11.03.1983
Sameinað þing: 64. fundur, 105. löggjafarþing.
Sjá dálk 3018 í B-deild Alþingistíðinda. (3046)
231. mál, viðræðunefnd við Alusuisse
Iðnrh. (Hjörleifur Guttormsson) (frh.):
Herra forseti. Sú umr. sem hér stendur yfir er nokkuð sérkennileg þar sem ég hef þurft að gera alloft hlé á máli mínu vegna annarra funda og atriða sem hér hafa komið til í hv. Sþ. Ég hef einnig orðið þeirrar náðar aðnjótandi að gert var matarhlé. Það var fyrir okkur hæstv. forseta báða kannske, þar sem hér voru þá fáir viðstaddir.
Ég hef verið að fara yfir efnisatriði þessa máls, atriði sem snerta mjög þá þáltill. sem hér er til umr., og var að rifja upp fyrir hv. alþm. sérstakt tilboð sem gert var ríkisstjórn Íslands haustið 1974 undir dulheitinn Integral frá Alusuisse til ríkisstjórnar Íslands og var kominn að C-lið, sem ber yfirskriftina „Tillaga Alusuisse til ríkisstjórnar Íslands.“
„Grundvallarhugmynd. Ríkisstjórn Íslands og Alusuisse leggi fram hvor sinn hlut með því að stofna til sameiginlegs félags, sem sé eign hvors aðila að hálfu og nefnist Álfélag Íslands eða ALÍS og sem aðilar afhenda eftirfarandi óáþreifanlegar eignir: Einkaleyfi á raforku, öll nauðsynleg leyfi í sambandi við byggingu og rekstur stórrar álbræðslu og skylda hagsmuni, réttindi til rannsóknar á námuvinnslu bauxít á stóru svæði nærri úthafshöfn í Afríku, réttindi varðandi byggingu álvers á Íslandi eða erlendis, tækni- og verkfræðigetu vegna byggingar og reksturs orkuvera, súrálsverksmiðja og álvera, þjálfað starfsfólk til að reka ofangreind ver, sölustarfsemi og markað fyrir málm ALÍS, þekkingu á áliðnaði um víða veröld og samband við væntanlega aðildarfélaga, reynslu í fjármögnun stóráætlana. ALÍS framkvæmir síðan almenna athugun, sem hefst á bauxít og nær til áætlana um súrál og bræðslu, þannig að fari saman með væntanlegum raforkuframkvæmdum Íslendinga, sem áætlað er að framleiði eigi minna en 8000 gígawattstunda orku er jafngildir 500 þús. tonnum af áli á ári.“
Góðir alþm. Þið heyrið hvað hér var talað um í orkumagni, 8 þús. gígawattstundir á ári. Ég minni á að núverandi heildarframleiðslugeta íslenska raforkukerfisins er 40(K) gígawattstundir. Tvöfalt það magn var áformað að leggja í púkkið við stofnun ALÍS. „Mundi þetta leiða af sér fjárfestingarþörf, sem næmi nokkrum billjónum Bandaríkjadollara. ALÍS er ætlað að skilgreina grundvallarreglur samstarfs við þriðja aðila. Á grundvelli framkvæmdarinnar almennt muni ALÍS bjóða takmörkuðum fjölda fjársterkra fyrirtækja, sem nota nokkur hundruð þúsund tonn af áli á ári, aðild til að mynda samsteypu framleiðenda, Álsamsteypu Íslands,“ — allt skyldi það nú við Ísland kennt, — „Alconis.“
„Þegar Alconis verður stofnað," og það fylgir uppdráttur þessari till. af þessum fyrirtækjasamsteypum, „mun ALÍS afhenda Alconis einkaleyfi sín á raforku og rannsóknar- og námuréttindi vegna bauxíts. Í stað þess fær ALÍS hlutabréf í Alconis. Samkv. því er hægt að halda fjárþörf ALÍS í lágmarki. Það fer eftir því hversu mikinn þátt ALÍS tekur í Alconis hvort jafnvel er hægt að lækka fjárþörf þessa ofan í núll. „Þetta má nú kalla gylliboð.“ Aðild að bauxítnámunni og súrálsverksmiðjunni mun miðuð við þarfir álversins.
D-tillaga. Lagt er til að ríkisstjórn Íslands athugi ofangreindar tillögur og myndi sér skoðun um hvort æskilegt sé að efna til sameiginlegs fyrirtækis með Alusuisse í þeim tilgangi að skipuleggja algerlega sameiginlega“ — takið eftir: „algerlega sameiginlega, samsteypu alþjóðlegra álframleiðenda til þess að virkja íslenskar orkulindir. Verði ákvörðun ríkisstj. jákvæð yrði að gera eftirfarandi ráðstafanir án þess að þær væru bindandi:
Stofnað yrði fyrra félagið, ALÍS, í þeim tilgangi að rannsaka tæknilega, hagfræðilega og fjárhagslega þætti INTEGRAL-áætlunarinnar. Stofnað yrði síðara félagið í þeim tilgangi að rannsaka möguleika á þróun orkutinda Íslands og gera áætlanir um orkusölu til INTEGRAL.“
Undirritað: Sviss Aluminium Ltd., sem er hið enska heiti á Alusuisse.
Þessi áætlun, INTEGRAL, sem send var ríkisstjórn Íslands fyrst í marsmánuði 1973 og fékk þá ekki undirtektir, en síðan í breyttu formi 1974, tekur ekki til neinna smáræða, eins og menn hafa gefið gaum, og sem betur fer hefur ekki eftir gengið í sambandi við þessa áætlun og var þó knúið verulega á um það af Alusuisse. Viss atriði gengu þó eftir, en ekki í þeim mæli sem þarna var upp á fitjað. Við endurskoðunina 1974 var samið um stækkun álbræðslunnar í Straumsvík um 20 megawött. Áformin um súrálsverksmiðju náðu ekki fram að ganga. Það var þegar um andstöðu að ræða af hálfu Náttúruverndarráðs á þeim tíma, en Alusuisse knúði það fast á að farið yrði inn á spor INTEGRAL-áætlunarinnar að íslensk stjórnvöld á þeim tíma sáu sig tilknúin að stíga fyrsta sporið að því að gera þessum svissneska auðhring kleift að kanna íslenskar orkulindir
Sett var á fót sérstök nefnd íslenskra ráðgjafa, aðallega verkfræðinga sumarið 1975 á móti verkfræðilegum aðilum frá Alusuisse og þessi hópur Svisslendinga og Íslendinga fór í rannsóknarferð um Austurland sérstaklega, því að þar var það vatnsafl sem Svisslendingarnir horfðu á, og það var engin tilviljun því þar er að finna næst á eftir Búrfellsvirkjun og kannske Blönduvirkjun hagstæðustu orkuauðlindir Íslands í vatnsafli. Og þessi hópur kannaði jökulfljótin norðan Vatnajökuls á Austurlandi og gerði um þetta efni skýrslu, sem rituð var á ensku og undirrituð af þeim sem í þessu tóku þátt, en sú skýrsla hefur aldrei verið opinber ger því að áður en til þess kom greindi Alþb. frá áætlun INTEGRAL og hafði áhrif í þá átt að öll áform íslenskra stjórnvalda um að stíga lengra eftir þessari áætlun voru kistulögð sem betur fór. Ég vil ekki fullyrða neitt um það til hvers hugur manna stóð í þáv. ríkisstj. umfram það sem raun ber vitni, en upplagið af skýrslu Alusuisse og íslenska hópsins sem með þeim vann að skoðun á orkulindum Austurlands er geymt niður í Seðlabanka, hafi upplagið ekki þegar verið brennt. Ég hef ekki gert á því sérstaka rannsókn. Því var aldrei dreift svo að neinu næmi.
Því er ég að rifja þetta upp hér, að menn átti sig á því hvert Alusuisse hefur stefnt fyrr og síðar í samskiptum við okkur Íslendinga og þær kröfur, sem þeir nú eru að bera fram sem skilyrði fyrir því að taka til athugunar þá sjálfsögðu sanngirniskröfu íslenskra stjórnvalda að leiðrétta samningana frá 1966 og 1975, gegn þeirri kröfu tefla þeir gagnkröfum sér til hagsbóta, ákveðnum þáttum sem voru inni í INTEGRAL-áætluninni, stækkun álbræðslunnar í Straumsvík og með það að markmiði að sjálfsögðu að geta hirt arðinn af íslenskum orkulindum og af vinnu íslenskra handa í ríkari mæli en þeim hefur tekist til þessa.
Það er eðlilegt að sú spurning vakni, hvers vegna var samið við Alusuisse en ekki einhverja aðra á árinu 1966 af íslenskum stjórnvöldum. Ég hef engar endanlegar skýringar á því eða endanleg svör við því, en ég hygg þó að Alusuisse hafi verið talið sæmilega fær auðhringur á þeim tíma í áliðnaði, sæmilega staddur tæknilega séð og fjárhagslega séð. En ég held að það hljóti að vera umhugsunarefni, fyrir þá ekki síst sem eru hér að knýja á um áframhaldandi starfsemi og útfærslu Alusuisse hér á Íslandi, að aðstæður þessa auðhrings eru taldar mjög aðrar en þær voru á 7. áratugnum. Hann er nú ekki hátt skrifaður sem fyrirtæki, sem auðfélag, hvorki tæknilega eða rekstrarlega séð. Er það sjálfgefið fyrir þá, sem vilja binda trúss sitt við erlenda auðhringa, að vera að hlaða undir þetta félag gagnrýnilaust og án þess að átta sig á því hvernig skynsamlegt er að taka á málum, jafnvel út frá þeirri forsendu að við eigum einhverja hlutdeild í samstarfi við útlendinga? Ég minni á þau orð, sem féllu frá hv. 4. þm. Austurl. hér í gær í umr. um kísilmálmverksmiðju á Reyðarfirði, þar sem hann lýsti þeirri skoðun sinni, hv. þm. Sverrir Hermannsson, að við ættum ekki, Íslendingar, að eiga hlutdeild í orkufrekum iðnaði hér, ekki nema þá í mjög litlum mæli, og við ættum ekki að færast það í fang að standa að atvinnurekstri í krafti okkar orkulinda. Hann benti á það alveg réttilega, að í þessum efnum er grundvallarágreiningur milli mín og hans og hann túlkaði sín orð sem afstöðu Sjálfstfl. í heild sinni í sínu máli. Nú vil ég ekkert um það fullyrða. Ég hef nú vænst þess að Sjálfstfl. í heild væri ekki svo heillum horfinn, og ég held að það væri gagnlegt fyrir hv. 4. þm. Austurl. og fyrir hv. 11. landsk. þm., sem eru í framboði á Austurlandi, að yfirfara áætlun INTEGRAL og kanna það sem þar er á ferðinni og fara aðeins yfir hvað við Íslendingar höfum haft upp úr þessu samstarfi, til hvers þetta samstarf hefur leitt.
