10.11.1982
Efri deild: 9. fundur, 105. löggjafarþing.
Sjá dálk 515 í B-deild Alþingistíðinda. (293)

73. mál, stjórn flugmála

Utanrrh. (Ólafur Jóhannesson):

Herra forseti. Ég skal ekki blanda mér mikið í þessar umr., en svona til öryggis vildi ég taka það fram í sambandi við ákvæði til bráðabirgða að ég er því samþykkur og ég tel raunar að það sé í samræmi við það sem verið hefur í framkvæmdinni, þar sem ég stend í þeirri meiningu að flugmálastjóri hafi farið með tækni- og flugöryggissvið á Keflavíkurflugvelli samkv. reglugerð eða samkomulagi sem þar um var gert á sínum tíma. Ég er því samþykkur þessu ákvæði eins og það er og tel að það geti vel gengið.

Það er að sjálfsögðu svo, að þó að utanrrh. fari með þessi mál er ekkert því til fyrirstöðu að það sé flugmálastjóri sem fer með málin undir hans yfirstjórn. Hitt er svo auðvitað annað mál, að endalaust má sjálfsagt deila um hvort rétt sé þessi skipting, sem á sér stað þarna á milli utanrrh. og annarra ráðh., þar sem flest mál sem tengd eru Keflavíkurflugvelli heyra undir þann mann sem fer með utanríkismál, en ekki undir hina einstöku ráðh. Það má sjálfsagt endalaust deila um hvort það sé eðlileg eða heppileg skipan. Ég ætla ekki að fara að kveða upp neinn dóm um það, en bendi bara á þá reynslu sem fyrir hendi er, bæði frá þeim árum þegar þessu var skipt á milli hinna einstöku ráðh. og svo þau nokkuð mörgu ár sem sú skipan hefur haldist sem nú gildir.

Ég tel að það eigi ekki að gera of mikið úr ágreiningi og árekstrum sem þarna hafa átt sér stað. Ég held að þeir séu ekki meiri en gengur og gerist annað slagið í kerfinu á milli embættismanna, sem dálitið eru viðkvæmir fyrir sínum verkahring. Ég held að þó að slíkir árekstrar hafi einstöku sinnum átt sér stað. og ég held reyndar að þeir hafi þá átt sér stað fyrir mína tíð í þessu starfi, hefði verið hægt að jafna þá og þeir hafi verið jafnaðir með góðri samvinnu. Ég skil það vel að flugmálastjóra hafi þótt nokkuð snúið að aðalflugvöllur landsins væri tekinn undan hans embætti. Ég ætla ekkert að fara út í hvernig og hvenær það var gert, en sú skipan sem nú er fylgt hefur átt sér stað í mörg ár og þar af leiðandi hefur embætti flugvallarstjóra á Keflavíkurflugvelli fests í sessi. Mér sýnist að með því fyrirkomulagi sem þarna er sé sneitt fram hjá því að til árekstra þurfi að koma á milli þessara tveggja embættismanna. Það sem er höfuðatriðið er að flugöryggismál og flugtæknimál séu á einni og sömu hendi og það er eðlilegt, að mínu viti, að þau séu undir embætti flugmálastjóra. Þeir starfsmenn, sem fara með þessi mál, eru af honum skipaðir og bera auðvitað ábyrgð gagnvart honum.

Til þess að fyrirbyggja misskilning vil ég taka það fram, sem öllum hér er auðvitað kunnugt, að það hafa ekki farið neinar fjárveitingar af íslensku fjármagni til Keflavíkurflugvallar, þannig að það hefur enginn ágreiningur komið til greina í því sambandi við skiptingu fjár á milli flugvalla. Allt sem byggt hefur verið þarna hefur verið byggt af öðrum aðilum en íslenska ríkinu. sama er raunar að segja um rekstur flugvallarins. Það eru ekki fjárveitingar til hans á fjárlögum umfram það að ríkið greiðir laun þeirra manna sem eru í flugvallarstjórninni þarna og fást við þá starfsemi og flugstjórnarmanna. Allur annar reksturskostnaður er greiddur af öðrum aðila. Ég vil ekki nefna neina fjárhæð í því sambandi. Ég hef ekki blaðið við hendina um það efni og þó að ég hafi kannske eitthvað í huganum vil ég ekki vera að nefna neinar tölur í því sambandi. Það er þó óhætt að segja að það er talsvert há fjárhæð sem kostar að reka Keflavíkurflugvöll.

Ég vil undirstrika það, sem ég reyndar tók fram áðan, að ég held að ekki sé gerandi of mikið úr þeim ágreiningi og þeim árekstrum sem hafa átt sér stað í þessu sambandi. Þann tíma sem ég þekki til þessa hefur það gengið nokkurn veginn snurðulaust og hægt hefur verið að leysa með samkomutagi á milli okkar ráðh. ef eitthvað hefur bjátað á.

Ég vil taka það fram í sambandi við það sem ég sagði áðan, að þó að laun þeirra aðila sem ég nefndi séu að sjálfsögðu greidd af íslenska ríkinu gera tekjur þær sem koma af Keflavíkurflugvelli allmiklu betur en standa undir þeim. Það verður fyrst þegar farið verður að byggja nýja flugstöð sem kemur til kasta Alþingis að veita fé til framkvæmda á Keflavíkurvelli, en hingað til hefur ekki verið um slíkt að ræða og þess vegna hefur ekki verið um það að ræða að Keflavíkurvöllur hafi dregið til sín fé sem annars hefði farið til annarra framkvæmda í flugmálum. Þetta vildi ég taka alveg skýrt fram.

Ég get svo tekið undir það sem sagt hefur verið um flugmálastjóra, að hann hefur verið brautryðjandi í þessum málum og á lof fyrir það skilið. Hitt er líka náttúrlega rétt, að það hefur ekki verið lagt til flugmála á Íslandi af íslenska fjárveitingavaldinu það sem skyldi og sennilega hefur verið nokkurt vanmat í því sambandi á þýðingu flugsins. En ég held að enginn maður hafi lagt meiri áherslu á það en einmitt núv. flugmálastjóri að það þyrfti að verða stefnubreyting í þessum efnum, þar sem hann hefur æ ofan í æ t.d. skýrt frá hörmulegu ástandi á mörgum flugvöllum hér á landi og jafnvel svo að þeim ætti samkv. réttum reglum að loka.

Það er vonandi að þetta frv., t.d. þetta um áætlunargerð, ýti við mönnum. Ég get alveg tekið undir það sem hér hefur komið fram, því að ég held að ekki hafi verið rétt hlutfall á milli þess sem hefur farið til flugmáfa og svo annarra samgönguþátta, sem allir eru þó auðvitað nauðsynlegir og allir í mikilli þörf. Sérstaklega er auðvitað vert að undirstrika að flugið er dálítið sérstakt að því leyti að það verður að gera alveg sérstakar kröfur til öryggismálanna. Ég held að flugmálastjóri hafi nokkuð til síns máls þegar hann telur að fjárveitingavaldið hafi ekki verið mjög hlustnæmt þegar hann hefur rakið ástand þessara mála fyrir því.