10.11.1982
Efri deild: 9. fundur, 105. löggjafarþing.
Sjá dálk 510 í B-deild Alþingistíðinda. (290)
73. mál, stjórn flugmála
Eiður Guðnason:
Herra forseti. Aðeins fáein orð. Þar sem ég á sæti í þeirri nefnd sem fær þetta mál til umfjöllunar sé ég ekki ástæðu til að hafa um mjög langt mál hér eða fara um það mörgum orðum, en mér sýnist hins vegar í fljótu bragði við lestur og skoðun þessa frv. að það horfi ekki endilega allt til mikilla bóta sem þar er kveðið á um. Sumt gerir það vissulega.
Í 2. gr. þessa frv. er fjallað um flugmálastjóra og þau skilyrði sem sá embættismaður skal uppfylla. Satt best að segja sýnist mér það orðað svo almennum orðum að það hafi nánast enga þýðingu. Hér segir, með leyfi forseta: „Flugmálastjóri skal hafa almenna og góða þekkingu á flugmálum og umtalsverða reynslu af störfum sem tengjast flugmálum“. Ég held að svo almennt orðuð skilyrði um starfshæfni hafi nánast enga þýðingu, sé eins gott þá að sleppa þeim eða gera mun ákveðnari kröfur, sem vel gæti komið til greina.
Í II. kafla laganna, sem fjallar um flugráð, sýnist við fyrstu sýn að þau völd sem flugráð hefur haft séu verulega skert og nánast af því tekin. Ég lendi á 8. gr. Þar segir svo, með leyfi forseta: „Auk þess að flugráð fjallar almennt um markmið og leiðir í flugmálum og hefur frumkvæði á því sviði, sem það ákveður og gefur ráðh. skýrslur þar um, skal flugráð“ o.s.frv. Mér er ekki alveg ljóst hvað þetta merkir. Þetta er a.m.k. ákaflega kauðst orðalag, að ekki sé meira sagt, og mætti þar úr bæta og gera skýrara.
Ég er líka á annarri skoðun en kemur fram í a-lið R. gr., þar sem segir að flugráð skuli gefa umsögn um veitingu flugrekstrarleyfa, þar með talið áætlunarleyfa og sérleyfa o.s.frv. Ég held að flugráð eigi að hafa verulega meira vald í þeim efnum. Ég held t.d., að ef flugráð er einhuga um veitingu flugrekstrarleyfa, áætlunarleyfa og sérleyfa eigi flugráð að veita slík leyfi. Það eigi aðeins að koma til kasta ráðh. ef ágreiningur er uppi í flugráði um veitingu sérleyfa og áætlunarleyfa.
Við þekkjum þær deilur sem orðið hafa um veitingu sérleyfa. Mín skoðun er sú, að þar hafi ekki verið skynsamlega að farið og þar hafi raunar verið þverbrotin sú stefna sem mörkuð var af hálfu stjórnvalda hér þegar Flugfélag Íslands og Loftleiðir hf. voru sameinuð. Þegar hluthafar þessara tveggja flugfélaga, sem þá voru, samþykktu sameininguna var forsenda þeirrar samþykktar loforð sem hæstv. þáv. ráðh. gáfu um hvers lags skilyrði þetta nýja flugfélag mundi við búa. Það var ein af ákvörðunarforsendum eigenda þessara tveggja flugfélaga. Núv. hæstv. samgrh. hefur valið þann kost að breyta þessu þannig að sú ákvörðunarforsenda, sem þá var, er ekki lengur til staðar. Það er búið að breyta þessu og sú ákvörðun hæstv. ráðh. var að mínum dómi alröng og ég er ekki einn um þá skoðun. Ég tel því að flugráð eigi frekar að hafa þetta vald en ráðh. Sú reynsla sem við höfum af því hvernig ráðh. beitir valdinu er miður góð. Ég tel að það hafi verið ein alvarlegustu mistök varðandi flugmálastefnu sem hér hafa verið gerð þegar hæstv. ráðh. tók þá ákvörðun að skipta því sem ekki var til skiptanna og skapa þá stöðu í íslenskum flugmálum að fyrr eða síðar kann sagan að endurtaka sig. Þegar er verið að skipta því sem ekki er til skiptanna svelta auðvitað báðir. Kannske kann að koma að því að óskað verði á ný einhvers konar sameiningar flugfélaga vegna þess að kakan er ekki til skiptanna, eins og var vitað fyrir mörgum árum. Þess vegna var ákvörðun ráðh. skref aftur á bak. Ég vil raunar nota þau orð, að hún hafi að vissu leyti verið svik við það fólk sem á sínum tíma samþykkti sameiningu flugfélaganna gegn þeim loforðum sem þá voru gefin og oft hefur verið vitnað til. — Ekki fleiri orð um þetta að sinni.