Ég mæli þessi orð hér m.a. vegna þess að mér er legið á hálsi fyrir að vera að draga fram staðreyndir þessa máls. Það er túlkað svo, að ég sé að sverta Alusuisse, telji samstarf við Alusuisse óæskilegt, óalandi og óferjandi og alveg sérstakur hatursáróður talinn búa að baki gagnvart erlendum aðilum. Þessi málflutningur byggir ekki á traustum grunni, en hann er viðhafður. Þannig segir t.d. í leiðara Morgunblaðsins, einum af mörgum einkennilegum leiðurum sem ritaðir hafa verið í það dagblað á undanförnum árum, 26. maí 1982:
„Hugur ráðh. Alþb. stendur ekki til þess að yfirgefa ríkisstj. og fyrir setu sinni þar munu þeir berjast til síðasta manns. En hvað um þá sem sitja með Alþb. í ríkisstj.? Hvaða hag sjá þeir sér í því að binda trúss sitt við þennan tapflokk, sem nú mun grípa til örþrifaráða? [Þetta mun vera að loknum sveitarstjórnarkosningum, herra forseti.] Sé það markmið samstarfsaðila Alþb. í ríkisstj. að draga enn úr áhrifamætti þess og fylgi skal ríkisstj. óskað langra lífdaga. Sé það hins vegar ætlunin að áfram fái Alþb. að beita neitunarvaldi um meiri háttar mál og spilla samskiptum við aðra, eins og Alusuisse, er svo sannarlega tímabært að rjúfa stjórnarsamstarfið.“
En við höfum reynslu á mörgum fleiri sviðum í samskiptunum við Alusuisse en í sambandi við raforkuverð og aðra þætti samninga. Þar má minna á reynslu okkar af baráttunni fyrir því að fá viðunandi mengunarvarnir við álverið í Straumsvík, en þar tók það hvorki meira né minna en níu ára baráttu að koma sjálfsögðum leiðréttingum varðandi mengunarvarnir í gagnið.
Í arðsemisútreikningum Alusuisse viðvíkjandi álbræðslunni í Straumsvík var ekki gert ráð fyrir hreinsitækjum vegna loftmengunar og urðu um það verulegar umr. Sérstaklega minnti Alfreð Gíslason læknir, þáv. alþm. Alþb., á hættuna af því að hleypa þessum rekstri af stað með þeim frumstæða hætti sem gert var varðandi mengunarmál. Í aðalsamningnum voru almenn ákvæði um ábyrgð ÍSALs á allri mengun, en ekkert skyldaði fyrirtækið að koma upp sérstökum mengunarvörnum. Samstarfsnefnd iðnrn. og Alusuisse, sem gert var ráð fyrir, átti að kanna mengunarhættuna af álverinu, en hún var sett á laggirnar 1967. Hefur nefndin starfað síðan undir heitinu „flúornefnd.“
Frá og með 1971 var farið að ganga meira eftir því en áður að ÍSAI. kæmi sér upp mengunarvörnum. Það var gert með stoð í nýrri reglugerð um mengunarvarnir, sem sett var af heilbrrn. 1972 á grundvelli laga um eiturefni frá 1968. Í janúar 1973 var ÍSAL gefinn sex mánaða frestur, eins konar úrslitakostir, til að setja upp hreinsitæki og var því hótað að álbræðslunni yrði lokað að öðrum kosti. Þá fyrst gaf Alusuisse sig, gaf upp andstöðu sína við þetta í orði, og í mars 1973 kom bréf frá ÍSAL þar sem lofað var að setja upp hreinsitæki.
En þetta mál var ekki unnið þar með. Það kostaði áframhaldandi baráttu. Núv. hæstv. forsrh., þáv. iðnrh., átti hlut að því máli að knýja á um efndir á því loforði sem þarna var gefið í marsmánuði 1973. Það tók níu ár að efna þetta loforð að fullu. ÍSAL lét þróa nýja gerð hreinsitækja, sem voru tekin smám saman í notkun á árinu 1979–1982, en samtímis uppsetningu þessara hreinsitækja var annar tækjakostur bræðslunnar endurnýjaður að vissu marki.
Auk umr. um loftmengun var mjög á dagskrá 19701975 svonefnt kerbrotamál, hvað gera ætti við ákveðin föst úrgangsefni úr álbræðslunni. Formlega leystist málið með gerð gryfju á sjávarströnd 1975 og var sú lausn þó ekki óumdeild.
Á árinu 1980 fór sem kunnugt er fram í iðnrn. almenn athugun á aðföngum ÍSALs og verðlagningu þeirra. En á árinu 1979 höfðu stjórnarmenn íslenska ríkisins í ÍSAL borið fram kröfur um endurbætur á reikningsfærslu fyrirtækisins. Úr framkomnum gögnum varðandi þessa athugun á aðföngum ÍSALs var síðan unnið á vegum rn. og við þær athuganir kom í ljós mikið misræmi í hagskýrslum í Ástralíu og á Íslandi varðandi verð á súráli, eins og menn rekur minni til, eins og það var skráð út frá Ástralíu og inn til Íslands.
Niðurstöður af þeirri athugun á vegum rn. í Ástralíu voru lagðar fyrir Coopers & Lybrand, endurskoðunarfyrirtækið, um mánaðamótin nóv.-des. 1980, en eftir staðfestingu endurskoðunarfirmans á tölulegum mismun súrálsverðsins samkv. áströlskum hagskýrslum annars vegar og aðflutningsskýrslum ÍSALs hins vegar var málið lagt fyrir ríkisstj. 9. des. 1980.
Á fundi sínum þann 9. des. 1980 ályktaði ríkisstj. af þessu tilefni að óska eftir því við Alusuisse, að það gæfi skýringar á þessum verðmismun sem hlaut heitið „hækkun í hafi“, og ennfremur að óska eftir því við Alusuisse að teknar yrðu upp samningaviðræður um endurskoðun gildandi samninga milli Alusuisse og Íslands, einkum með hækkun raforkuverðsins í huga. Iðnrn. fól endurskoðunarfyrirtækinu Coopers & Lybrand rannsókn málsins og leitaði jafnframt til annarra erlendra aðila.
Coopers & Lybrand lauk þessari rannsókn sinni með skýrslu um súrálsverð og hækkun í hafi í júlí 1981, þar sem staðfest er stórfellt yfirverð á súráli til ÍSALs á tímabilinu 1975 til miðs árs 1980. Eftir framlagningu þessarar skýrslu um súrálsverðið og ítrekaðar óskir ríkisstj. um samningaviðræður og sérstaka samþykkt á fundi hennar 16. júlí 1981 samþykkti Alusuisse loksins að koma til fundar hér í Reykjavík í byrjun ágúst 1981.
Á þessum fyrsta fundi skiptust menn á skoðunum, en formaður sendinefndar Alusuisse, dr. Weibel, lýsti því þar yfir af hálfu Alusuisse að fyrirtækið væri ekki reiðubúið að ræða raforkuverðshækkun eða annað fyrr en fallið hefði verið frá ásökunum, sem þeir kölluðu svo, um yfirverð á súráli. Það var álviðræðunefndin, sem nýbúið var að setja á fót, sem tók þátt í þessum viðræðufundi fyrir Íslands hönd. Ákveðið var að hittast aftur í Reykjavík 4. og 5. nóv. 1981.
Það er út af fyrir sig athyglisvert að nefna í þessu sambandi að í sérstakri þingflokkssamþykkt Sjálfstfl. í júlí, líklega 24. júlí 1981, var einmitt tekið á máli með sama hætti og Alusuisse gerði á þessum fyrsta viðræðufundi, þ.e. að ekki skyldi tekin fyrir til umr. raforkuverðshækkun eða önnur endurskoðun samninga fyrr en búið væri að fjalla um ágreiningsefni varðandi aðföng.
Fyrir lá á þessum fyrsta viðræðufundi í ágúst 1981 milli átviðræðunefndar og fulltrúa Alusuisse að iðnrn. hafði óskað eftir endurskoðun ársreiknings ÍSALs 1980 með heimild í aðalsamningi og falið endurskoðendum Coopers & Lybrand það verk. Þar var um að ræða almenna endurskoðun allra þátta ársreikningsins, en ekki aðeins yfirverð á súráli. Á fundinum 4. ágúst var þess krafist af Alusuisse að Coopers & Lybrand lykju þessari endurskoðun samkv. tímamörkum aðalsamnings eða eigi síðar en 1. sept. 1981 og var það samþykkt.
