11.03.1983
Sameinað þing: 64. fundur, 105. löggjafarþing.
Sjá dálk 2971 í B-deild Alþingistíðinda. (3018)

231. mál, viðræðunefnd við Alusuisse

Frsm. (Friðrik Sophusson) (frh.):

Herra forseti. Þar var ég kominn ræðu minni að ég greindi frá samskiptum Sjálfstfl. og hæstv. iðnrh. varðandi álviðræðunefnd og hafði lýst því að Sjálfstfl. bauð samvinnu í málinu í umr. á Alþingi í des. 1980 og var því engu sinnt. Þá sagði ég frá því að í júlí 1981 hefði flokkurinn tilnefnt mann í álviðræðunefnd. Um miðjan sept. kom síðan erindisbréf til nefndarinnar sem var ekki í fullu samræmi við það sem við héldum að ætti að vera starf hennar. Loks vil ég taka það fram, að 5. maí, daginn sem viðræður fóru fram með ærið sérstæðum hætti við Alusuisse, sendi þingflokkur sjálfstæðismanna hæstv. ráðh. bréf, en geymdi birtingu bréfsins í fimm mánuði til að skaða ekki málið.

Í bréfi Sjálfstfl. til hæstv. ráðh. kom fram gagnrýni vegna meðferðar málsins og óskað var eftir sérstakri nefnd til að ræða um framtíðarsamskipti Alusuisse og íslenska ríkisins. Í framhaldi af þessu eða nánar tiltekið seint í maímánuði boðaði hæstv. ráðh. mig á sinn fund, en þá var formaður Sjálfstfl., hv. þm. Geir Hallgrímsson erlendis. Sömuleiðis er mér kunnugt um að hæstv. ráðh. boðaði formann Alþfl., hv. þm. Kjartan Jóhannsson, á sinn fund til þess að ræða um viðræðurnar við Alusuisse. Var á hæstv. ráðh. að skilja að hann vildi hefja viðræður við stjórnarandstöðuna um hugsanlega lausn málsins. Aðeins var haldinn einn fundur með formanni Sjálfstfl. þá um sumarið, en um haustið átti hæstv. ráðh. fund með hv. þm. Geir Hallgrímssyni og Birgi Ísl. Gunnarssyni ásamt mér. Auk þess talaði ég við hæstv. ráðh. rétt fyrir jól þegar ljóst var að viðræðunefndin hafði leystst upp. Í öllum þessum viðræðum við hæstv. ráðh. greindum við sjálfstæðismenn frá því að við værum óánægðir með gang mála og lögðum eindregið til að ný nefnd yrði skipuð til þess að fjalla um þessi mál, ekki síst raforkuverðshækkunina. En hæstv. ráðh. reyndist ekki fús til þess að eiga samvinnu með þeim formerkjum í einu eða neinu.

Það er ekki ætlun mín, herra forseti, að ræða mjög ítarlega um þessa till. sem fyrir liggur. Þetta mál hefur verið til umr. hér í sölum hv. Alþingis margoft, en eins og margoft hefur komið fram og verið lýst gerði viðræðunefndin lítið annað en vera hópur statista sem fengu upplýsingar við og við frá þeim útvöldu sem fengu að tala við samningamenn Alusuisse. Í rauninni var aldrei um neinar alvöruviðræður að ræða, enda voru fundir haldnir eins og verið væri að setja leikrit á leiksvið, þar sem hæstv. ráðh. baðaði sig í ljósi fjölmiðla og í gegnum blaðamannafundi og sendi fréttatilkynningar í allar áttir eins og hann er svo frægur fyrir.

Frá því í maí lá málið svo niðri, en þá slitnaði upp úr viðræðunum. S.l. haust skrifaði síðan hæstv. forsrh. bréf til Alusuisse og skýrði þar frá umr. um álmálið á Alþingi og þó einkum því, sem fram kom í ræðu hans á Alþingi, að ekki væri verið að saka Alusuisse um sviksamlegt athæfi. Í framhaldi af því, eða nánar tiltekið hinn 10. nóv. s.l., sendi Alusuisse hæstv. ríkisstj. bréf, þar sem var sundurliðað hvernig þeir vildu standa að samningum við íslensku ríkisstj.

