11.03.1983
Neðri deild: 62. fundur, 105. löggjafarþing.
Sjá dálk 2942 í B-deild Alþingistíðinda. (2974)

230. mál, almannatryggingar

Halldór Ásgrímsson:

Herra forseti. Ég skal ekki deila við hæstv. félmrh. um hvað það kostar að koma þessum niðurgreiðslum í framkvæmd. Ég viðurkenni að mín tala var ágiskun vegna þess að ég hafði engar upplýsingar um málið. Hann sagði að sín tala væri hrein ágiskun að vandlega yfirveguðu máli. Ég skal viðurkenna að mín var aðeins hrein ágiskun, ekki að vandlega yfirveguðu máli, og ég skal ekki deila við hæstv. ráðh. um það. Hitt er ljóst, að ekkert liggur fyrir um það, sem hægt er að treysta, hvað þetta kostar. Og það liggur heldur ekkert fyrir um það hvað kostar að framkvæma þessi lög eða hvernig þau muni gagnast almenningi í landinu. Hv. þm. sumir hverjir tala hér eins og þetta muni koma af himnum ofan og verða ókeypis fyrir allt fólkið í landinu. Það þurfi enga skatta að leggja á til að ná þessu inn og enginn þurfi að borga neitt. Jafnvel hefur heyrst að það sé til gamall gróði hjá ríkinu sem sé hægt að nota í þetta. Það væri fróðlegt að fá það upplýst hvar hann er geymdur.

Það hefur einnig verið látið skína í það, að við þetta muni skattar tannlækna hækka svo mikið til ríkisins, að það muni jafnvel verða hagnaður af öllu saman. Ef það er tilfellið að skattaundandráttur eigi sér stað hjá tannlæknum í þessu landi, sem ég skal ekkert fullyrða um, en ljóst er að þeir hafa möguleika til slíks, þá á náttúrlega að fara í það mál af fullri hörku samkv. skattalögum. Það eru heimildir til þess að gera það. Af hverju er það ekki gert ef mikill grunur er um slíkt? En það er ekki hægt að fullyrða slíkt og jafnvel að réttlæta heila löggjöf á slíkum rökum. Það er allt annað mál og kemur ekki þessum niðurgreiðslum við. Í það verður að sjálfsögðu að fara af fullri hörku og nýta til þess þær heimildir sem til eru í lögum. Og það er undarlegt ef það hefur ekki verið gert.