11.03.1983
Neðri deild: 62. fundur, 105. löggjafarþing.
Sjá dálk 2967 í B-deild Alþingistíðinda. (3014)

248. mál, samkomudagur Alþingis

Ólafur Þ. Þórðarson:

Herra forseti. Það hefur komið fram að þessi þáltill. er ekki flutt í deildum vegna þess að flm. treysti ekki hæstv. forseta Sþ. Það kom aftur á móti fram í máli frsm. að hann treysti ekkí forsrh. Samkv. stjórnarskrá hefur forsrh. þetta vald í umboði forseta. Þáltill. hlýtur ávallt að víkja fyrir lögum, hvað þá gagnvart stjórnarskrá lýðveldisins.

Það er út af fyrir sig fráleitt að láta sér detta í hug að hægt sé að breyta stjórnarskránni með þáltill. Ég vil með leyfi forseta lesa hér upp 22. gr. stjórnarskrárinnar. Þar stendur svo:

„Forsetinn stefnir saman Alþingi ár hvert og ákveður hvenær því skuli slitið. Þingi má eigi slíta fyrr en fjárlög eru samþykkt. Forseti lýðveldisins kveður Alþingi til aukafunda þegar nauðsyn er til.“

Ef menn vilja ekki una þessu ákvæði stjórnarskrárinnar, þá er að sjálfsögðu rétt að bera fram brtt. við stjórnarskrána þar sem þetta vald er tekið úr höndum forseta og fært til þingsins. Þá ættu þeir að bera fram brtt. við 22. gr. stjórnarskrárinnar. Svo einfalt er þetta. En það vekur ennþá meiri undrun að flm., sem hefur 20 ára þingreynslu, skuli ekki bera upp vantraust á ríkisstj. og stefna að því að losa sig við þennan forsrh. sem hann treystir ekki. Hvað dvelur hann í því að bera upp vantraust á ríkisstj.?

Hv. 6. þm. Suðurl. hefur lýst því yfir að hann beri ekki ábyrgð á ríkisstj. Hv. 8. landsk. þm. Guðrún Helgadóttir hefur lýst því yfir að hún beri ekki ábyrgð á þessari ríkisstj. Hvað dvelur yfir höfuð 1. flm. till. að bera upp vantraust á ríkisstj. með þennan liðsstyrk á bak við sig sem hann er með í þingsölum? Er það kjarkurinn sem er brostinn?

Það vekur vissulega undrun að hann skuli vantreysta forsrh. en samt trúa því, að hann ætli að hlýða þál. sem brýtur í bága við það vald sem honum er falið í stjórnarskránni. (Gripið fram í: Það vantar viljann.) Vantar viljann, vantar viljann. Það má vel vera að það sé staðreynd málsins, að 1. þm. Vestf. vanti viljann í þessu máli, hann hafi ekki áhuga á að bera upp vantraust, hann vilji að forsrh. sitji. Engu að síður trúir hann því að með því að bera upp þáltill., sem hlýtur að vera víkjandi gagnvart stjórnarskránni, geti hann skikkað forsrh. til. Þetta er trú sem mér finnst dálítið grunnfærnisleg.

Hitt vekur ekki síður furðu, að fjmrh. kemur hér upp í ræðustólinn og hefur umr. um þáltill., sem liggur fyrir Sþ. og fæst varla rædd fyrir formanni þingflokks Alþb., því að strax og hún er tekin á dagskrá birtist hann og biður um orðið um þingsköp. En það er eðlilegt að dómi fjmrh. að hefja hér umr. um þessa þáltill. í reynd. Hann bætir því við, að hann trúi því ekki að ekki sé hægt að semja við framsóknarmenn um samkomudag Alþingis og slíka hluti. Það vekur dálitla athygli að í þeim samningum sem átt hafa sér stað um þessi mál hefur það fyrst og fremst verið formaður þin flokksins, hv. 11. þm. Reykv., sem hefur verið beitt. Ég ætla nú samt að Alþb.-mönnum sé almennt ljóst að það er ekki víst að við séum hvað ginnkeyptastir fyrir að eiga í miklum samningum við þann mann.