11.03.1983
Sameinað þing: 64. fundur, 105. löggjafarþing.
Sjá dálk 2990 í B-deild Alþingistíðinda. (3030)
Um þingsköp
Karl Steinar Guðnason:
Herra forseti. Ég vil lýsa því yfir fyrir hönd Alþfl. að við teljum þessa ákvörðun forseta algerlega óviðunandi, enda fer hún alveg á skjön við það sem formenn þriggja stjórnmálaflokka hafa óskað eftir. Við höfum óskað eftir að nú verði deildafundir og hægt verði að afgreiða þau fjölmörgu mál sem þar liggja fyrir og yrði af því mun meira hagræði en því að vera nú með fundi í Sþ.
Það var á fundi í dag eða fyrri partinn að þessi ósk kom fram frá þessum þremur stjórnmálaflokkum, Alþfl., Alþb. og Sjálfstfl., og það var ekki fyrr en eftir þingflokksfund hjá Framsfl. að forseti tók þessa ákvörðun, sem ég vil telja gerræðislega, enda tekna þrátt fyrir mikil mótmæli stjórnmálaflokkanna sem ég nefndi.
Ég fer fram á að forseti endurskoði þessa ákvörðun sína til þess að fundarstörf geti gengið eðlilega fyrir sig, við getum haldið þingstörfum eðlilega áfram og afgreitt þau fjölmörgu mál sem liggja fyrir í deildum. Þinginu er það nauðsyn og þeim málum sem fyrir liggja er það nauðsyn einnig. Á þann hátt höldum við betur uppi virðingu Alþingis en gert yrði með þessari ákvörðun, sem er gersamlega óviðunandi og við Alþfl.-menn mótmælum harðlega.