14.03.1983
Efri deild: 70. fundur, 105. löggjafarþing.
Sjá dálk 3105 í B-deild Alþingistíðinda. (3102)
221. mál, lánsfjárlög 1983
Þorv. Garðar Kristjánsson:
Herra forseti. Ég skal ekki fara hér, á þeim stutta tíma sem við höfum, að ræða almennt um frv. þetta, enda hefur hv. 3. þm. Norðurl. e. gert því eins góð skil og kostur er á svo stuttum tíma sem hér er til umráða, en ég sé ástæðu til þess að víkja sérstaklega að nokkrum þáttum sem mér þykir ekki hægt að láta fara fram hjá okkur með öðrum hætti en þeim séu gerð frekari skil. Þá á ég við sérstaklega 14. og 15. gr. frv., en í þessum greinum er annars vegar takmarkað framlag samkvæmt lögum til Byggingarsjóðs ríkisins og hins vegar takmarkað framlag samkvæmt lögum til Byggingarsjóðs verkamanna.
Það er ekki nýtt að í lánsfjárlögum í tíð núverandi ríkisstj. hafi staðið hliðstæð ákvæði og hér er að finna. En ég hef alltaf, þegar frv. til lánsfjáráætlunar hefur verið til afgreiðslu, gert athugasemd sérstaklega við þessa liði af þeirri ástæðu að það hefði mátt vera augljóst að allra síst var ástæða til að takmarka framlög til byggingarmálanna, til íbúðabygginga, umfram það sem þau takmarkast af þeirri löggjöf sem er í gildi. En þessu hefur verið svarað af hálfu fjmrh. og annarra ráðherra, yfirmanna húsnæðismálanna, hæstv. félmrh., á þann veg að það væri í lagi að takmarka framlög til Byggingarsjóðs ríkisins og láta ekki gilda ákvæði um að 2% launaskattsins ættu að ganga til Byggingarsjóðsins og það væri í lagi að takmarka framlag til Byggingarsjóðs verkamanna, sem byggist á því að 1% launaskatts eigi að ganga til þess sjóðs. Og hvers vegna skyldi það vera í lagi að mati hæstv. ráðh.? Jú, þeir hafa haldið því fram hér ár eftir ár að fjármál þessara sjóða væru í góðu lagi fyrir aðgerðir ríkisstj. og þess vegna væri mögulegt að grípa til þeirra ráða að svipta þessa byggingarsjóði lögmætum framlögum samkvæmt gildandi lögum.
En allt tal af hálfu ríkisstj. í þessu efni hefur verið eintómar blekkingar frá rótum. Það hefur verið séð svo um þessi mál að allt stefnir í ófremdarástand í húsbyggingarmálum landsmanna. Ég ætla ekki hér að fara að lýsa þessu ástandi. Ástandið er þannig nú, að jafnvel af hálfu talsmanna ríkisstj. er þetta viðurkennt í dag. Það er breyting frá því sem verið hefur á undanförnum árum. Með tilliti til þessa skyldi maður halda að nú féllist hæstv. ríkisstj. á það sjónarmið að ekki stoði lengur að svipta byggingarsjóðina þeim tekjum sem þeim eru ætlaðar. Ég vildi með þessum fáu orðum leggja áherslu á þetta og mikilvægi þess að bæði 14. og 15. gr. frv. verði felldar.
En ég vildi víkja örlítið að öðru atriði, og nú þykir mér vart stætt á því að halda áfram máli mínu nema hæstv. fjmrh. sýni þessu frv. þá virðingu að vera viðstaddur umr. (Forseti: Ég mun senda eftir hæstv. fjmrh.) Ég mun á meðan gera hlé á ræðu minni. — Ég sé að hæstv. fjmrh. hefur gengið í salinn og mun ég þá halda áfram máli mínu.
Ég vil víkja að því, að samkvæmt þessu frv. til lánsfjárlaga er gert ráð fyrir að heildarfjárhæð erlends lánsfjár nemi 3 milljörðum og 386 millj. kr., svo sem fram kemur og í fskj. 7 með frv. þessu. Ég beini athyglinni sérstaklega að einum lið. Það er liðurinn Steinullarverksmiðja, sjóefnavinnsla, stálfélag. Það er gert ráð fyrir lántökum að upphæð 80 millj. kr. í þessu skyni og það er vísað til neðanmáls á þessu fskj., en þar segir: „Heimild er til lántöku samkvæmt sérlögum, þ.e. lög nr. 61/1981 um steinullarverksmiðju, lög nr. 62/1981 um sjóefnavinnslu á Reykjanesi og lög nr. 59/1981 um stálbræðslu.“ Og hvað er það sem segir í þessum lögum og sérstaklega skiptir máli að mínu viti þegar við erum að afgreiða lánsheimildir sem varða fjármögnun þessara fyrirtækja af hálfu ríkisins?
