10.03.1983
Neðri deild: 61. fundur, 105. löggjafarþing.
Sjá dálk 2902 í B-deild Alþingistíðinda. (2928)
43. mál, Húsnæðisstofnun ríkisins
Forseti (Sverrir Hermannsson):
Ég vek athygli á að ég get ekki haldið umr. lengi áfram. Hér hafa fundir verið sóttir ákaflega fast og það er búið að boða kvöldfund — þann fjórða hygg ég í röð — í kvöld. Það er alveg nauðsynlegt að menn fái sæmilegt matarhlé, þannig að ég get ekki leyft langa umr. hér, en aðeins örstutta.