10.03.1983
Neðri deild: 61. fundur, 105. löggjafarþing.
Sjá dálk 2902 í B-deild Alþingistíðinda. (2929)
43. mál, Húsnæðisstofnun ríkisins
Frsm. meiri hl. (Alexander Stefánsson):
Herra forseti. Ég mæli hér fyrir nál. frá félmn. Nd. um frv. til l. um breyt. á lögum nr. 51/1980 um Húsnæðisstofnun ríkisins.
Hér er um að ræða brbl. sem sett voru s.l. sumar, 27. júlí 1982. og eins og hv. þm. er sjálfsagt kunnugt fjalla fyrst og fremst um tvö atriði:
Annars vegar skal létta af sveitarfélögum kaupskyldu á íbúðum í verkamannabústöðum byggðum fyrir 1. júlí 1980. en láta þau njóta forkaupsréttar í staðinn. Þetta var mikilvægt atriði frá hendi sveitarfélaga og Samband ísl. sveitarfélaga lagði mikla áherslu á að þetta væri sett í brbl.
Hins vegar skyldi sníða af annmarka á reglum laganna um innkaup og endursölu þessara íbúða, sem komið hafa í ljós í framkvæmd og hindrað eðlilega sölu. Það var einkum haft í huga að koma í veg fyrir stökkbreytingar á verðlagningu íbúðanna miðað við ástand á húsnæðismarkaði á viðkomandi stöðum.
Nefndin hefur lagt mikla vinnu í þetta frv. og fengið um það umsögn frá Sambandi ísl. sveitarfélaga. Þjóðhagsstofnun og Byggingarfélagi alþýðu í Hafnarfirði. Á fund til n. komu tilkvaddir aðilar. svo sem eins og framkvæmdastjóri Sambands ísl. sveitarfélaga, fulltrúi frá Húsnæðisstofnun. Sigurður E. Guðmundsson, og Skúli Sigurðsson og Sigurður Snævarr frá Þjóðhagsstofnun.
Því er ekki að leyna að nm. höfðu ýmislegt að athuga við þetta frv. og var lögð mikil vinna í útreikninga, sérstaklega varðandi verðbótaþátt og uppfærslu verðs vegna sölu á eldri íbúðum.
Ég ætla ekki, herra forseti. að eyða tíma Nd. í málið. Brtt. sem n. varð sammála um að flytja á þskj. 573 eru þrjár.
Í fyrsta lagi er gerð brtt. í sambandi við breytingu á forkaupsrétti á öllum íbúðum og í öðru lagi er við 67. gr. laganna gerð till. um nokkra breytingu. Eins og kemur fram í 4. gr. laganna er reiknað með að það sé stjórn verkamannabústaða sem skal fyrir hönd sveitarfélaga endurselja íbúðina á upphaflegu kostnaðarverði. á því kaupverði sem fyrri eigandi greiddi fyrir hana að viðbættri hækkun samkv. byggingarvísitölu til endursöludags. Við leggjum til að matsmenn félagslegra íbúða meti endursöluverð allra félagslegra íbúða samkv. 54.–65. gr. og taki tillit til byggingarkostnaðar á þeim tíma sem mat fer fram. markaðsverðs íbúða í sveitarfélaginu. ástands íbúða við sölu og aldurs íbúðar. og sveitarstjórn geti falið stjórn verkamannabústaða að annast endursölu íbúða.
3. brtt. er um ákvæði til bráðabirgða, um að 3. gr. brbl.. þ.e. varðandi 66. gr. húsnæðismálalaga. falli úr gildi 1. jan. 1984.
Til að tefja ekki tímann held ég að ég vísi að öðru leyti í nál.. sem skýrir þetta atriði nánar. og ég mun þess vegna ekki eyða fleiri orðum í þetta nema tilefni gefist til.
Nefndin leggur til að frv. verði samþ. með þessum brtt.