14.03.1983
Efri deild: 68. fundur, 105. löggjafarþing.
Sjá dálk 3096 í B-deild Alþingistíðinda. (3072)

206. mál, stjórnarskipunarlög

Viðskrh. (Tómas Árnason):

Herra forseti. Ég leyfi mér að vísa til þess þegar ég gerði grein fyrir atkv. mínu við atkvgr. við 1. umr. málsins og vil undirstrika það, að þó ég fylgi þessu máli nú sem sáttamáli er ég þeirrar skoðunar að stjórnskipuleg réttindi þegnanna í landinu felist ekki eingöngu í atkvæðisrétti til þess að kjósa þm. til Alþingis, heldur í ýmsu fleira. Ég vil undirstrika þetta sjónarmið mitt nú og segi já.