14.03.1983
Efri deild: 71. fundur, 105. löggjafarþing.
Sjá dálk 3118 í B-deild Alþingistíðinda. (3126)
211. mál, lán vegna björgunar skipsins Het Wapen
Viðskrh. (Tómas Árnason):
Herra forseti. Það er mjög svo tilfinnanlegur skortur á fjármagni til rekstrar, til fjárfestingar og til uppbyggingar í atvinnulífi landsmanna. Ég tel ekki að mál af þessu tagi eigi við þær aðstæður sem nú eru að hafa forgang fyrir þörfum atvinnulífsins um meira fjármagn og segi nei.