10.03.1983
Neðri deild: 61. fundur, 105. löggjafarþing.
Sjá dálk 2901 í B-deild Alþingistíðinda. (2915)

198. mál, fjáröflun til vegagerðar

Fjmrh. (Ragnar Arnalds):

Herra forseti. Ég vil byrja á að þakka hv. fjh.- og viðskn. fyrir skjóta afgreiðslu þessa máls. Að öðru leyti ætla ég ekki að fjölyrða um efni þess.

Fram hafa komið mjög eindregnar óskir um að gjalddagi veggjalds verði síðar á árinu en ákveðið er í frv. Með tilliti til þess hversu seint lögin eru nú afgreidd þykir okkur samgrh. eðlilegt að verða við óskum um að gjalddaginn sé fluttur til, en síðan komi það til nánari athugunar hvort gjalddaginn verði þá framvegis aðeins síðar á árinu en lögin gera ráð fyrir. Því höfum við samgrh. leyft okkur að flytja svofellda till. við frv.:

„1. Aftan við 1. mgr. 2. gr. bætist nýr málsliður svohljóðandi:

Fjmrh. getur ákveðið með reglugerð að gjalddagi og eindagi veggjalda sé síðar á árinu en að framan greinir.

2. Ákvæði til bráðabirgða orðist svo:

Á árinu 1983 skal gjalddagi veggjalda vera 1. júní og eindagi 1. júlí.“

Þetta er sem sagt seinkun um tvo mánuði, og má auðvitað til sanns vegar færa að þegar af tæknilegum ástæðum eru þær dagsetningar sem nefndar eru í frv. fullsnemma á árinu.

Ég vil leyfa mér, herra forseti, að leggja fram þessar skriflegu brtt.