11.03.1983
Neðri deild: 62. fundur, 105. löggjafarþing.
Sjá dálk 2938 í B-deild Alþingistíðinda. (2969)
230. mál, almannatryggingar
Halldór Ásgrímsson:
Herra forseti. Ég bar fram þá spurningu í samræmi við ákvæði laga um stjórn efnahagsmála hver kostnaður yrði við framkvæmd þessa frv. Það hafa engar fullnægjandi upplýsingar komið um það, enda er málið allt illa undirbúið og ekki hæft til afgreiðslu hér í þinginu að mínu mati. Það hefur heldur ekki komið fram með hvaða hætti slík niðurgreiðsla á tannlækningakostnaði mundi virka. Ég hef fengið upplýst að þegar slík ákvörðun var tekin í Svíþjóð á sínum tíma hafi það orðið til þess að kostnaður við tannlækningar hækkaði um 15%. Það má því vel vera að þetta verði fyrst og fremst til þess að hækka laun tannlækna og auka þannig kostnað hjá þeim að það muni lítt gagna almenningi í landinu. Þetta tel ég að hafi ekki verið upplýst með fullnægjandi hætti. Mér er nær að halda að kostnaður samkv. þessu sé ekki á bilinu 30–60 millj. Hann gæti vel verið vel yfir 100 millj. kr. Ég sé mér ekki fært að greiða atkv. með máli sem þessu þegar undirbúningur er með þeim hætti sem ég hef greint. Ég mun því greiða atkv. á móti þessu, enda tel ég að ekki séu aðstæður til þess nú í þjóðfélaginu að taka inn á fjárlög svo stóran málaflokk sem þennan án þess að líta á tekjuhlið fjárlaganna.
Afkoma ríkissjóðs fer versnandi. Það er minnkandi kaupmáttur í landinu, sem þýðir það að tollar og gjöld til ríkisins fara lækkandi án þess að lækkun útgjalda fylgist að. Ég er algerlega mótfallinn því að á slíkum tímum sé farið að taka inn útgjaldapósta, sem gætu numið 100–200 millj. kr., sem ég sé alveg fulla ástæðu til að telja meðan annað er ekki upplýst hér í deild.
Herra forseti. Ég mun því greiða atkv. á móti þessu frv.