11.03.1983
Neðri deild: 62. fundur, 105. löggjafarþing.
Sjá dálk 2946 í B-deild Alþingistíðinda. (2988)
163. mál, verðlag
Frsm. minni hl. (Halldór Ásgrímsson):
Herra forseti. Það hefur komið fram hér að mál þetta er flutt af því tilefni að borgarsjóður Reykjavíkur hefur átt í deilum við verðlagsyfirvöld í landinu og ekki viljað hlíta fyrirmælum og reglum frá þeim. M.a. hefur dregist inn í þessa deilu, eins og kemur hér beint fram í grg., deila borgar- og verðlagsyfirvalda um fargjöld Strætisvagna Reykjavíkur, sem er í raun deila um rétt ríkisvaldsins til þess að greiða niður vísitölu með fjármunum sem teknir eru úr borgarsjóði.
Það eru til ákveðin lög og reglur um verðlag í landinu. Slík lög þurfa að vera fyrir hendi. Alltaf má um það deila hversu það muni gagna til að halda verðtagi í skefjum að framkvæma slíkt verðlagseftirlit og að aðilar þurfi að sækja um hækkanir til þess að gæta almenns samræmis í landinu. Borgarsjóður Reykjavíkur hefur í reynd ekki viljað virða þessi lög, hefur ekki viljað virða þessar reglur og reynt að brjóta þær niður. Það er eðlilegt að verðlagsyfirvöld snúist mjög hart við þegar menn ætla í stórum hópum að fara að framkvæma lögbrot í landinu. Ég ætla að vona að það takist ekki. Það verður að ætlast til þess að Reykjavíkurborg virði lög og reglur í landinu, hversu góð eða slæm sem þau lög kunna að vera, ef menn ætla almennt að virða lýðræðið í landinu. Það hefur ekki tekist að brjóta þetta niður og lítt verið um samtöl milli verðlagsyfirvalda og Reykjavíkurborgar. Mér hefur skilist að málsvarar borgarinnar vilji hreint ekkert við verðlagsyfirvöld tala og telji að verðlagsyfirvöld hafi ekki rétt til að gera það sem þau hafa gert.
Síðan koma þm. Sjálfstfl. hér inn á Alþingi með frv. sem gengur í þá átt að breyta þessu þannig að deilunni sé þar með lokið. Það er fyrst og fremst tilgangur þessara laga. Ég legg til að þetta frv. verði fellt og við þessar aðstæður verði lögum ekki breytt í þessu sambandi. (Forseti: Á hv. ræðumaður mikið eftir?) Ég á nokkuð eftir. Ég get gert hlé á ræðu minni. (Forseti: Já, takk fyrir.) [Frh.]