Endurskoðendurnir Coopers & Lybrand gerðu eins og fyrir þá var lagt og skiluðu endurskoðunarskýrslu sinni l. sept. 1981. í þessari skýrslu staðhæfa þeir stórfellt yfirverð á súráli fyrir árið 1980 og einnig á rafskautum. Auk þess töldu þeir að nauðsynlegt hefði verið að leiðrétta ársreikninga í mörgum öðrum greinum. Heildarleiðrétting endurskoðendanna nam 8.6 millj. dollara og hækkuðu þeir hagnað ÍSALs þetta árið, 1980, úr 5.3 millj. dollara í 14.2 millj. dollara.
Í miðjum okt. 1981 bárust boð frá Alusuisse með beiðni um frestun fundar, sem ákveðinn hafði verið 4. og 5. nóv. 1981. Þessu var þegar mótmælt af iðnrn., en að lokum var nýr fundur ákveðinn í byrjun des. 1981. Á þeim fundi tókst ekki að leysa úr skoðanaágreiningi aðila, eins og það var orðað í sameiginlegri fréttatilkynningu eftir fundinn. Í lok fréttatilkynningarinnar segir svo:
„Aðilarnir hafa orðið ásáttir um að leggja þennan skoðanaágreining til hliðar í bili og kanna leiðir til áframhaldandi samstarfs. Í því sambandi hafa fulltrúar ríkisstj. áréttað ályktun ríkisstj. frá 16. júlí 1981 varðandi endurskoðun aðalsamnings og fylgisamninganna. Óskuðu fulltrúarnir eftir svörum Alusuisse við þessari ályktun ekki síðar en hinn 15. jan. 1982 og hefur Alusuisse fallist á þau tilmæli. Verði svör Alusuisse jákvæð munu aðilarnir koma saman til fundar innan þriggja vikna frá þeim tíma.“
Þetta var orðrétt tilvitnun í fréttatilkynningu eftir þennan fund í öndverðum des. 1981.
Við þessa niðurstöðu voru bundnar nokkrar vonir, en þær áttu eftir að renna út í sandinn. Sú staðreynd liggur einnig hér ljós fyrir, að allan þennan tíma hefur Alusuisse neitað að veita Coopers & Lybrand aðgang að frumgögnum, m.a. varðandi kostnað við framleiðslu rafskauta, og gaf jafnframt rangar og villandi upplýsingar til að tefja málið. Allt til þessa dags hafa umbeðnar upplýsingar um rafskautin ekki komið og fyrir liggur yfirlýsing Coopers & Lybrand um synjun Alusuisse á beiðni þeirra um þessar upplýsingar. Iðnrn. skrifaði Alusuisse bréf á sinum tíma þar sem þessu framferði er sérstaklega mótmælt.
Hinn 1. febr. 1982 fréttist af því að til Íslands væri kominn sendimaður, dr. Müller að nafni. Hann hafði ekki tekið þátt í viðræðufundum við íslensku álviðræðunefndina, en hann er aðalframkvæmdastjóri framkvæmdanefndar Alusuisse og er orðinn nokkuð kunnugur hér á Íslandi, raunar allt frá árinu 1960 eða 1961 að telja, en hann hefur verið í forustu auðhringsins allan þennan tíma ásamt Meyer sem svo er nefndur. Nú er reyndar búið að afmunstra þá félaga af þeirri skútu fyrir tímann, fyrir áætlaðan starfstíma þeirra. og liggja fyrir því ástæður m.a. sem ég rakti hér áðan um það sem talið er fremur bágt ástand og bágur rekstur Alusuisse á undanförnum árum.
Dr. Müller, sem bar að landi þann 1. febr. 1982, hafði ekki í huga að tala við iðnrn., sem stjórnskipulega séð er þó æðsta stjórnvald í málefnum Alusuisse og íslenska ríkisins. Hann hafði heldur ekki áhuga á því að tala við álviðræðunefnd, þar sem sátu fulltrúar allra stjórnmálaflokka og var hinn formlegi aðili til viðræðna við Alusuisse. En hann hafði pantað viðtal við formenn stjórnarandstöðunnar, þá Geir Hallgrímsson og Kjartan Jóhannsson, og fékk fundi með þeim báðum.
Hann hafði meðferðis í ferð sinni hingað bréf á íslensku og ensku stílað til ríkisstjórnar Íslands, þar sem hann lýsir því yfir fyrir hönd Alusuisse, þvert ofan í sameiginlegu fréttatilkynninguna sem ég vitnaði til áðan, að Alusuisse sé ekki reiðubúið til raunhæfra viðræðna um breytingar á samningum aðila fyrr en deilumálin vegna viðskipta Alusuisse við ÍSAL á undanförnum árum hafi verið leyst.
Dr. Müller óskaði einnig eftir viðtali við Steingrím Hermannsson sjútvrh. og fékk það. Eftir desemberfundinn tekur Alusuisse það sem sagt til bragðs að senda oddvita sinn til þess að tala við öll stjórnmálaöfl í landinu önnur en Alþb. Hér var uppi fáheyrð tilraun til þess að tvístra þjóðinni í mikilvægu máli — tilraun sem fer í bága við venjur siðaðra manna og sem er brot á reglum OECD, Efnahags- og framfarastofnunarinnar, um afskipti fjölþjóðafyrirtækja af stjórnmálum þess ríkis sem þau starfa í. Það verður að segja í ljósi reynslunnar að sendiferð dr. Müllers til Íslands í febrúarbyrjun 1982 virðist ekki hafa orðið með öllu árangurslaus.
Eftir að þessi heiðursmaður kom hér að landi í þetta skipti hófust fundahöld víða hér í Reykjavíkurborg án þess að nokkrar viðræður færu fram milli Alusuisse og álviðræðunefndár eða við iðnrn. Hinn 8. febr. 1982 náðist þó samkomulag milli formanns álviðræðunefndar, dr. Vilhjálms Lúðvíkssonar, og dr. Weibel, sem einnig var þarna með í för, um að efnt yrði til þriðja viðræðufundar aðilanna í Kaupmannahöfn 3. og 4. mars 1982. Álviðræðunefndin hóf þegar undirbúning þessa fundar, en þegar sá undirbúningur stóð sem hæst kom skeyti, dags. 24. febr. 1982, frá dr. Weibel þar sem Kaupmannahafnarfundinum er aflýst af hálfu Alusuisse. Þessi framkoma sýndi svo ekki varð um villst að Alusuisse var að tefja málið með þeim ásetningi að kljúfa samstöðu Íslendinga með því að spila á hugsanlegar flokkspólitískar væringar hér innanlands.
Það mætti segja margt fleira frá þeim fundum og viðræðum, leyndum og opinberum, sem fram fóru um þetta mál, til að leiða fram hvað hér var á ferðinni, hvernig auðhringurinn bar sig að til þess að deila og drottna hér á Íslandi þegar á reyndi um íslenska samstöðu.
Þegar þetta var ljóst taldi ég þeim mun brýnna að leggja mig fram um að haldið yrði samstöðu í málinu, þó að það reyndi á þolrifin og tæki tímann.
Tveimur dögum eftir að Alusuisse hafði aflýst boðuðum fundi í Kaupmannahöfn 3. mars 1982, þann 26. febr. 1982, náðist fullt samkomulag um það í nefnd þriggja ráðherra, sem falið var fullt umboð til að ganga frá stefnu ríkisstj. í málinu, þ.e. bæði varðandi markmið og leiðir í deilunni við Alusuisse. Strax daginn eftir eða 27. febr. 1982 sendi ég síðan dr. Müller, formanni framkvæmdastjórnar Alusuisse, skeyti þar sem ég tjáði honum að hinar síendurteknu kröfur um frestun funda og tregða Alusuisse til að koma að samningaborði væri að eyðileggja alla möguleika á friðsamlegri lausn deilumála. Með hliðsjón af því bað ég hann að hitta mig að máli til þess að freista þess að ná samkomulagi um meðferð deilumálanna.
Þessu bið ég hv. alþm. að taka eftir. Alusuisse skellir hurðum á álviðræðunefnd. Það er til þess að reyna að brjóta ísinn og reyna að koma á samningaviðræðum og finna grundvöll til þeirra sem ég kem inn í þessi mál með áskorun til dr. Müllers um að koma til fundar til þess að reyna að þoka málum áfram. Þetta varð svo til þess að við héldum hér fund í Reykjavík, dr. Müller og ég, með aðstoðarmönnum okkar 25. og 26. mars 1982, en þar á meðal var formaður álviðræðunefndar, dr. Vilhjálmur Lúðvíksson.
Á fundunum með dr. Müller þessa daga fóru fram ítarlegar umræður um ágreiningsmál stjórnvalda og Alusuisse og rædd var þörf endurskoðunar á gildandi samningum. Í upphafi fundanna kynnti ég ríkisstjórnarsamþykktina frá 26. febr. 1982 um meðferð ágreiningsmála. Ennfremur var lögð fram og kynnt greinargerð um brostnar forsendur rafmagnssamningsins við ÍSAL með rökstuðningi fyrir hækkun raforkuverðsins í 15–20 mill. Rakið var í því minnisblaði að þetta væri eðlilegt rafmagnsverð miðað við þær forsendur sem byggt var á við undirbúning samninganna 1966 og eins og málin voru þá lögð fyrir Alþingi. Á fyrri fundardegi lagði Alusuisse fram drög að samkomulagi milli ríkisstj. og Alusuisse. Síðari fundardaginn eða 26. mars voru lögð fram af minni hálfu drög að samkomulagi og voru bæði drögin rædd. Við lok viðræðnanna 26. mars var ákveðið að hittast aftur um mánaðamótin apríl-maí. Var næsti fundur síðan ákveðinn í Kaupmannahöfn 5. og 6. maí 1982 og staðurinn valinn að beiðni Alusuisse. Síðan var fundarstaðnum breytt og ákveðið að fundurinn yrði haldinn hér í Reykjavík.
