11.03.1983
Efri deild: 67. fundur, 105. löggjafarþing.
Sjá dálk 2927 í B-deild Alþingistíðinda. (2957)
249. mál, samkomudagur Alþingis
Flm. (Ólafur Ragnar Grímsson):
Herra forseti. Ég vildi óska eftir því að hæstv. viðskrh. yrði sóttur. Ég þyrfti að segja eina setningu við hann. En áður en ég geri það vil ég hugga hv. þm. Stefán Guðmundsson með því að það eru engar hugleiðingar tengdar framboðum þeirra sem að þessari till. standa sem liggja þar að baki. Hugleiðingar hans um að mönnum sé hugstætt það efni að þeir kunni ekki að verða á næsta þingi og það sé hvatinn að þessum till.-flutningi eru æðisérkennilegar. Hv. þm. Stefán Guðmundsson er sá eini þm. þessarar hv. deildar sem hefur hlotið þau örlög að samþingsmaður hans, Ingólfur Guðnason, hefur ákveðið að bjóða fram sérstakan lista til að tryggja að hv. þm. Stefán Guðmundsson verði ekki á næsta þingi. Það er kannske skiljanlegt að hv. þm. Stefáni Guðmundssyni sé þetta efni sérstaklega hugleikið. Gamalt máltæki segir „Margur heldur mig sig“. Ég held það verði eingöngu að líta á ummæli hans í þessu ljósi. Það hefur hvergi gerst nema hjá Framsfl. í Norðurlandi vestra að þingbræður úr sama flokki séu þannig á sig komnir að einn þeirra tekur sig sérstaklega út úr og býður fram lista til að reyna að tryggja að hv. þm. Stefán Guðmundsson verði ekki á næsta þingi. Það er hins vegar ekkert samhengi í þeim rökum að telja að till. um að þing komi saman sé háð vissu um það að þeir sem hana flytja verði ekki á næsta þingi. Hann hefði frekar mátt álykta öfugt, ef menn væru að gefa sér þá forsendu að menn væru fyrst og fremst að hugsa um það.
Þessi till. er óskaplega einföld. Hún er eingöngu viljayfirlýsing um hvenær Alþingi eigi að koma saman. Hæstv. utanrrh. hefur lýst því yfir að þessi till. sé markleysa, hún geri engum skaða, geri heldur ekkert gagn og fleiri orð féllu í þá veru, en hv. þm. Stefán Guðmundsson sagði hins vegar að þetta væri merkileg tillaga. Ekki er nú alveg samræmi í þeim málflutningi. (StG: Hún er merkileg vegna flm.) En það er hins vegar mikill misskilningur, sem fram kemur hjá hæstv. ráðh. Tómasi Árnasyni og reyndar einnig hæstv. ráðh. Ólafi Jóhannessyni, að að baki þessari till. liggi einhver ákvörðun um ríkisstjórn. Það er mesti misskilningur. Hugleiðingar Tómasar Árnasonar um miklar viðræður á milli manna, sem í þessum flokkum eru, um myndun ríkisstjórnar eru líka mikill misskilningur. Hins vegar hefur oft frést af ferðum hæstv. viðskrh. Tómasar Árnasonar, þegar dálítið hefur gefið á bátinn í ríkisstjórn Gunnars Thoroddsens. Þá hefur frést af því að hæstv. viðskrh. hefur um leið verið kominn í viðræður við sjálfstæðismenn í stjórnarandstöðu og Alþfl. og farið að gera sig líklegan til að biðja þá að koma með sér í nýja ríkisstjórn. (Viðskrh.: Hef ég fengið keppinaut?) Nei, hæstv. ráðh. hefur ekki fengið keppinaut.
Ástæðan fyrir því að ég bað um að hæstv. viðskrh. yrði hér viðstaddur var sú, að ræða hans leiddi til einnar augljósrar niðurstöðu. Það var tvennt sem hæstv. ráðh. sagði í sinni ræðu efnislega: Annað var að mynda verður nýja ríkisstjórn í landinu, það verður að hafa forgang. Seinna atriðið var að rökstyðja mjög rækilega hvílíkur ógerningur væri að hafa Alþb. með í ríkisstjórn, hve illa Alþb. reyndist í ríkisstjórn. Þegar þessir tveir efnisþættir eru lagðir saman kemur skýrt í ljós að ætlun hæstv. ráðh. er greinilega að reyna að mynda ríkisstjórn eftir kosningar án Alþb. Hann vill hafa frið til þess frá Alþingi. Hann vill ekki láta Alþingi tefja fyrir sér í þeirri ætlun sinni. Þessi tvö markmið, sem hann lýsti hér í sinni ræðu og var það eina sem hans ræða í raun og veru fjallaði um, það að mynda sterka ríkisstjórn og að mynda ríkisstjórn án Alþb. eru greinilega markmið Framsfl. Framsfl. óttast að verði Alþingi við störf um það leyti muni kannske ganga erfiðlega fyrir þá að ná þessari ætlun sinni fram. Ég fagna því vissulega að hæstv. ráðh. Tómas Árnason skuli hafa haft hreinskilni til þess að lýsa þessu svona skýrt yfir hér í umræðunum, að markmið Framsfl. sé að mynda sterka ríkisstjórn eftir kosningar án Alþb. Ég virði menn sem tala af slíkri hreinskilni. Það er ánægjulegt að fá það hér skýrt fram. Það skyldi þó ekki vera að forsrh.-efni í þessari nýju ríkisstjórn Framsfl. án Alþb. sé sessunautur hæstv. viðskrh., Ólafur Jóhannesson.