14.03.1983
Efri deild: 68. fundur, 105. löggjafarþing.
Sjá dálk 3097 í B-deild Alþingistíðinda. (3076)

206. mál, stjórnarskipunarlög

Karl Steinar Guðnason:

Herra forseti. Ég tel þá leið sem hér hefur verið farin vera málamiðlun sem menn verða að una við. Það tekst ekki að koma í framkvæmd breytingum á kosningalögum öðruvísi en slík málamiðlun sé gerð vegna þess að fulltrúar dreifbýlisins geta ráðið því algerlega í krafti fjölda síns hvernig með mál þessi er farið. Ég er þeirrar skoðunar að jafna eigi atkvæðisréttinn enn frekar en gert hefur verið, það eigi að vera einn maður á eitt atkv., og við hljótum að stefna að því. Þetta er áfangasigur. Það er ljóst, eins og kom fram hjá hv. 11. landsk. þm., að bæði Sjálfstæðisflokkur og Alþýðubandalag hafa gert samþykktir um að fjölga ætti þm. meira en nú er gert. Það tókst þó að koma fjölguninni niður í þrjá, sem út af fyrir sig er ágætt. Ég tel að þm.-fjöldinn ætti ekki að fara upp fyrir 60 og að jafna beri atkvæðisréttinn algerlega. En þar sem ég hef gerst aðili að þessari málamiðlun, sem ég tel skynsamlegt í þessari stöðu, segi ég já.