Eins og ég tók fram lagði Alusuisse fram drög að samkomulagi á fundinum þann 25. mars 1982, sem síðan var svarað daginn eftir með minnisblaði af Íslands hálfu sem grundvelli að samkomulagi. Með hliðsjón af þeim gögnum og umr. um þau bjóst ég við því fastlega að dr. Müller hefði, þegar hann kom til fundar við mig tæpum sex vikum síðar, hinn 5. maí, rannsakað framlögð gögn og ekki síst gagntilboð okkar að samningsgrundvelli frá 26. mars 1982. Ég bjóst við því að sjálfsögðu að hann legði þar fram ef ekki ný drög að sáttagrundvelli, þá a.m.k. munnleg viðbrögð við framlögðum gögnum síðasta fundar okkar og okkar drögum að samkomulagi. Mér til mikilla vonbrigða komu slík viðbrögð hins vegar engin fram. Það var ekki heldur um nein ákveðin viðbrögð að ræða við þeim kröfum sem settar voru fram á fyrri fundum og settar höfðu verið fram ítrekað gagnvart Alusuisse þá 16 mánuði sem þá voru liðnir frá því að ríkisstj. samþykkti að krefjast viðræðna við Alusuisse.
Þann 6. maí 1982 var síðan sett fram af minni hálfu sáttatilboð. Var þar sett á oddinn krafan um hækkun raforkuverðs a.m.k. í framleiðslukostnaðarverð. Jafnframt var í ákvæðum til bráðabirgða tekið tillit til hins bága ástands, sem ríkjandi var þá á álmörkuðum. Sáttatilboð þetta var sett saman á grundvelli þeirra tveggja samkomulagsdraga sem lögð voru fram af aðilum að fundunum 25. og 26. mars og voru í því ekki nein ný efnisatriði eða neinar nýjar kröfur settar fram. Var sáttatilboð þetta þannig að öllu leyti innan ramma samþykktar ríkisstj. frá 26. febr. 1982. Ég kynnti sáttatilboð þetta ítarlega á fundum með dr. Müller að morgni 6. maí 1982. Eftir um klukkutíma umhugsunartíma neitaði hann tilboði mínu og vildi ekki þiggja frest um svo sem viku tíma til að kynna sáttagrundvöllinn stjórn fyrirtækisins.
Það skal áréttað hér vegna villandi frásagna á opinberum vettvangi að dr. Paul Müller var ekki krafinn svara þá á staðnum. Þvert á móti var honum boðinn rýmilegur frestur til að bera sáttagrundvöll þennan undir stjórn Alusuisse.
Á þessum fundi var rædd ítarleg krafa Íslands um hækkað raforkuverð. Niðurstaða ítarlegrar umr. um þetta mál á fundinum var sú, að dr. Müller hafnaði alfarið að nokkur grundvöllur væri til hækkunar rafmagnsverðsins þá. í fundarlok þarna 6. maí 1982 hlaut ég að lýsa því yfir, að fyrst Alusuisse gæti ekki eftir rúmlega 16 mánaða samningaumleitanir gefið nein ákveðin svör né komið nokkuð til móts við ítrekaðar og sanngjarnar kröfur íslenskra stjórnvalda, m.a. um hækkað raforkuverð, þyrfti að taka samskiptamálin við félagið til rækilegrar skoðunar og ég áskildi íslenskum stjórnvöldum allan rétt í því sambandi. Jafnframt tók ég allar framkomnar tillögur og sáttahugmyndir, sem fram höfðu verið lagðar af Íslands hálfu á fundunum í mars og maí 1982, út af borðinu.
Jafnframt þessari viðleitni til að fá Alusuisse til raunhæfra samningaviðræðna hélt rannsókn og endurskoðun á skattskyldum tekjum ÍSALs áfram. Þann 7. okt. 1982 lagði Coopers & Lybrand fram endanlegar niðurstöður sínar um yfirverð á forskautum þeim sem Alusuisse seldi ÍSAL á tímabilinu 1975–1981. Endanlegt mat Coopers & Lybrand á yfirverði súráls á sama tímabili hafði hins vegar verið lagt fram 6. júlí 1981. Þar með hafði verið lagður grundvöllur að endurákvörðun skattgreiðslna ÍSALs öll þessi ár frá 1975–1981. Ennfremur er þess að geta, að í júlí 1982 var lokið gerð ítarlegrar skýrslu um raforkuverð til ÍSALs. Niðurstöður þessarar skýrslu, sem prentuð er í heild sinni sem fskj. með 204. máli í Nd. Alþingis um leiðréttingu á raforkuverðinu til ÍSALs — (Forseti: Má ég biðja ræðumann um að fresta máli sínu.) Já, ég ætla aðeins að ljúka þessari málsgrein, herra forseti, ef ég má — voru að núgildandi raforkuverð til ÍSALs væri innan við þriðjungur af meðalverði til álvera í heiminum og að eðlilegt væri að gera kröfu um hækkun raforkuverðsins í 15–20 mill á kwst. — [Fundarhlé.J
Herra forseti. Nokkur tími er liðinn síðan ég stóð hér fyrr í kvöld. Heyrt hef ég kvartanir hjá einhverjum hv. þm. sem misst hafa eitthvað úr máli mínu. Ég ætla samt ekkert að fara að endurtaka og vísa til þingtíðinda fyrir þá sem eitthvað hafa misst úr og held áfram máli mínu þar sem frá var horfið.
Ég var að gefa hér nokkurt yfirlit yfir samskiptin við Alusuisse síðustu 2–3 árin og viðleitni til þess að fá fram endurskoðun samninga og leiðréttingu á okkar málum. Ég gat þess síðast að á liðnu sumri lá fyrir mjög vel unnin skýrsla á vegum iðnrn. varðandi raforkuverð til álvera og áliðnaðar, ekki aðeins hérlendis heldur í heiminum öllum. Kem ég að því nánar síðar.
Ég vil hér víkja að því, sem ég held m.a.s. að hafi komið fram í máli hv. 10. þm. Reykv. þegar hann mælti fyrir þessari þáltill. fyrr á þessum degi, að hinn 10. nóv. 1982 barst bréf frá Alusuisse, eftir að þeir höfðu ekki haft neina tilburði til að taka upp þráðinn við íslensk stjórnvöld frá því í maí 1982. Í þessu erindi var lagður fram af þeirra hálfu nýr viðræðugrundvöllur og í framhaldi af þessu bréfi fóru fram tveir viðræðufundir í nóv. og des. s.l. Þar var dr. Paul Müller áfram forustumaður af þeirra hálfu. Kvaðst hann enn á ný ekki geta samþykkt neina hækkun raforkuverðsins. Á hinn bóginn lýsti hann sig nú reiðubúinn til þess að leggja til við stjórn Alusuisse hækkun raforkuverðsins að uppfylltum þremur skilyrðum. Í fyrsta lagi mætti Alusuisse stækka álverið um einn kerskála samkv. nánara samkomulagi. Í öðru lagi mætti Alusuisse taka inn í ÍSAL nýjan 50% eignaraðila. Og í þriðja lagi yrði kaupskyldan á raforku lækkuð niður í 50%. Þetta var að sjálfsögðu með öllu óaðgengilegt af Íslands hálfu, þegar af þeirri ástæðu að öll samningsstaða hlaut að tapast í málinu við slíkar yfirlýsingar, ef gefnar hefðu verið, af okkar hálfu. En þetta kemur nú kannske ekki heim og saman við þau sjónarmið, sem liggja fyrir í þeirri þáltill. sem hér er til umr., að mati þeirra sem þar standa að máli. Þetta var ekki síður óaðgengilegt að mínu mati vegna þeirrar fullyrðingar Alusuisse sem síðar kom fram, þess efnis að það orkuverð sem ÍSAL greiðir nú sé sambærilegt við raunhæft viðmiðunarverð, eins og þeir orða það, og eigi því ekki að hækka að neinu ráði. Nokkru seinna kom fram í skeyti frá Alusuisse að fyrirtækið gæti hugsað sér að fresta í bili þriðja skilyrði sínu, um kaupskyldu rafmagns.
Hér hefur verið stiklað á stóru um sögu samningamála Íslands og Alusuisse á síðustu tveimur árum. Það er augljóst að Alusuisse hefur mikinn fjárhagslegan ávinning af því að draga samningaviðræður á langinn. Með því að forsendur samninganna við Alusuisse um raforkuverðið eru gersamlega brostnar og verð raforku til almenningsnota af þeim sökum nær óbærilegt, þá er ekkert nærtækara en að íslenska ríkið grípi nú til nauðvarnaraðgerða eins og lagt hefur verið til af okkur Alþb.-mönnum.
Það er hvorki við álviðræðunefnd né íslensk stjórnvöld að sakast að Alusuisse hefur neitað að ganga til viðræðna um hækkun raforkuverðs og endurskoðun á samningum við ÍSAL, þrátt fyrir ítrekaðar óskir ríkisstj. sem fyrst voru fram bornar í des. 1980. Því hefur ítrekað verið haldið fram að ég hafi tafið alla samninga, eins og það er orðað, spillt fyrir möguleikum að fá fram úrslit og þar fram eftir götunum. Þessu er haldið fram þó að fulltrúar allra þingflokka hafi með aðild að álviðræðunefnd haft alla möguleika til að fylgjast með framvindu mála fram í des. s.l. og ættu ekki að þurfa að velkjast í vafa um hver hefur tafið endurskoðun á reikningsfærslu fyrri ára hjá ÍSAL og hverjir hafa neitað öllum sanngirniskröfum íslenskra stjórnvalda um endurskoðun samninga og hækkað raforkuverð. Þau skeyti sem Alusuisse hefur sent rn. frá því að fundurinn 6. des. s.l. var haldinn sem svar við ítarlegu sáttatilboði, sem þeim var sent enn á ný 21. des. 1982, færa sönnur á að Alusuisse vill ekki semja við íslensk stjórnvöld um neitt sem leiðréttir í reynd samningana við þá og viðurkennir ekki réttmæti kröfu okkar um hærra raforkuverð, nema við færum þeim þá eitthvað á móti sem þeir meta jafngilt. En slíkt eru ekki samningar sem leiða til hagsbóta fyrir okkur Íslendinga. Við þekkjum dæmið frá 1975 sem ég hef hér rakið.