II. kafli þessa frv. er kannske sá sem mest horfir til bóta, en hann fjallar um flugmálaáætlun. Af hálfu Alþfl. hefur hér verið margflutt frv. um þetta sama efni og því ber að fagna að skipan skuli komið á þessi mál með þeim hætti sem hæstv. ráðh. gerði grein fyrir. Auðvitað má sjálfsagt ýmislegt að því finna og einhverjar breytingar gera á því fyrirkomulagi, en í stórum dráttum horfir það til mjög mikilla bóta.
Það er auðvitað alveg rétt, eins og fram kom í framsögu hæstv. samgrh., að í þessum efnum er gífurlegt átak fram undan. Þetta hefur verið látið danka. Framkvæmdir á íslenskum flugvöllum hafa dregist úr hömlu og verið til þeirra varið skammarlega litlu fjármagni. Öryggisaðstaða á flugvöllum hér er ekki eins og best verður á kosið, nema á Keflavíkurflugvelli þar sem allur aðbúnaður í því efni er til fyrirmyndar, enda sýnir reynslan að þá blessunarlega sjaldan eitthvað verður að í áætlunarflugi hér kjósa flugmenn, þegar er ráðrúm vals í þeim efnum, að lenda þar. Það segir auðvitað sína sögu um ástand öryggismála á öðrum flugvöllum landsins. Þar þurfum við að taka okkur á og þar eru gífurleg verkefni fram undan, bæði á stærstu áætlunarflugvöllunum, Reykjavík og Akureyri, og ekki síður á hinum minni flugvöllum, þar sem þessi mál eru vegna fjármagnsskorts mjög í ólestri. En það er fyrsta skref til bóta í þessum efnum að vinna þetta eftir skipulegri áætlun. Ég held að mjög gott sé að gera þetta á svipaðan hátt og gert hefur verið varðandi vegáætlun. Ég held að það hafi reynst tiltölulega vel, þó að það sem máli skipti í þessum efnum sé auðvitað það fjármagn sem er til umráða til framkvæmda. Það er auðvitað meginmálið.
Aðeins eitt dæmi um hvernig mætti nýta skynsamlegar fjármagn það sem varið er til öryggismála á íslenskum flugvöllum er auðvitað að hér í Reykjavík er rekið sérstaki slökkvilið á Reykjavíkurflugvelli, sem ég hygg að sé ekki allt of vel búið að tækjum, en í 400–500 metra fjarlægð er slökkvilið Reykjavíkurborgar, sem er vel búið tækjum. Þarna er auðvitað himinhrópandi dæmi um slæmt skipulag og slæma nýtingu, bæði á fjármagni, tækjum og mönnum. Auðvitað ætti fyrir langa löngu að vera búið að sameina þetta tvennt, þannig að það séu ekki þarna með nokkur hundruð metra millibili tvö slökkvilið. Þarna mætti með skipulagi áreiðanlega ná margfaldri nýtingu á tækjum og mönnum og því fjármagni sem veitt er til þessara öryggismála. Þetta er mönnum til athugunar.
Ég ætla ekki að hafa þessi orð fleiri, herra forseti, þar sem ég mun hafa tækifæri til að fjalla betur um þetta mál í þeirri nefnd sem það fær til meðferðar.