11.03.1983
Neðri deild: 62. fundur, 105. löggjafarþing.
Sjá dálk 2942 í B-deild Alþingistíðinda. (2975)

230. mál, almannatryggingar

Magnús H. Magnússon:

Herra forseti. Örfá orð. Hv. 1. þm. Vesturl. átelur það hvernig að þessu máli er staðið og tekur undir gagnrýni hv. 3. þm. Austurl.

Sjálfur hefur hv. 1. þm. Vesturl. nýlega flutt frv. til l. um breytingu á lögum um fæðingarorlof, sem kostar miklu meira en dagskrármálið, líklega helmingi meira, samkv. þeim tölum sem komu fram í máli hæstv. heilbr.- og trmrh., án þess að benda á leiðir til tekjuöflunar, svo að ekki er nú samræminu fyrir að fara.

Hv. 1. þm. Vesturl. segir að ekki séu til samræmdar reglur um gjaldskrár tannlækna og því sé ekki unnt að samþykkja þetta frv. Í frv. er einmitt gert ráð fyrir því að Tryggingastofnun setji reglur um form greiðslukvittana og í framhaldi af því mætti setja ýmsar reglur um þessi mál öll. Ef einhver fótur væri fyrir tölum hv. 3. þm. Austurl. um aukinn kostnað, sem þessu frv. mundi fylgja, þá munu þeir peningar skila sér aftur í hækkuðum sköttum tannlækna. Í blaði hér fyrir nokkru var reynt að grafast fyrir um hverjar væru heildartekjur tannlækna. Þar var komist að þeirri niðurstöðu að þær mundu vera um 300 millj. fyrir utan það sem ríki og bær greiðir nú þegar. Ef talsverður hluti af þessum 300 millj. er fyrir aðgerðir, sem þetta frv. nær ekki til, þá erum við ekki að tala um 500–1000 millj. heldur erum við að tala um 30–40 millj.