Það liggur fyrir að fjmrn. hefur gert upp skattamál við ÍSAL með því að skuldfæra Íslenska álfélagið um samtals 6 660 000 Bandaríkjadali eða nærfellt 130 millj. ísl. kr. vegna endurákvörðunar á framleiðslugjaldi félagsins 1978–1980. Fjmrn. tilkynnti ÍSAL með bréfi 10. febr. s.l. að framleiðslugjald félagsins fyrir árin 1977, 1978 og 1979 hefði verið endurákvarðað. Ég geri ráð fyrir að hæstv. fjmrh. víki að þessu máli ef hann talar hér í þessari umr. Þarna var um að ræða uppgjör, sem byggði á varfærnu endurmati og endurskoðun á verðlagningu aðfanga til Íslenska álfélagsins, verðlagningu sem Alusuisse hafði hagað með tilliti til þess að komast hjá eðlilegum skattgreiðslum til íslenska ríkisins. Það sem gerði það kleift að endurákvarða framleiðslugjaldið aftur í tímann voru gild lögfræðiálit, sem fyrir lágu frá íslenskum lögfræðingum, þ. á m. Benedikt Sigurjónssyni, fyrrv. hæstaréttardómara og Ragnari Aðalsteinssyni hrl. Af íslenskum stjórnvöldum hefur því verið gert upp þetta dæmi, sem varðar vantalinn dulinn hagnað Íslenska álfélagsins, ÍSAL, frá árunum 1967–1980 sem nemur háum upphæðum. Þessi duldi hagnaður var að upphæð 35–36 millj. Bandaríkjadala, þannig að þar er um að ræða upphæð sem nemur á sjöunda hundrað millj. kr. og skatturinn, sem endurákvarðaður var, um 130 millj. ísl. kr. á núverandi útvega gengi.
Við þessa gjörð var stuðst við álit álviðræðunefndar sem sett var fram í bréfi til mín dags. 21. nóv. 1981. Þar segir orðrétt: „Það er skoðun álviðræðunefndar að niðurstöður Coopers & Lybrand séu haldbærasta matið á verðlagningu Alusuisse á þessum mikilvægu hráefnum til ÍSALs með hliðsjón af ákvæðum í grein 27.03 í aðalsamningi um „viðskipti óháðra aðila“ og ákvæði í grein 2.03 (c) í aðstoðarsamningi um rekstur, er kveður á um að Alusuisse skuli aðstoða ÍSAL við að útvega aðföng til álversins á „bestu fáanlegu kjörum“.
Ég held að sú niðurstaða sem þarna er fengin sé ekki aðeins á traustum grunni reist, eins og er raunar mat álviðræðunefndarinnar á sínum tíma og þeirra sérfræðinga annarra sem iðnrn. hefur stuðst við í þessu máli, heldur sé hér um nokkuð óvanalegt mál að ræða, að það skuli hafa tekist að sanna, með þeim hætti sem þarna um ræðir, misfellur af þessu tagi hjá fjölþjóðafyrirtæki. Mætti út af fyrir sig margt um þá athugun segja, en hún tók nokkurn tíma sem kunnugt er og hefur nú verið til lykta leidd.
Það er athyglisvert, eins og ég hef raunar þegar vakið athygli á, að í þeirri þáltill. sem hér er til umr. er verið að gera því skóna að það eigi að brjóta upp þessa gjörð íslenskra stjórnvalda, endurákvörðun framleiðslugjalds, þ.e. skatta Íslenska álfélagsins fyrir það eitt að Alusuisse lýsi sig reiðubúið að setjast að samningaborði. Ekki út á nein fyrirheit um leiðréttingu samninga, heldur aðeins fyrir það eitt að setjast að samningaborðinu.
Sú lögfræðilega álitsgerð sem ég vitnaði til um þetta efni kveður á um það sem meginniðurstöðu, að ein af almennum grundvallarreglum skattaréttar, sem orðuð er í íslenskum skattalögum nr. 75 1981, sé að endurákvarða megi skatt á skattaðila, ef í ljós kemur að honum hefur ekki verið gert að greiða skatt af öllum tekjum sínum eða eignum, og skiptir þá ekki máli hvort um refsiverða háttsemi er að ræða eða ekki. Í öðru lagi að réttur stjórnvalda til að endurákvarða skattaðila skatt sætir þeim takmörkunum í íslenskum skattalögum að endurákvörðun getur aðeins náð til skatts vegna tekna og eigna síðustu sex ára á undan því ári sem endurákvörðunin fer fram. Eðlilegt er því talið að þessi regla eigi við um framleiðslugjald ÍSALs og megi endurákvarða framleiðslugjald vegna ársins 1976 og síðari ára.
Ég held, herra forseti, að það hefðu þótt nokkur tíðindi ef ég hefði staðhæft það, þegar þetta mál var upp tekið hér í desembermánuði á hv. Alþingi 1980, að kleift yrði að gera það upp með þeim hætti sem nú er staðreynd og sanna það með þeim gildu rökum sem fyrir liggja að þarna hafi verið brotnir á okkur samningar með þeim hætti sem hér liggur fyrir varðandi verðlagningu. Ég held að þau orð núverandi formanns Alþfl., sem hann lét falla í þeim umr. í desember, að þær upplýsingar og líkur sem leiddar voru að yfirverði á aðföngum hjá álverinu mættu ekki verða vindhögg, hafi sannast í reynd, að ekki var um það að ræða. Niðurstaða þessa máls hefur orðið með skýrari og skilmerkilegri hætti en ég og raunar flestir aðrir þorðu að gera sér vonir um á þeim tíma, því að ég hafði vissulega fyrirvara á þegar þessi mál voru fyrst tekin hér upp seint á árinu 1980.
Ég vil nú aðeins víkja frá þessum málefnum og að endurskoðun samninga milli íslenskra stjórnvalda og Alusuisse, þar sem hækkun raforkuverðs hefur verið í brennidepli af hálfu íslenskra stjórnvalda, þótt margt komi fleira til.
Ég hef áður vísað til samþykktar ríkisstj. um þetta efni frá því í des. 1980, júlí 1981 og febr. 1982, en meginkrafa ríkisstj. varðandi hækkun raforkuverðs í þessum samþykktum, sem borin hefur verið fram gagnvart Alusuisse bréflega og á viðræðufundum, er um hækkun verðs á raforkunni frá því sem nú er, a.m.k. upp að kostnaðarverði við nýja raforkuöflun, ásamt ákvæðum um óskerta verðtryggingu. Gífurlegt starf hefur verið unnið á vegum iðnrn. og fleiri aðila, t.d. Landsvirkjunar til að renna stoðum undir kröfu okkar um stórhækkað raforkuverð hjá álverinu. Þannig skipaði ég starfshóp í ársbyrjun 1981 til þess að afla gagna og upplýsinga fyrir rn. um atriði er varða raforkuverð til ÍSALs, eins og það verð hefur þróast, og til að taka saman greinargerð fyrir rn. um gögn og röksemdir sem einkum komi að haldi í fyrirhuguðum samningaviðræðum við Alusuisse um hækkun raforkuverðsins til Íslenska álfélagsins.
Starfshópi þessum var í þessu sambandi m.a. ætlað að hafa í huga þróun raforkuverðs í heiminum almennt, framleiðslukostnað á raforku frá nýjum virkjunum hér á landi svo og raforkuverð í nýjum og endurskoðuðum samningum við álfyrirtæki annars staðar í heiminum. Þessi grg. starfshóps rn., sem hann skilaði af sér á s.l. sumri, er slíkt grundvallargagn í þessu máli og sýnir svo ljóslega og ótvírætt réttmæti íslensks málstaðar varðandi kröfuna um allt að þreföldun raforkuverðs til ÍSALs að enginn sem kynnir sér hana getur verið í neinum vafa um málstað okkar. Ég get raunar fullyrt að óvíða muni að finna samandregnar á einn stað upplýsingar um þróun orkuverðs til áliðnaðar í heiminum eins og í niðurstöðum þessa starfshóps, en hann skipuðu: Finnbogi Jónsson deildarstjóri, Kristján Jónsson rafmagnsveitustjóri ríkisins, Gunnlaugur Jónsson deildarstjóri á Orkustofnun og Jóhann Már Maríusson yfirverkfræðingur hjá Landsvirkjun.
