11.03.1983
Neðri deild: 62. fundur, 105. löggjafarþing.
Sjá dálk 2946 í B-deild Alþingistíðinda. (2981)

230. mál, almannatryggingar

Jóhann Einvarðsson:

Herra forseti. Þar sem ég tel að vafi leiki á lagalegum rétti ríkisstj. til þess að taka þá ákvörðun sem hún lýsti yfir hérna fyrir nokkrum dögum, að greiða 20% af tannlæknakostnaði, tel ég brýna nauðsyn til að samþykkja þetta frv. Ég segi já.