14.03.1983
Efri deild: 71. fundur, 105. löggjafarþing.
Sjá dálk 3117 í B-deild Alþingistíðinda. (3121)
221. mál, lánsfjárlög 1983
Ólafur Ragnar Grímsson:
Herra forseti. Það hefur komið fram í ræðum hæstv. fjmrh. og einnig í grg. hæstv. forsrh. fyrir atkv. hans að markmið og stefna ríkisstj. er að erlendar lántökur aukist ekki að raungildi á þessu ári. Það er ljóst að á árinu 1982 voru erlendar lántökur nokkru meiri en samþykkt hafði verið í fjárfestingar- og lánsfjáráætlun fyrir það ár. Nú er hins vegar ljóst að sú tala sem gengið hefur verið frá hér felur í sér að erlendar lántökur mega ekki aukast neitt eigi þær að vera í samræmi við þetta yfirlýsta markmið.
Í vinnu fjh.- og viðskn. kom fram að það er fyrst og fremst á starfssviði langlánanefndar sem erlendar lántökur hafa farið úr skorðum eða gætu farið úr skorðum á árinu 1983. Í trausti þess að hæstv. ráðh. sem nú sitja í stólum og þeir sem á eftir þeim koma síðar á þessu ári standi við það stefnuheit sem fulltrúar allra flokka hafa nú lýst yfir, að erlendar lántökur verði ekki auknar að raungildi á þessu ári, tel ég óþarfa að samþykkja þessa sérstöku till. og segi nei.