Viðbrögð við niðurstöðum skýrslu þeirra voru líka mjög á eina lund í fjölmiðlum sem um hana fjölluðu. „Orkuverðið er aðalmálið,“ sagði Dagblaðið — Vísir eða DV réttilega í yfirskrift leiðara 7. sept. s.l. „Orkuverðið verður að hækka,“ skrifaði ritstjóri Tímans sem fyrirsögn yfir ritstjórnargrein. Og meira að segja Morgunblaðið sá sitt óvænna og kúventi myndarlega í ritstjórnargrein, að vísu undir fyrirsögninni „Óhæfur iðnrh.,“ en þar sagði m.a.: „Eins og raforkuverðsskýrsla, sem ráðh. lagði fram í vikunni, sýnir eru öll rök því til stuðnings að orkuverðið sé hækkað í 15–20 mill.“
Ég vitnaði til þess áðan að það hefði slegið í bakseglin hjá Morgunblaðinu frá því að þessi leiðari var skrifaður og þeir hafi dregið alvarlega í land, en við skulum vona að þeir séu ekki með öllu heillum horfnir og ekki farnir í þá stöðu sem var á árunum 1980 og 1981, þegar það var nánast bannorð að tala um kröfur um leiðréttingu á raforkuverði til ÍSALs. Þessar viðtökur við skýrslu starfshópsins um raforkuverð til álversins voru allar hinar ánægjulegustu því þær sýndu svart á hvítu mikla eindrægni að baki kröfunni um stórhækkað raforkuverð, með allt að þreföldun að markmiði, eins og fram hafði verið sett í samþykkt ríkisstj. m.a. í febr. 1982 og ítrekað hafði verið af mér á viðræðufundum með talsmönnum Alusuisse í mars og maí á árinu 1982. Það gerðust líka þau ánægjulegu tíðindi að Landsvirkjun, sem fékk til umsagnar þessa skýrslu, tók undir hana í meginatriðum í umsögn sem iðnrn. barst 30. sept. 1982. Sagði þar m.a.: „Með samningsendurskoðuninni árið 1975 var brautin því rudd til þess að jafnan megi taka samningana við Alusuisse og ÍSAL til endurskoðunar, ef samningsforsendur breytast, og að áliti stjórnarinnar eru slíkar aðstæður nú fyrir hendi. Stjórn Landsvirkjunar er því sammála þeirri niðurstöðu skýrslunnar að breyttar forsendur nú gefi tilefni til endurskoðunar rafmagnssamningsins með raforkuverðshækkun fyrir augum.“ Í grg. sem fylgdi um þetta efni var tekið undir að krafa um tvöföldun til þreföldun á raforkuverðinu væri eðlileg.
Þær till. sem Alþb. hefur borið fram og liggja hér fyrir hv. Alþingi í frv.-formi um leiðréttingu á raforkuverðinu byggja að verulegu leyti á niðurstöðum sem þarna eru samandregnar og undir var tekið af Landsvirkjun. En þar að baki liggja líka ítarleg lögfræðileg álit sem tekin hafa verið saman að beiðni ráðuneytisins.
Í maíbyrjun 1982, þegar allt benti til þess að Alusuisse ætlaði ekki að verða við sanngirniskröfum íslenskra stjórnvalda um hækkað raforkuverð, var ákveðið að leita lögfræðilegrar álitsgerðar, bæði innanlands og utan, um rétt okkar Íslendinga til að leiðrétta samningana t.d. með löggjöf. Leitað var til Þorgeirs Örlygssonar lögfræðings, fulltrúa yfirborgardómara til að rita greinargerð um íslenskan rétt og rétt annarra norrænna þjóða að þessu leyti. Leitað var til hans m.a. vegna þess að hann hefur aflað sér framhaldsmenntunar í alþjóðarétti við Harvard Law School í Bandaríkjunum, þar sem hann kynnti sér m.a. samninga milli fjölþjóðafyrirtækja og ríkisstjórna um fjárfestingu í náttúruauðlindum.
Greinargerð Þorgeirs Örlygssonar er að finna sem fylgiskjal með frv. til laga um leiðréttingu á raforkuverði til Íslenska álfélagsins, sem liggur hér fyrir hv. Alþingi. Meginniðurstöður hans, sem skipta máli í því samhengi, eru að ætla verði að Alþingi geti leiðrétt orkuverðið í samningi ÍSALs og Landsvirkjunar, ef það er mat löggjafans að forsendur verðákvæðisins séu brostnar.
Það mætti vitna í marga þætti í þessari lögfræðilegu álitsgerð Þorgeirs Örlygssonar. Vísa ég um það til umrædds fylgiskjals sem er að finna með 204. þingmáli. En ef ástæða þykir til síðar í þessari umr. að taka á þeim málum, þá er ég að sjálfsögðu reiðubúinn að vitna í kjarna þessarar mjög svo fróðlegu og vönduðu greinargerðar þessa virta íslenska fræðimanns.
Auk Þorgeirs Örlygssonar var leitað til bandaríska lögmannsins Charles J. Lipton er starfar í New York. Hann er jafnframt prófessor í alþjóðarétti við háskólann í New York og fjallar í starfi sínu sem prófessor um samninga milli erlendra fjárfestingaraðila og ríkisstjórna um langtímanýtingu á auðlindum ríkja. Charles Lipton er og hefur verið ráðgjafi fjölmargra ríkja og alþjóðastofnana á þessu sviði. Hann er einn af lögfræðiráðunautum Center on Transnational Corporations sem er ein af stofnunum Sameinuðu þjóðanna. Meginniðurstaðan í greinargerð Liptons er sú, að það sé nú viðurkennd grunnregla í rétti flestra þjóða að reglan um helgi samninga og óbreytanleika verði að víkja, þegar aðstæður breytast verulega frá því sem séð var fyrir við samningsgerð, og eigi þetta einkum við í samningum til langs tíma um nýtingu náttúruauðlinda.
Ég vil nefna hér nokkur atriði í greinargerð Charles Lipton sem miklu máli skipta. Í fyrsta lagi segir hann m.a.: „Reglan um að samninga beri að halda (pacta sunt servanda) er vissulega sameiginleg með flestum siðmenntuðum þjóðum og grundvallarregla í alþjóðlegum lögum um samninga. Hins vegar er það viðurkennt í rétti flestra ríkja að regla þessi er ekki ófrávíkjanleg.
Í samræmi við þetta hafa þróast reglur, sem til þess eru sniðnar að leysa aðila undan skyldu samkvæmt samningi, ef ófyrirsjáanlegar aðstæður breyta þeim grundvallarforsendum sem samningurinn var reistur á.“
Hann segir einnig: „Í rétti allra helstu ríkja á meginlandi Evrópu eru ákvæði, sem milda hin ósveigjanlegu ákvæði reglnanna um að samninga skuli halda, þegar kringumstæður hafa lagt svo yfirþyrmandi byrðar á skuldara að hann hefur náð því marki sem hinn þýski fræðimaður Heck hefur kallað takmörk fórnarinnar“ eða „Opfergrenze“, eins og það heitir á þýsku.
Í greinargerð Chartes Liptons er ennfremur vikið að svissneskum rétti. Í því sambandi vitnar hann til svissneska fræðimannsins A. von Thur, sem segir svo í kennslubók um kröfurétt: „Það er viðurkennt að meginreglan „pacta sunt servanda“ sé takmörkuð af því meginsjónarmiði, sem meira má sín, um sanngirni. Það er ennfremur ósanngjarnt að krefjast efnda af skuldara ef kringumstæður hafa breyst þannig að skuldari fái sem gagngreiðslu annaðhvort ekki neitt eða einungis gagngreiðslu sem er hlægileg í sambandi við efndir hans. Honum er heimili í samræmi við þetta að ógilda samninginn ef gagnaðili fellst ekki á sanngjarna lausn.“
Um breytingu réttarreglna fyrir alþjóðlegum gerðardómi segir í greinargerð Liptons: „Menn, sem setið hafa í gerðardómum á alþjóðlegum vettvangi, hafa einnig viðurkennt mikilvægi þess að viðhalda — og ef nauðsyn krefur koma á að nýju — jafnvægi með efndum aðila að alþjóðlegum samningi.“
Og um sérstöðu samninga varðandi náttúruauðlindir segir hann í greinargerð sinni: „Um samkomulag þar sem um er að ræða náttúruauðlindir landa gegnir sérstöku máli og réttur ríkis til þess að taka í sínar hendur „algera og virka“ stjórn á framtíðarnotkun náttúruauðlinda sinna er viðurkenndur í hinni þýðingarmiklu ályktun Sameinuðu þjóðanna um ævarandi fullveldi yfir náttúruauðlindum, samþykktri af Allsherjarþinginu 1962.
Reglan um ævarandi fullveldi felur í sér að viðurkennt er að einstaklingsbundnir hagsmunir verða að víkja fyrir hagsmunum þjóðarheildarinnar. Reglan hefur verið styrkt af síðari ályktunum Sameinuðu þjóðanna, þ. á m. yfirlýsingu um nýskipan efnahagsmála í heiminum frá 1974 og stofnskrá um efnahagslegan rétt og skyldur ríkja frá sama ári. Að þessu leyti er vatnsorka náttúruauðlind engu síður en jarðefni og fiskveiðar. Þjóðarhagsmunir og fullveldi ríkis verða því að sitja í fyrirrúmi,“ segir hann.
Þá er rétt að minna á þau lögfræðilegu rök um brostnar forsendur og breyttar aðstæður sem lágu til grundvallar ályktun Alþingis, sem samþykkt var 15. febr. 1972, um landhelgismál, en markmiðið með þeirri ályktun og frv. því sem Alþb. hefur flutt um þessi efni eru þau sömu, þ.e. að tryggja Íslendingum réttlátan arð af auðlindum þjóðarinnar. Í þessari ályktun Alþingis var vísað til lífshagsmuna þjóðarinnar og breyttra aðstæðna og því gætu Íslendingar ekki verið bundnir af ákvæðum landhelgissamningsins við Breta og Vestur-Þýskaland frá árinu 1961. Á sama hátt höfum við Alþb.-menn lagt til að framkvæmd verði leiðrétting samninga er varða verulega þjóðarhagsmuni. Alþingi er að okkar mati ekki einasta rétt, heldur skylt að framkvæma þá leiðréttingu ef hv. þm. telja forsendur brostnar fyrir samningunum. Æskilegast hefði verið að fá fram leiðréttingu með samningum. En þar sem Alusuisse hefur sýnt nánast einstæða óbilgirni og neitað að koma til móts við sanngirniskröfur af Íslands hálfu, þá er það mat okkar að nauðsynlegt sé að nú þegar komi til framkvæmda sú bráðabirgðaleiðrétting sem við höfum lagt til í frv. okkar um leiðréttingu á orkuverðinu til Íslenska álfélagsins..
