14.03.1983
Efri deild: 70. fundur, 105. löggjafarþing.
Sjá dálk 3111 í B-deild Alþingistíðinda. (3107)

211. mál, lán vegna björgunar skipsins Het Wapen

Frsm. meiri hl. (Ólafur Ragnar Grímsson):

Herra forseti. Ég kynni nú betur við að hæstv. utanrrh. væri viðstaddur þessa umr. og ennfremur hæstv. viðskrh. (Forseti: Þá verður umr. frestað.) Nei, nei, við skulum ekki gera það að úrslitaatriði þá. En ástæðan er sú, að þeir óskuðu eftir því hér við 1. umr. að fjh.- og viðskn. athugaði þetta mál sérstaklega og ég vildi gjarnan geta skýrt þessum hæstv. ráðh. frá því að það hefur farið fram mjög ítarleg og vönduð vinna í n. um þetta mál. En fyrst ráðh. hafa einhverjum öðrum hnöppum að hneppa ætla ég að treysta á að þeir lesi þskj. og hafi séð á þskj. 541, nál. meiri hl. fjh.- og viðskn., að nefndin hefur orðið við þeim óskum, sem hér komu fram frá þessum tveimur hæstv. ráðh., um að athuga þetta mál vel. Tilefni þessara óska ráðh. var að í fjh.- og viðskn. Nd., sem situr undir öruggri forustu hv. þm. Halldórs Ásgrímssonar, hefði ekki farið fram nægilega vönduð vinna varðandi þetta frv.

Eins og fram kemur í nál. fengum við upplýsingar frá tveimur starfsmönnum Þjóðminjasafnsins Þór Magnússyni þjóðminjaverði og Guðmundi Ólafssyni, og ennfremur komu á fund n. tveir sérfræðingar frá Raunvísindastofnun Háskólans, Leó Kristjánsson og Sveinbjörn Björnsson. Ennfremur átti n. fund með Kristni Guðbrandssyni fulltrúa þeirra aðila sem unnið hafa að könnun á björgun skipsins Het Wapen. Sem fylgiskjal með nál. er álitsgerð frá Leó Kristjánssyni forstöðumanni jarðeðlisfræðistofu Raunvísindastofnunar Háskólans, en þar kemur fram ítarleg lýsing á þeim mælingum og athugunum sem fram hafa farið á staðnum, og ennfremur eru birt afrit af segulmælinganiðurstöðum sem framkvæmdar hafa verið á sandinum.

Það er niðurstaða meiri hl. n., eftir að hafa kynnt sér rækilega þessar upplýsingar, að mæla með því að frv. verði samþ., en við beinum því til fjvn., sem á samkvæmt frv. að fjalla um afgreiðslu ábyrgðarinnar, að í fyrsta lagi verði frekari boranir framkvæmdar til að afla nánari upplýsinga, en í öðru lagi verði í fyrstu veitt ábyrgð fyrir aðeins hluta af þeirri upphæð sem tilgreind er í 1. gr. frv. og viðbótarfé ábyrgst þegar í ljós er komið við fyrsta áfanga í uppgreftri hvaða skip er hér um að ræða og í þriðja lagi, að komi það í ljós að hér sé um að ræða skipið Het Wapen skuli rætt um varðveislu skipsins eftir uppgröft áður en lengra er haldið. Ljóst er að varðveisla skips af þessu tagi getur verið ýmsum erfiðleikum háð og það getur þurft sérhannaðar byggingar og sérstakt varðveislukerfi, líkt því sem tíðkast í ýmsum löndum, þar sem skip sem grafin hafa verið upp eru geymd sem safngripir, og þess vegna finnst okkur nauðsynlegt að sú athugun fari fram áður en lengra verður haldið. Því má segja að meiri hl. n. leggi til að í þessu máli verði unnið í áföngum og við teljum þá áfanga skynsamlega og raunhæfa, eins og nú er komið, og á grundvelli þeirra upplýsinga sem sérfræðingar og aðrir kynntu okkur varðandi þær rannsóknir sem fram hafa farið á tilvist skipsins Het Wapen í sandinum við suðurströnd Íslands.

Samkvæmt íslenskum lögum telst skipið vera íslenskar fornminjar og íslensk stjórnvöld hafa þess vegna á valdi sínu hvað við fundinn verður gert. En ég vil að lokum segja það við þá hv. alþm. sem eru andstæðingar þess að þessi ábyrgð verði veitt, að í raun og veru er ekki hægt að leggjast gegn því að íslensk stjórnvöld veiti þessum íslensku aðilum fjárhagsábyrgð af þessu tagi og meina þeim einnig að leita fjárstuðnings hjá erlendum aðilum, sem hefðu áhuga á að eignast skipið, ef það fyndist, hvort sem það eru hollenskir sjóliðar eða hollensk stjórnvöld, en slíkar ráðstafanir geta björgunaraðilar ekki gert vegna þeirra lagakvaða sem hvíla á skipinu sem íslenskum fornminjum. Það er samkvæmt lögum sem það telst vera íslenskar fornminjar.

Hv. þm. Eiður Guðnason. Hvað svo sem mönnum finnst um eðli skipsins hefur háttvirtur þjóðminjavörður upplýst nefndina um að fundur í sandinum frá þessu tímaskeiði verði samkvæmt lögum að teljast íslenskar fornminjar, hvað sem mönnum finnst um menningarsögulegt inntak þessa grips. Þess vegna finnst okkur í meiri hl. nauðsynlegt að íslenskir aðilar standi að þessu og við leggjum til að frv. verði samþ.