14.03.1983
Efri deild: 70. fundur, 105. löggjafarþing.
Sjá dálk 3112 í B-deild Alþingistíðinda. (3109)

211. mál, lán vegna björgunar skipsins Het Wapen

Forseti (Helgi Seljan):

Ég frestaði nú afgreiðslu lánsfjárlaganna einmitt vegna þess að ég var að bíða eftir þessum ágætu hæstv. ráðh. Ég verð þá að fresta þessu máli um sinn, ef eftir því er sérstaklega óskað. Ég hygg að hvorugur ráðh. sé kominn í húsið enn. Ég skal láta athuga það reyndar. — Þeir eru fjarstaddir. Umr. um þetta dagskrármál er þá einnig frestað um stund.