14.03.1983
Efri deild: 71. fundur, 105. löggjafarþing.
Sjá dálk 3119 í B-deild Alþingistíðinda. (3128)
Starfslok efri deildar
Forseti (Helgi Seljan):
Þar sem þetta mun að öllum líkindum verða síðasti fundur þessarar hv. þingdeildar á 105. löggjafarþingi vil ég leyfa mér að nota þetta tækifæri til að færa hv. þdm. mínar innilegustu þakkir fyrir hið ágætasta samstarf í hvívetna og mikið umburðarlyndi í minn garð sem forseta. Ég vil færa varaforsetum mínum og skrifurum sérstakar þakkir fyrir þeirra vel unnu störf. Ég færi skrifstofustjóra Alþingis og öllu starfsfólki þingsins mínar bestu þakkir fyrir þeirra störf, sem hafa af mikilli samviskusemi og elju verið í okkar þágu unnin. Ég óska þeim hv. þdm., sem um langan veg eiga heim að sækja, góðrar heimferðar og heimkomu; Ég árna hv. þdm. öllum alls velfarnaðar, hver svo sem auðna þeirra verður í orrustunni fram undan. Megi góð gifta fylgja ykkur öllum.