10.11.1982
Efri deild: 9. fundur, 105. löggjafarþing.
Sjá dálk 522 í B-deild Alþingistíðinda. (296)

73. mál, stjórn flugmála

Karl Steinar Guðnason:

Herra forseti. Mér þykir undarlegt ef það liggur ekki ljóst fyrir hver á tækin sem eru þarna suður á Keflavíkurflugvelli í flugturninum.Ég held að það hljóti að fást upplýst. Ég hef reyndar þær upplýsingar að þau séu ekki í eigu íslenska ríkisins og það sé þess vegna sem þessi ágreiningur sé uppi. Ef svo er hins vegar að íslenska ríkið á þetta allt saman og á sama hátt og þau örfáu tæki sem eru hér í Reykjavík, þá sé ég ekkert því til fyrirstöðu að stjórn flugumferðar fari fram frá Keflavíkurflugvelli og það sé eðlilegt að nýta þau tæki sem til eru.

Ég minntist á það áðan, að við þetta ástand, sem við búum nú við, þarf fjóra menn til að sinna starfi sem einn maður gæti stundað. Það er mjög miður. Það þykir mér og miður að þetta þurfi að vera menn sem ráðnir eru héðan. Þrír þeirra þurfa að aka á hverjum degi til og frá Reykjavík. Ekki fá þessir menn að ráða sig frá Keflavík eða Suðurnesjum.

Það er eitt spaugilegt við þetta líka. Fjórði maðurinn sem starfar við þetta hefur starfað í nokkur ár í Reykjavík og þurft að aka daglega á eigin kostnað til Reykjavíkur í vinnu. Hvað eftir annað fór hann fram á að fá klómetragjald fyrir það, hvað ekki fékkst. Þegar hinir mennirnir þrír eru hins vegar ráðnir til Keflavíkur, þá fá þeir klómetragjald frá Reykjavík til Keflavíkur. Þetta eru skringilegheit sem var rétt að segja frá, en koma afskaplega undarlega fyrir sjónir.

Varðandi þann ágreining, sem uppi hefur verið, tek ég undir að við eigum ekki að gera allt of mikið úr honum. Þegar ágreiningur er hafa menn sitt hvort sjónarmiðið. Þeir þar syðra hafa allt önnur sjónarmið en flugmálastjóri sjálfsagt hefur. Reyndar má segja um tilurð þessa ágreinings og að starfsmönnum var neitað 1979 að koma héðan frá Reykjavík til að taka við þar syðra, að það mál heyrir sögunni til. En nú er byggt á sömu rökum og áður. Það var hægt að sinna þessum störfum af því starfsliði sem til staðar er þar í flugturninum á Keflavíkurflugvelli og ég sé ekkert því til fyrirstöðu að það sé gert þannig og þá eftir ósk flugmálastjóra í Reykjavík.