Í stuttu máli má segja að hæstv. iðnrh. hafi komið sér hjá málefnalegum viðræðum við Alusuisse með alls kyns undanbrögðum. Hæstv. ráðh. hafði slitið viðræðum við Alusuisse í maí s.l. ár og sýndi aldrei í framhaldi af því neitt frumkvæði né nokkurn vilja til að hafa samband við svissneska álfélagið um þessi mál. Í hugmyndum Alusuisse um viðræðugrundvöll hinn 10. nóv. var boðið upp á íslenskan gerðardóm eða gerðardóm sem aðilar kæmu sér saman um. En með einhliða ákvörðun um álagningu skatta, sem þeir hjálpuðust að að framkvæma hæstv. fjmrh. og hæstv. iðnrh., er líklegt að búið sé að loka fyrir íslenskan gerðardóm, eins og hæstv. samgrh. Steingrímur Hermannsson hefur bent á í því sambandi með mjög glöggum hætti, m.a. í viðtali við dagblaðið Tímann hinn 5. febr. s.l.

Það er engin ástæða til að rekja þetta mál sérstaklega, en það er ljóst að enginn réttur tapast þótt beðið hafi verið með málið, enda er það álit sérfræðinga, sem rn. hæstv. iðnrh. styðst við, að skattauki á fyrirtækið fyrnist ekki nema á sex árum.

Það er flestum ljóst nú orðið að hæstv. ráðh. hefur aldrei ætlað sér að semja við Alusuisse. Málflutningur hans virðist fyrst og fremst beinast að því að reyna að styrkja stöðu sína innan Alþb. Í því skyni hefur hann þyrlað upp moldviðri hvað eftir annað og allra síst hefur það stuðlað að þjóðarsamstöðu. Þvert á móti hefur hæstv. ráðh. harðast gengið fram í því að spilla slíkri samstöðu, sem auðvitað er nauðsynleg í jafn veigamiklu máli og þessu. M.a. hefur hæstv. ráðh. gengið svo langt að hefja ófrægingarherferð gegn þeim sem stóðu að endurskoðun samninganna 1975 og þeim sem stóðu að gerð upphaflegu samninganna við Alusuisse um ÍSAL 1966. Þetta er auðvitað ekkert skrýtið þegar þess er gætt, að hæstv. ráðh. var í hópi andstæðinga álversins frá upphafi.

Í þessu sambandi hefur það þó vakið einna mesta athygli að hæstv. iðnrh. réðst á aðstandendur endurskoðunarinnar frá 1975, eins og ég áður sagði, einmitt þegar hæstv. forsrh. var erlendis í opinberri heimsókn, en núv. hæstv. forsrh. var iðnrh. árið 1975. Það hefur að vísu verið grunnt á því góða á milli þessara hæstv. ráðh. vegna furðulegra aðdróttana hæstv. iðnrh. í garð hæstv. forsrh., þegar hæstv. núv. iðnrh. tók við í iðnrn. og lét þá eftir sér hafa að hann væri að taka til í rn., en úr því varð deila á milli hæstv. forsrh. og hæstv. iðnrh., þar sem hæstv. forsrh. lýsti því yfir, þegar hann svaraði hæstv. iðnrh., að margt væri sér til gamans gert um áramót, í frægri blaðagrein sem birtist í Morgunblaðinu í upphafi árs 1979. Það er ljóst að samstarfsflokkar Alþb. í hæstv. ríkisstj. hafa gefist upp á vinnubrögðum hæstv. iðnrh. Hjörleifs Guttormssonar og ítreka ég þá tilvitnun til blaðaviðtals við formann Framsfl., hæstv. ráðh. Steingrím Hermannsson, í dagblaðinu Tímanum 5. febr. 1983, en þar segir Steingrímur m.a. með leyfi forseta:

„Ég harma það mjög að svona hefur farið og því miður tel ég að svona hafi farið fyrir klaufaskap“ og síðar: „Hins vegar verð ég því miður að segja að ég hef sjaldan séð haldið á málum á jafn vafasaman og vonlausan hátt og iðnrh. hefur gert í þessu máli.“ Full ástæða hefði verið til að fara fleiri orðum um þessi atriði.

