11.03.1983
Sameinað þing: 64. fundur, 105. löggjafarþing.
Sjá dálk 3015 í B-deild Alþingistíðinda. (3038)

Afbrigði vegna almennra stjórnmálaumræðna

Forseti (Jón Helgason):

Það þarf að leita eftir afbrigðum frá þingsköpum vegna almennra útvarpsumr. Á síðasta þingi voru veitt afbrigði frá þingsköpum um að stuðningsmenn ríkisstj. í Sjálfstfl. fengju 20 mínútna ræðutíma í almennum stjórnmálaumr., sem skiptast milli umr. þannig að 10–15 mínútur yrðu í fyrri umferð og 5–10 mínútur í síðari umferð. Ég leyfi mér að bera fram till. um að sami háttur verði hafður á í almennum stjórnmálaumr. sem ráðgerðar eru mánudaginn 14. þ.m.