Rétt er að geta þess, vegna þess að ýmsir hafa dregið í efa að hér sé verið að fara inn á brautir sem séu verjanlegar, að fjölmargír samningar um svipuð efni hafa verið leiðréttir. Á grundvelli meginreglna um fullveldi yfir náttúruauðlindum hafa fjölmargir langtímasamningar milli ríkisstjórna og erlendra fjárfestingaraðila um nýtingu náttúruauðlinda verið endurskoðaðir, í vissum tilvikum einhliða með löggjöf eða á annan hátt. Ennfremur er rétt að minna á að samkv. ofangreindum meginreglum er það ekki einasta réttur, heldur skylda ríkisstjórna að beita fullveldisrétti ríkis til að tryggja þegnunum réttláta hlutdeild í arði af nýtingu náttúruauðlindanna. Með hliðsjón af því að Alusuisse hefur neitað að taka upp raunhæfar viðræður við íslensk stjórnvöld um leiðréttingu orkuverðsákvæða samninganna er eðlilegt að lagt sé til að tryggt verði með löggjöf að hlutdeild þjóðarinnar rýrni ekki frá því sem fyrirhugað var 1966 er samningarnir voru gerðir. Og það er einmitt ástæða til að leggja á það áherslu að þær till. um leiðréttingu sem við berum fram ganga ekki lengra en það að leiðrétta þær forsendur sem gengið var út frá í samningunum á sjöunda áratugnum, þegar samið var fyrst við Alusuisse um álver í Straumsvík.
Verð á raforku til álbræðslunnar var upphaflega 3 mill á kwst. og hélst óbreytt til 1976, en það ár nam það 3.80 millum á kwst. og smáhækkaði síðan í 6.45 mill 1980, en hefur haldist óbreytt síðan.
Það er vert að gefa því gaum, að árið 1969 var hlutfall orkuverðs til álbræðslunnar í Straumsvík u.þ.b. 55% af heildsöluverði Landsvirkjunar til almenningsrafveitna. Hlutfall þetta lækkaði síðan í u.þ.b. 20% árið 1975, hækkaði við endurskoðun samninga í u.þ.b. 28% á árinu 1976, hækkaði í u.þ.b. 34% árið 1978 en hefur síðan farið lækkandi sem hlutfall af verðinu til almenningsveitna. Þannig var verðið til álbræðslunnar á árinu 1981 u.þ.b. 24.5% að meðalverði til almenningsveitna, en aðeins um 20% í árslok 1982.
Verð á raforku frá Landsvirkjun til álversins hefur einnig lækkað sem hlutfall af skráðu verði á áli, úr 8%, sem það var þegar bræðslan hóf rekstur árið 1969, í 5.9% 1981. Annars staðar hefur þetta kostnaðarhlutfall ekki lækkað heldur hækkað úr 5–10% í 20–25% á sama tíma og það er hér tæp 6% af framleiðslukostnaðarverði á áli. Þá er rafmagnsverðið nú aðeins um 79% af upprunalegu verði eins og það var 1969 ef miðað er við heildsöluvísitölu í Bandaríkjunum. Sé hins vegar miðað við byggingarvísitölu á Íslandi, sem er kannske eðlilegri mælikvarði, er raforkuverðið nú aðeins u.þ.b. helmingur af upphaflegu raunvirði, þ.e. það hefur lækkað um helming að raungildi frá því að álbræðslan tók til starfa 1969. Tvöföldun raforkuverðsins nú, sem við höfum lagt til að nái fram að ganga strax með leiðréttingu og lögum, gerði því ekki annað en að færa verðið að því marki sem það var þegar álbræðslan tók til starfa.
Til að vega á móti greiðsluhalla Landsvirkjunar á árinu 1982 og áætluðum halla 1983 samanlagt telur Landsvirkjun nauðsynlegt að hækka orkuverð til almenningsveitna enn um 125.9% á tímabilinu 1. febr. til 1. nóv. 1983. Hefur fyrsta hækkunin raunar þegar tekið gildi, 29% hækkun frá 1. febr. s.l. Miðað við slíka hækkun og gengisforsendur Landsvirkjunar mun orkuverð til almenningsveitna í árslok 1983 samsvara 45.6 millum á kwst., sem er sjö sinnum hærra en núgildandi verð til ÍSALs. Þar eð ÍSAL hefur keypt nálægt 50% af seldri orku frá Landsvirkjun undanfarin ár er ljóst að orkuverð til ÍSALs getur ráðið úrslitum og ræður afar miklu um afkomu Landsvirkjunar og þar með hækkunum á verði til almenningsveitna. Ef orkuverð til ÍSALs hefði hækkað í 12.5 mill á kwst. frá og með 1. jan. 1983, eins og lagt er til í till. okkar Alþb.-manna, hefðu áætlaðar tekjur Landsvirkjunar aukist um nálægt 180 millj. kr. á árinu. Þessi tekjuaukning mundi lækka áætlaðan heildargreiðsluhalla Landsvirkjunar fyrir 1982 og 1983 um 38%. Þar með mundi áætluð þörf á hækkun orkuverðs til almenningsveitna á tímabilinu frá 1. febr. í ár til ársloka þessa árs lækka úr 126% tæpum í 51.3%. Til viðbótar þeirri hækkun til almenningsveitna sem þegar er komin til framkvæmda, um 29% 1. febr., þyrfti þá aðeins að koma til 17.3% hækkun 1. maí n.k. og síðan ekki neitt meira á þessu ári. Frekari hækkana væri þá ekki þörf til að jafna greiðslustöðu Landsvirkjunar, og raunar þykir flestum nóg komið af verðhækkunum til atmenningsveitna að undanförnu, svo sem ekki er að undra.
Á það ber líka að líta, að hlutdeild Landsvirkjunar í erlendum skuldum og greiðslubyrði þjóðarinnar er mikil. Í árslok 1981 námu erlendar skuldir Landsvirkjunar til langs tíma um 28% allra slíkra skulda landsmanna. Upplýsingar um þetta hlutfall í árslok 1982 liggja ekki fyrir, svo mér sér kunnugt, en ósennilegt er að það hafi lækkað. Frekar eru líkar á að þetta hlutfall hafi hækkað. Mikinn hluta þessara erlendu skulda má rekja til hins lága raforkuverðs sem ÍSAL hefur greitt Landsvirkjun. Það varpar nokkru ljósi á stærðir í þessu samhengi að hækkun raforkuverðs til ÍSALs í 12.5 mill, þó ekki væri reiknað með að hún væri nema næstu þrjú ár, mundi nægja til að lækka erlendar skuldir Landsvirkjunar til langs tíma um því sem næst 40% og erlendar skuldir þjóðarinnar í heild um 11%.
Í skýrslu fyrrnefnds starfshóps til iðnrn., sem vitnað var til áðan, eru meginniðurstöður þær, að eðlilegt sé að raforkuverðið til ÍSALs hækki í 15–20 mill á kwst. miðað við verðlag sumarið 1982, þ.e. um það bil þrefaldist. Það væri áhugavert að rifja upp helstu niðurstöður í þessari skýrslu, sem ég gat um að hefði að geyma nánast fullkomnustu upplýsingar sem liggja fyrir um þetta efni a.m.k. á Norðurlöndum, því að þangað höfum við leitað fanga auk þess sem leitað hefur verið allmiklu víðar.
Þar kemur fram m.a. að þegar álsamningarnir voru gerðir var olíuverð mjög lágt og talið að almennt orkuverð í heiminum mundi fara lækkandi á næstu árum og áratugum, m.a. vegna tilkomu kjarnorkustöðva. Verð á hráolíu er nú um það bil 30 sinnum hærra en 1966 og framleiðslukostnaður raforku frá kjarnorkuverum hefur reynst miklu hærri en talið var.
Á árunum 1964–1965 var algengt raforkuverð til álvera í heiminum um og innan við 3 mill á kwst. Með hliðsjón af því féllust íslensk stjórnvöld m.a. á að ÍSAL greiddi að meðaltali rúmlega 2.5 mill á kwst. á samningstímanum. Á árinu 1981 var hins vegar meðalraforkuverð til álvera í heiminum rúmlega 22 mill á kwst. Samkv. fyrri forsendum ætti raforkuverð til ÍSALs því að vera rúmlega 18 mill á kwst.
Í samningaviðræðum og ákvörðunum um raforkuverð hefur ætíð verið tekið sérstakt mið af raforkuverði til álvera í Bandaríkjunum og Vestur-Evrópu. Frá því 1974 hefur raforkuverð til álvera í Bandaríkjunum fimmfaldast og er nú að meðattali um 22 mill á kwst.
Yfir 95% af framleiðslu ÍSALs eru seld til Vestur-Evrópu. Þegar álsamningarnir voru gerðir á sínum tíma var fallist á það sjónarmið Alusuisse, að raforkuverðið til ÍSALs þyrfti að vera lægra hér á landi vegna þess að greiða þyrfti tolla af áli sem selt yrði til helstu álmarkaða í Vestur-Evrópu. Þessir tollar hafa nú verið felldir niður. Eina óhagræðið af staðsetningu álvers hér á landi felst því í lítið eitt hærri flutningskostnaði en hjá álverum sem staðsett eru í Vestur-Evrópu. Að mati starfshóps iðnrn. má meta þetta óhagræði á um 2 mill á kwst., en til samanburðar má nefna að meðalorkuverð til álvera í Evrópu er um 21 mill á kwst., ef ÍSAL er undanskilið.
