14.03.1983
Efri deild: 71. fundur, 105. löggjafarþing.
Sjá dálk 3119 í B-deild Alþingistíðinda. (3129)
Starfslok efri deildar
Karl Steinar Guðnason:
Herra forseti. Í nafni okkar alþm. þakka ég forseta góðar óskir í okkar garð. Jafnframt þakka ég honum fyrir í senn réttláta og röggsama fundarstjórn og umburðarlyndi í garð okkar þingdeildarmanna. Ég flyt einnig þakkir okkar þdm. skrifstofustjóra Alþingis og starfsfólki þingsins. Ég vil jafnframt flytja hæstv. forseta og fjölskyldu hans og starfsfólki þingsins velfarnaðaróskir okkar allra. Ég bið hv. þdm. að taka undir þessar óskir með því að rísa úr sætum. — [Þm. risu úr sætum.]