10.03.1983
Neðri deild: 61. fundur, 105. löggjafarþing.
Sjá dálk 2902 í B-deild Alþingistíðinda. (2925)
230. mál, almannatryggingar
Félmrh. (Svavar Gestsson):
Herra forseti. Við umr. um þetta mál í gær kom fram sú skoðun mín og heilbr.og trmrn. að það væri til lagaheimild til að framkvæma þær breytingar á greiðslum sjúkrasamlaga fyrir tannlæknakostnað sem rætt hefur verið um og því væri þetta frv. óþarft. Í umr. um málið í gær kom einnig fram, að hv. alþm. óskuðu eftir upplýsingum um málið. Mér er kunnugt um að fyrir liggja hjá fjárlaga- og hagsýslustofnun ítarlegar greinargerðir um þetta mál og mér er einnig kunnugt um að heilbr.- og trmrn. hefur ýmislegt við þær greinargerðir að athuga. Ég veit ekki til þess að þessar grg. hafi borist hv. þm. síðan við ræddum málið í gær né heldur að þær hafi verið teknar fyrir alveg sérstaklega. Ég mun ekki taka þátt í atkvgr. um þetta mál við svo búið.