Þá hefur hv. þm. Guðmundur G. Þórarinsson lýst því yfir, að hæstv. ráðh. hafi hvorki getað né viljað ná samningum við Alusuisse. Hér verður ekki rætt efnislega frv. hæstv. ráðh., sem er á stærð við nýja símaskrá, ein nýjasta skýrsla hæstv. ráðh., fskj. með frv. hæstv. ráðh. Ég giska á að það taki a.m.k. 5 klst. að lesa þá skýrslu upp, ef það verður gert hér á hv. Alþingi, en till. hæstv. ráðh. um einhliða aðgerðir sýna og sanna að allan tímann hefur það blundað hjá hæstv. ráðh. að pólitískt væri það heppilegast fyrir hann að sigla málinu í strand, með þeim hætti að flytja gersamlega vonlaust frv. um einhliða aðgerðir, þegar honum var ljóst að hann gat ekki samið um hagsmunamál Íslendinga við Alusuisse. Frv. hæstv. ráðh. um einhliða aðgerðir hlaut að kalla á viðbrögð af hálfu samstjórnarmanna hæstv. ráðh. og m.a. af þeim sökum myndaðist hin breiða samstaða í hv. atvmn. Sþ. um þá till. sem hér er verið að mæla fyrir.

Sú till. sem hér er til umr. er byggð á þáltill. sjálfstæðismanna, en jafnframt er í flestum veigamestu atriðum tekið tillit til hugmynda hv. framsóknarmanna á Alþingi og till. hæstv. samgrh. í ríkisstj. um nefndaskipunina. Ljóst er að leiðir hafa skilist með hæstv. iðnrh. og öðrum í þessu máli, svo að notuð séu ummæli hæstv. ráðh. Pálma Jónssonar, enda er deilt um þær leiðir sem fara skal. Af þeim ástæðum er það af illri nauðsyn sem lagt er til að hv. Alþingi og hæstv. ríkisstj. taki málið úr höndum hæstv. iðnrh. Hæstv. iðnrh. hefur valið áróður í stað árangurs. Hann hefur fremur valið þá aðferð að sverta þá sem áður hafa fjallað um þessi mál en að reyna að ná árangri sjálfur.

Í seinni tíð hefur hæstv. ráðh. sýknt og heilagt talað um nauðsyn hækkaðs orkuverðs, en í raun og sannleika er tiltölulega stutt síðan hæstv. ráðh. datt í hug að ræða þann möguleika, enda var hann svo upptekinn við að koma höggi á álfélagið vegna sviksamlegs athæfis og hækkunar í hafi. Ég tel víst að hæstv. ráðh. komi hér í ræðustól á eftir og flytji stutta og gagnorða ræðu þar sem hann fjallar um þetta mál eins og hans er vandi. Þá er eðlilegt að hann upplýsi hv. Alþingi um það hvernig notaðar hafi verið þær aukafjárveitingar sem koma fram á lista yfir aukafjárveitingar á s.l. ári, en á fyrstu 10 mánuðum s.l. árs var 4.1 millj. kr. eytt til þess að kosta verk er varða álverið og hingað til hefur ekki verið gerð grein fyrir því máli. Það kemur fram í ályktunargreininni, í þeirri þáltill. sem hér er verið að ræða, að ætlunin er að nefnd sú sem sett yrði á laggirnar hafi aðgang að öllum gögnum.

Herra forseti. Ég þarf ekki að fara fleiri orðum um þetta mál. Það hefur margoft verið rætt á hv. Alþingi. Hæstv. ráðh. hefur rætt það á blaðamannafundum og í fjölmiðlum og málið er öllum kunnugt. Ég vil fagna þeirri víðtæku samstöðu sem náðst hefur um málið í hv. atvmn. Vonandi nær það fram að ganga, enda er málið brýnt. Hér eru íslenskir hagsmunir í húfi. Ég álít, herra forseti, að málið þurfi ekki að ganga til hv. atvmn. á milli umr., enda hefur hv. nefnd rætt málið mjög ítarlega og málinu verið frestað á milli funda a.m.k. tví- eða þrívegis í nefndinni til þess að umr. fengjust um það í þingflokkum.

Herra forseti. Ég sé ekki ástæðu til að fara fleiri orðum um þetta mál og læt ræðu minni lokið.