Alusuisse á eignaraðild að 13 álverksmiðjum í 8 löndum. Meðalorkuverð til þessara álverksmiðja er 20 mill á kwst. Lægsta orkuverðið er hjá ÍSAL, 6.5 mill, en hæst er verðið í Þýskalandi og Bandaríkjunum, um og yfir 30 mill á kwst. Þetta hefur raunar verið staðfest af framkvæmdastjóra ÍSALs, Ragnari Halldórssyni. Telur hann að jafnvel þótt tekið sé tillit til samdráttar í þeim álverum í eigu Alusuisse sem hæstan raforkukostnað bera, þá sé meðalverðið í þeim álverum sem nú eru í rekstri hjá félaginu 17–18 mill á kwst.
Að mati starfshóps iðnrn. er munur á raforkuverði til almenningsveitna og stóriðju orðinn óeðlilega mikill. Miðað við eðlilega kostnaðarskiptingu telja þeir raunhæft að reikna með því að stóriðja greiði orkuverð sem nemur a.m.k. 65% af verði til almenningsveitna. Samkv. því ætti ÍSAL að greiða nú um 20 mill á kwst.
Samkeppnisstaða Íslands í álframleiðslu er góð með hliðsjón af legu landsins og mörkuðum austan hafs og vestan. Því má telja að samkeppnisfært raforkuverð til áliðnaðar hér á landi sé um 20 mill á kwst.
Að öllu samanlögðu telur starfshópurinn, þar sem sátu þessir fjórir valinkunnu menn, að gjörbreyttar forsendur frá því að raforkusamningurinn var gerður 1966 og eftir endurskoðun hans 1975 réttlæti kröfur um að raforkuverðið til ÍSALs hækki í 15–20 mill á kwst. miðað við verðlag 1982. Starfshópur þessi telur jafnframt að orkuverðið þurfi að vera að fullu verðtryggt á samningstímanum og kæmi til greina að þeirra mati að miða verðtrygginguna að hálfu við verðþróun á áli og að hálfu við gjaldskrá Landsvirkjunar.
Ég hef áður, herra forseti, vitnað til umsagnar stjórnar Landsvirkjunar um þessa grg., þar sem tekið var í öllum meginatriðum undir það sem fram kom í niðurstöðum þessa starfshóps ráðuneytisins og að raunhæft virðist að fara fram á 2–3 földun á núverandi orkuverði til ÍSALs. Þær till. sem við Alþb.-menn höfum flutt á hv. Alþingi um leiðréttingu á raforkuverðinu eru því studdar hinum gildustu rökum. Má heita mikið langlundargeð þeirra hv. alþm. sem ekki vilja undir þessar till. taka, en leggja þess í stað til ekki aðeins að halda áfram samningaþófi við Alusuisse, án þess að þar hafi verið sýndur hinn minnsti samkomulagsvilji af þeirra hálfu, heldur að taka undir gagnkröfur auðhringsins um viðbótarhagsbætur sér til handa til þess eins að fá þá til að setjast að samningaborði, í fullkominni óvissu um niðurstöður slíkra viðræðna.
Meginniðurstöður grg. með því frv. sem ég hef vitnað til og við sjö Alþb.-menn í Nd. Alþingis stöndum að eru þessar:
1. Íslenskar réttarreglur eru því ekki í vegi, að leiðrétting á verðákvæðum í langtímasamningum geti verið lögmæt.
2. Skilyrði þess eru að upphaflegar forsendur standist ekki eða verulegar breytingar verði á öðrum sviðum.
3. Forsendur rafmagnssamnings aðila um verð fyrir orku eru löngu brostnar og ekki tókst að leiðrétta þær árið 1975, er samningnum var breytt. Þá hafa aðstæður á þessu sviði gjörbreyst bæði hér og annars staðar.
4. Heimilt er samkv. íslenskum rétti að setja almenn lög, sem hafa í för með sér breytingar á raforkuverði til ÍSALs, enda sé sú breyting innan hæfilegra marka miðað við upphaflegar forsendur og breyttar aðstæður.
Herra forseti. Ég hef hér farið yfir samskipti íslenskra stjórnvalda og Alusuisse í hnitmiðuðu máli. Hér hafa aðeins verið dregin fram nokkur meginatriði þessa máls og er fjölmargt, sem miklu skiptir, ótalið og ég mun koma að því hér, ef ástæða verður til, síðar í þessari umr. Rakið hefur verið hvernig mál hafa þróast, svo að forsendur raforkuverðsins til ÍSALs eru nú brostnar, og farið yfir nokkur lagarök, sem sýna að eðlilegast væri að Alþingi tæki afstöðu til þessa máls á grundvelli þess frv. til laga sem liggur nú fyrir hv. Nd. Alþingis. Það er augljóst að Alusuisse hefur mikinn fjárhagslegan ávinning af að draga samningaviðræður á langinn. Með því að forsendur samninganna við fyrirtækið um raforkuverðið eru gersamlega brostnar og verð raforku til almenningsnota af þeim sökum nær óbærilegt ætti ríkið nú að grípa til nauðvarnaraðgerða, eins og við höfum lagt til.
Frv. okkar um leiðréttingu á raforkuverðinu miðar að þrennu. Í fyrsta lagi að raforkuverðið til álversins sé hækkað hóflega með einhliða lagaboði af hálfu Alþingis við þær aðstæður, að samningsforsendur núverandi orkuverðs eru brostnar. Í öðru lagi er Alusuisse boðið upp á samningaviðræður um raunhæft raforkuverð með því að hækkun sú, sem gerð yrði með því frv. ef að lögum yrði, mundi standa óbreytt til ársloka 1983. Í þriðja lagi gerir það frv. ráð fyrir að náist ekki samningar milli aðila, sem báðir mega við una, hljóti íslenska ríkið að ákveða með löggjöf raforkuverðið til frambúðar í samræmi við það verð sem aðrir raforkunotendur í landinu greiða fyrir raforkuna.
Það væri, herra forseti, ástæða til að draga hér upp samanburð á því raforkuverði sem almenningur í landinu þarf að greiða og íslenskur atvinnurekstur, þ. á m. frystiiðnaðurinn, en ég þykist vita að hv. alþm. þekki þær tölur hver úr sínum heimahögum, hafi heyrt þær frá því fólki sem verður að standa undir þeim miklu byrðum sem þar eru á lagðar og felast í skattgreiðslum til þess erlenda fyrirtækis sem haft hefur starfrækslu í landinu frá því 1969 og hefur fleytt rjómann ofan af þeim arði sem fengist hefur frá okkar hagstæðasta virkjunarkosti, Búrfellsvirkjun.
Ég er ekkert feiminn við það að bornar séu saman okkar till. og okkar störf og sú þáltill. sem hér er til umr. í Sþ. Ég held að allir sanngjarnir menn, sem á þessi mál líta, hljóti að fallast á það að sá málatilbúnaður, sem þar er uppi hafður af hv. 6. þm. Suðurl. Eggert Haukdal og hans förunautum úr atvmn. Sþ., er ekki aðeins til þess fallinn að ljá andstæðingum okkar vopn upp í hendur, heldur er hann stórskaðlegur fyrir okkar málstað. Það eitt, að þessi till. hefur verið flutt hér á hv. Alþingi, hefur valdið okkur tjóni. Ég tala nú ekki um ef það gerðist, að Alþingi ætlaði að fara að skrifa upp á þann tillöguflutning sem þar er fram borinn.
Ég vænti þess, herra forseti, að til þess komi ekki. Ég minnti á það í upphafi míns máls fyrr í þessari umr., að flutningur þáltill. breytir ekki þeim lögum sem í gildi eru og því forræði iðnrn. og iðnrh. sem honum ber samkv. stjórnskipunarlögum og samkv. lögum um Stjórnarráð Íslands. Og ég fullvissa menn um það, að á meðan ég fæ komið að þessu máli mun ég ekki standa að því að farið verði að veita þessum auðhring í forgjöf hagsbætur til viðbótar við það sem orðið er. Ég treysti því, að hv. alþm., sem staðið hafa að þessum tillöguflutningi hér, sjái að sér, endurskoði þann tillöguflutning og málabúnað sem þeir hafa að staðið og fylki sér um íslenskan málstað í þessu efni.
Við höfum að vísu mátt lesa það í einu dagblaði, sem telur sig fjöllesnasta blað í landinu, að þörf sé á þjóðarsamstöðu gegn mér, eins og það er orðað í leiðara 5. mars s.l. Ég held að þeir aðilar sem þar halda á penna og þeir sem reyna nú að hafa í frammi málabúnað af þessu tagi ættu að snúa sér að því, sem nærtækara er, að reyna að skapa hér á hv. Alþingi og meðal þjóðarinnar samstöðu um þá hagsmuni sem um er að tefla, samstöðu um að ná rétti okkar gegn því fyrirtæki sem hér hefur starfað og sem við höfum viljað semja við og erum reiðubúnir að semja við, ef málsvarar þess sýna að þeir séu reiðubúnir að koma til móts við okkar sanngirniskröfur. Við höfum þegar afhent þeim nægar hagsbætur til þessa. Á það er ekki bætandi.
Af þessu taka tillögur okkar Alþb.-manna mið. Við munum berjast fyrir þeim og við munum kynna þær þjóðinni í komandi kosningum. Þar reynir á afstöðu í þessu máli og ég held að það væri vænlegra fyrir þá, sem standa að þeirri þáltill. sem hér er til umr., að endurskoða sitt mál og koma fram fyrir hv. kjósendur innan nokkurra vikna með annað vegarnesti en felst í þeirri þáltill. sem hér er rædd.