14.03.1983
Efri deild: 71. fundur, 105. löggjafarþing.
Sjá dálk 3117 í B-deild Alþingistíðinda. (3120)
221. mál, lánsfjárlög 1983
Lárus Jónsson:
Herra forseti. Á fundi fjh.- og viðskn. í morgun kom það fram að áformaðar lántökur samkvæmt þessu frv. mundu fara fram úr því, sem hæstv. forsrh. sagði hér, að hækka ekki að raungildi, ef reiknað er með því að taka lán vegna viðskiptahalla sem í stefnir. Þetta kom fram hjá fulltrúum Seðlabankans. Ég tel að þessi till. miði að því að setja ákveðið þak á lántökur í ár og segi því já.