Um stálbræðsluna segir í ákvæði til bráðabirgða að ríkisstj. sé ekki heimilt að gerast eignaraðili að hlutafélaginu, sem lögin gera ráð fyrir, né leggja fram fé ríkissjóðs sem hlutafé né veita ríkisábyrgð eða taka lán, svo sem lögin gera ráð fyrir, fyrr en tryggð hafa verið hlutafjárframlög annarra aðila fyrir 60% hlutafjár, enda sé tryggður rekstrargrundvöllur fyrirtækisins með afurðaverði sem er sambærilegt heimsmarkaðsverði að áliti viðskrn. Ég vil leyfa mér að spyrja hæstv. fjmrh. hvort það liggi fyrir að fullnægt sé þessum skilyrðum, sem lögin gera ráð fyrir í bráðabirgðaákvæði, um stálbræðsluna, hvort það hafi verið tryggt að hlutafjárframlög annarra aðila en ríkisins nemi nú 60% hlutafjár og hvort það sé tryggður rekstrargrundvöllur fyrirtækisins með afurðaverði sem er sambærilegt heimsmarkaðsverði, svo sem lögin gera ráð fyrir.
Ég vil þá ennfremur að því er viðkemur steinullarverksmiðjunni vekja athygli á ákvæði til bráðabirgða í lögum um steinullarverksmiðju. Þar segir að ríkisstjórninni sé ekki heimilt að taka þátt í stofnun hlutafélags, sem lögin gera ráð fyrir, né leggja fram fé ríkissjóðs sem hlutafé, né veita ríkisábyrgð eða taka lán, er lögin gera ráð fyrir, fyrr en tryggð hafa verið hlutafjárframlög annarra aðila fyrir 60% af hlutafé væntanlegs félags og aflað hefur verið öruggra viðskiptasambanda, eins og segir í bráðabirgðaákvæði. Nú vil ég leyfa mér að spyrja hæstv. ráðh. hvort það liggi nú fyrir að þessum skilyrðum hafi verið fullnægt, að tryggð hafi verið hlutafjárframlög annarra aðila fyrir 60% af hlutafé og hvort aflað hafi verið öruggra viðskiptasambanda.
Það var líka vitnað til sjóefnavinnslu á Reykjanesi. Ég geri mér ekki ljóst til hvers það fjármagn, sem ætlað er til sjóefnavinnslunnar, á að ganga. Ég geri ráð fyrir að það sé ekki til framkvæmda við stækkun verksmiðjunnar í 40 þúsund tonna afköst. En ef svo er ekki væri fróðlegt að vita um hvað er að ræða. En ef svo skyldi vera að hér væri um að ræða stækkunina er spurningin sú, hvort það hafi verið fullnægt þeim skilyrðum sem sett voru um framlög og þátttöku ríkisins í þessum framkvæmdum. Ég vænti þess að hæstv. ráðh. gefi svör við þessum spurningum.
Það hefði verið að sjálfsögðu mjög æskilegt og fróðlegt fyrir hæstv. fjmrh. ef hann hefði verið hér viðstaddur og hlýtt á fyrri hluta ræðu minnar, sem fjallaði um 14. og 15. gr. frv., og till. mína um að þær greinar væru felldar, vegna þess að þær fjalla um takmörkun á fjármagni til Byggingarsjóðs ríkisins og Byggingarsjóðs verkamanna. Þó að till. frá okkur sjálfstæðismönnum um að fella slíkar takmarkanir niður við afgreiðslu lánsfjárlaga á undanförnum árum hafi verið felldar hefur það að nafninu til verið gert á þeirri forsendu að ástand húsnæðismálanna væri það gott að það þyrfti ekki á þessu fjármagni að halda. Nú hefur komið í ljós að allt talið um þetta hafi verið blekkingar. Jafnvel er nú svo komið, að úr herbúðum stjórnarliðsins heyrist að ekki sé allt með felldu í þessum efnum. Nú tala allir um vandræðaástand í húsnæðismálunum. spurningin er því sú, hvort hæstv. fjmrh. er nú ekki tilleiðanlegri til skynsamlegra viðbragða við slíkum till. sem þessum að fella niður skerðingar á fjármagni til húsnæðislána.