deild Alþingistíðinda. (2838)
Um þingsköp
Forsrh. (Gunnar Thoroddsen):
Herra forseti. Þeirri fsp. sem hér er um að ræða er beint til forsrh., en hún snertir forsrn. ekki nema að litlu leyti heldur önnur rn. Ég harma það að ekki hefur tekist ennþá að taka saman svar við þessari fsp. En það er staðreynd að það hefur reynst meira mál að svara þessu en gert var ráð fyrir. Má því í þessu sambandi líka minna á það, af því að hv. fyrirspyrjandi nefndi þingsköp í því sambandi, að það er skýrt tekið fram í þingsköpum að fsp. eiga að vera með þeim hætti að hægt sé að svara þeim í stuttu máli. Mér þykir þetta leitt, en ástæðan til þess að ég geri ekki ráð fyrir að svara fsp. nú er að svarið var ekki tilbúið.