14.03.1983
Efri deild: 70. fundur, 105. löggjafarþing.
Sjá dálk 3114 í B-deild Alþingistíðinda. (3112)

150. mál, eignarréttur ríkisins að auðlindum hafsbotnsins

Frsm. (Eyjólfur Konráð Jónsson):

Herra forseti. Allshn. hv. Ed. hefur rætt mál þetta allítarlega og komist að þeirri niðurstöðu að það væri ekki nægilega undirbúið og þyrfti að gera breytingar á frv. til þess að það næði þeim tilgangi sem við teljum mikilvægastan, þ.e. að tryggja fiskveiðiréttindi á hafsbotninum og á hafinu yfir honum raunar líka. — Formaður allshn. er þarna inni, vildi hann kannske... (Forseti: Formaður allshn. Það er óskað eftir honum.) Ég kunni betur við að formaður minnar ágætu nefndar væri hér viðstaddur af því að ég vitna nokkuð til umr. sem hann átti við Hans G. Andersen. Og til þess að það sé nú örugglega rétt með farið, þá hafði formaður fyrir okkar hönd frumkvæði að því að tala við Hans G. Andersen um málið og við reyndum að athuga það eins mikið og við gátum og urðum sammála um að þessi málefni ættu að heyra undir sjútvrn., þ.e. að yfirborð hafsbotnsins utan 200 mílnanna eins og innan þeirra ætti að vera málefni sjútvrn., og að ráðstafanir væru gerðar til að reyna að tryggja þær lífverur sem á botninum eru og raunar að koma í veg fyrir allt rask á botninum, sem við getum gert í framtíðinni.

Nú vill svo til að ég ræddi nokkuð um þessi málefni í sþ. í dag og tel ekki ástæðu til að endurtaka það sem ég þar sagði, því að tíminn er mjög knappur og menn vilja reyna að afgreiða þau mál sem á dagskrá eru búin að vera núna í nokkra daga. Ég ætla svo sannarlega ekki að þreyta menn með því að endurtaka það sem ég sagði í Sþ. En sem sagt: Við teljum þetta vera mjög mikilvægt mál og það þurfi að athugast betur. Þess vegna leggjum við til að því verði vísað til ríkisstj. og, eins og í niðurlagi segir, „til skjótrar en ítarlegrar athugunar hæfustu sérfræðinga, þar sem framangreind sjónarmið sitji í fyrirrúmi“, þ.e. að á næstu árum verði okkar fiskveiðiréttindi allt út í 350 mílur tryggð og það sé brýnna verkefni en hitt að hugsa til einhverrar vinnslu jarðefna úr hafsbotninum sjálfum. Um það gætu verið aðrar reglur. En það er eðlilegt að hæfustu sérfræðingar skoði þetta og leggi málið að nýju fyrir næsta þing.